Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 41
Jólagjafir og gjafabréf 12. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Yoga Shala hóf starfsemi árið 2005, en var opnað á nýjum og glæsilegum stað í janúar 2017 á 3. hæð í Skeifunni 7. Skeifan er spennandi svæði þar sem mikil gróska hefur átt sér stað undanfarin ár. „Við bjóðum upp á hágæða jóga- kennslu í stórum og björtum sal með útsýni yfir Esjuna,“ segir Tómas Oddur Eiríksson, einn af eigendum Yoga Shala en hann rekur stöðina ásamt Ingibjörgu Stefánsdóttur. „Yoga Shala er einnig fyrsta jóga- stöðin á Íslandi til að vera með inn- rauðan hita sem hefur slegið í gegn hjá iðkendum. Hitinn er þægilegur, alveg hljóðlaus, er ekki kæfandi og nær djúpt í vefina. Við viljum vera nærandi griðastað- ur fyrir fólkið í samfélaginu og gera jóga aðgengilegt fyrir alla, sama hver bakgrunnurinn er. Fjölbreyttir tímar eru í boði alla daga vikunnar, enda misjafnt hverju fólk er að leita að, en hins vegar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.“ Tómas fór af stað með námskeiðið Yoga fyrir Stirða stráka sem hefur náð gríðarlegum vinsældum en nú hafa yfir 600 karlar á Íslandi tekið námskeiðið. „Það selst alltaf upp, sem er bara mjög ánægjulegt,“ segir Tómas og bætir við að bráðum verði farið af stað með Yoga fyrir Stirðar stelpur líka. „Við erum að fara að bæta við fleiri námskeiðum. Við erum að vinna með kulnun og bjóðum upp á sérstaka tíma og námskeið fyrir fólk sem glímir við hana. Við erum einnig með sér tíma, Kyrrðarjóga fyrir konur, fyrir konur sem heita, nýtt námskeið sem heitir Kvenna- kraftur og heilmikið af opnum tímum sem þátttakendur á námskeiðum mega mæta í. Á morgnana erum við með frábæra tíma þar sem fólk lærir að iðka sjálft, á eigin hraða undir persónulegri leiðsögn kennara. Margir viðskiptavina Yoga Shala koma í gegnum Virk og hefur verið mikið ánægja með það samstarf. Við elskum að hjálpa fólki að líða betur og viljum mæta hverjum og einum þar sem hann/hún er. En hver er ávinningurinn við að stunda jóga? „Það sem ég fæ út úr jóga er kyrrð og ró í huganum, fyrst og fremst. Ég mæti sjálfum mér á mottunni hverju sinni og læri að lifa í sátt við sjálfan mig og augnablikið. Líkamsvitund, liðleiki og styrkur er bónus. Ég er aldrei með vöðvabólgu eða verki. Ég á auðveldara með að takast á við erfiðleika þegar þeir koma upp og yfirstíga hindranir. Ég fæ aukna orku af önduninni og tengist innsæi mínu betur. Fyrir mér er jóga mjög vísindalegt, þar sem iðkandinn er rannsakandinn og viðfangsefnið í senn,“ segir Tómas sem er líka með BS í landfræði frá Háskóla Íslands. „Í Yoga Shala vinnum við bæði með líkamann og andlegu hliðina, þetta helst allt í hendur; hugur og líkami er eitt og hið sama. Jóga er ekki eins alvarlegt og fólk heldur. Það getur líka verið skemmtilegt og skapandi.“ Það hafa orðið miklar breytingar á lífi fólks undanfarin ár með tilkomu netsins og samfélagsmiðla. Það er sífellt hægt að ná í okkur og áreitið er alls staðar, svo loksins þegar við komumst heim þá heldur áreitið áfram. Við vitum að streita og spenna geta valdið alvarleg- um sjúkdómum. Svo leggur maður höfuðið á koddann og getur jafnvel ekki sofnað og þá er maður kominn í vítahring. Þess vegna er svo ótrúlega mikilvægt að eiga stund á hverjum degi þar sem maður kúplar sig út og hleður batteríið. Við notum áhrifaríkar æfingar sem eru róandi fyrir taugakerfið og hugann.“ Hjá Yoga Shala er meðal annars boðið upp á hugleiðslu, Yoga Nidra, sem er djúpslökun og mjög vinsæl, Ashtanga-jóga, kraftjógaflæði, kyrrðar- jóga ásamt því að bjóða reglulega upp á fjölbreytt námskeið, vinnustofur og viðburði. „Það er bara um að gera að skoða úrvalið á heimasíðu okkar og hafa samband við okkur og fá leiðbein- ingar um hvað hentar best. Við bendum líka fólki á að hlaða niður appinu okkar – Yoga Shala Reykjavík.“ Yoga Shala býður upp á gjafakort fyrir opna tíma og námskeið sem er tilvalin jólagjöf. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á vefsíðunni yogashala.is og Facebook-síðu Yoga Shala Reykjavík. Einnig eru upplýsingar veittar í síma 553-0203 eða í gegnum tölvupóst á netfangið yoga@yogashala.is. JÓGA TENGIR LÍKAMA OG HUGA: Yoga Shala er með fjölbreytta tíma með innrauðum hita
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.