Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Side 54
54 FÓLK - VIÐTAL 12. október 2018 an, sem er kvikmyndin Margery Booth: The Spy in the Eagle’s Nest. Kvikmyndin er óður til mikillar kvenhetju að nafni Margery Booth, óperu söngkonu og njósnara sem átti stóran þátt í því að bandamenn náðu undirtökunum í seinni heims- styrjöldinni, þökk sé meðal annarra kafteininum Waldemar Hohenlohe sem Sölvi leikur. Meðleikarar eru svo ekki af verri endanum, Anna Friel leikur sjálfa Margery Booth, Stephen Fry leikur Hermann Gör- ing og þýski leikarinn Udo Kier fer með hlutverk Adolfs Hitler. En hver er Waldemar Hohenlohe? „Waldemar var ofursti af gamla skólanum í þýska hernum en í myndinni kemur hann við sögu sem fangabúðastjóri í Stalag II- ID-fangabúðunum í Berlín en þangað kemur Margery Booth til þess að skemmta föngunum með óperu söng sínum og nokkurs kon- ar uppistandi þess tíma. Wald- emar var ekki nasisti og fyrirleit stríðið en hann var frændi Georgs 6. Englandskonungs, sem ætti ekki að koma neinum á óvart þar sem breska konungsfjölskyldan er þýsk að uppruna. Fjölskyldunafnið var Saxe-Coburg-Gotha þar til Georg 5. fékk þá snilldarhugmynd að taka upp nafn Windsor-kastala sem eft- irnafn. Það hljómar öllu breskara. Waldemar átti kærar minningar frá Englandi þar sem hann stundaði nám fyrir stríðið og spilaði krikket en harkalegar aðgerðir SS-manna fóru hins vegar fyrir brjóstið á hon- um, sem meðal annars varð til þess að bjarga lífi Margery. En meira um það þegar myndin kemur.“ Sölvi bætir við að tvö önnur risa- stór verk séu í vinnslu en hann er þögull sem gröfin um hver þau séu. Hann játar þó hvorki nei neitar að annað þeirra tengist nýrri kvik- mynd þar sem þeir Hafþór Júlíus deila saman hvíta tjaldinu. Það væri þá ekki í fyrsta sinn. Sölvi hælir Haf- þóri og líkir honum við annan góð- an vin sinn, Jón Pál Sigmarsson heitinn. „Á sínum tíma reyndi ég talsvert að fá Jón Pál til þess að leyfa mér að aðstoða sig en hann ein- hvern veginn keypti þá hugmynd aldrei alveg.“ Með Fjallinu á hvíta tjaldinu „Hafþór hins vegar hefur náð árangri sem enginn hefur nokkru sinni náð, ekki „bara“ að vinna alla helstu aflraunatitla í heiminum á þessu ári, þar með talið að verða sterkasti maður í heimi, heldur einnig að vinna í kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum samhliða því,“ fullyrðir Sölvi. „Það hefur enginn gert nokkru sinni. Vissulega er hann mannlegur, en býr yfir bæði ofurmannlegum kröftum og ekki síður gríðarsterkri einbeitingu sem eru hans helstu vopn að mínu mati og gera honum kleift að gera hið ómögulega.“ Það vill svo til að Hafþór fer með eitt hlutverkið í Operation Ragnarök, en saman eru þeir Sölvi á meðal fimm Íslendinga sem bregður þar fyrir. „Þar leikum við harðkjarna víkingasveit sem er við æfingar í Svíþjóð þegar efnavopn sleppur út í andrúmsloftið og bók- staflega allt verður vitlaust og þegar hvorki herinn né nokkur annar ræður neitt við neitt þá eru íslensku víkingarnir að sjálfsögðu kallaðir til,“ segir Sölvi. „Handritið sem fjall- ar í grunninn um ótta mannskepn- unnar við hið óþekkta og ég kolféll fyrir þessu.“ Að sögn Sölva kemur hans fyrsta skáldsaga út samhliða myndinni, sem heitir því fróma nafni „Quis Custodiet Ipsos Custodes“ eða „Hver gætir varðanna?“ Sölvi er þessa dagana að leggja lokahönd á bókina og verður þar lögð áhersla á sömu persónur og í Operation Ragnarök. Varla getur þetta verið tilviljun og því er Sölvi hjartanlega sammála, þótt hann vilji ekki út- skýra hvers vegna. En skrif, ofar öllu, heltaka huga skáldsins þessa dagana og einbeitir Sölvi sér af fullri orku að því að klára nýjustu ljóðabók sína, sem hlotið hefur heitið The Poet trapped in a Caveman’s Body, en ferlið segir Sölvi vera þyrnum stráð. „Þetta gengur hægt þegar svona margt er í gangi í einu,“ segir Sölvi, „en þá verður maður að læra að vera þolin móður við sjálfan sig, sem er mjög erfitt fyrir mig ef ég á að vera alveg hreinskilinn.“ nDalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu flottar innréttingar í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.