Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2018, Blaðsíða 58
58 LÍFSSTÍLL 12. október 2018
Þ
að hefur ekki verið mik-
il hattamenning á Íslandi.
Konur eru loks farnar að
þora að ganga með hatt.
Síðustu áratugina höfum við
verið svo miklir bændur og ekki
þorað að flíka öðruvísi klæðn-
aði. Síðustu ár hefur þetta verið
að breytast. Nú erum við minni
bændur og meiri heimsborgar-
ar.“
Þetta segir Júlía Helgadóttir
klæðskæri sem hóf störf í kven-
fatabúð Kormáks og Skjaldar fyrr
á árinu. Hún hefur sjálf hannað
föt og rekið vefverslun. Hún sett-
ist niður með blaðamanni í versl-
uninni til að ræða um kventísk-
una, rekstur í miðbænum og
af hverju konur eigi að vera
óhræddar við að setja upp hatt
og klæða sig upp fyrir veiði eða
útivistina.
Herrafataverzlun Kormáks &
Skjaldar við Laugaveg sló í gegn
fyrir margt löngu. Ákveðið var að
opna útibú við Skólavörðustíg.
Fyrst í stað voru fötin að mestu
ætluð karlmönnum en eitthvað
var til af fötum fyrir konur. Nú
hefur dæmið snúist algjörlega
við. Í versluninni er eingöngu að
finna fatnað fyrir konur.
Skemmtilegra að vera fín í
veiðinni
Í gegnum tíðina hefur þótt fínt að
klæðast fatnaði frá þeim félögum
Kormáki Geirharðssyni og Skildi
Sigurjónssyni. Þeir hafa mark-
aðssett sig á nokkuð snjallan hátt
og staðið fyrir árlegum tísku-
sýningum svo dæmi sé tekið.
Þeir reka einnig Ölstofuna en
þar er ekki spiluð tónlist og eiga
þeir stóran hóp af fastakúnnum
sem koma til að setjast niður
og spjalla um heimsins gagn og
nauðsynjar. Margir ráku upp stór
augu þegar fréttist að þeir félagar
hefðu opnað verslun eingöngu
fyrir konur. En Júlía kann skýr-
ingu á því.
„Konurnar, þegar þær voru að
velja föt á mennina sína, þá gerð-
ist það oft að þær voru spyrja
hvort ekki væri eitthvað til á þær.
Skjöldur og Kormákur ákváðu
því að taka áhættuna.“
Boðið er upp á vörur frá MJM,
Walker Slater og Christy’s. Júl-
ía segir að hattarnir frá Christy’s
hafi rokið út. Hún segir að hatta-
sala í þeirra búð og öðrum hafi
vaxið mikið. „Konur eru orðnar
djarfari í klæðaburði og hér hafa
tvídhattar og barðastórir hattar
rokið út. Ég held að allar verslan-
ir sem selja hatta finni fyrir aukn-
ingu í sölu á þessari vöru. Búðin
okkar er ung og ekki allir sem vita
af henni, en það er ánægjulegt að
fylgjast með konum þegar þær
koma hér í fyrsta sinn, þegar þær
átta sig á að boðið sé upp á vörur
fyrir konur, í sama gæðaflokki og
fyrir karlana niðri á Laugavegi.“
Þora konur að ganga í þessum
fötum og er hægt að klæðast þeim
dagsdaglega?
„Við bjóðum að sjálfsögðu
upp á fínni föt en svo erum við
með föt sem henta fullkomlega
í veiði eða útivist. Það er miklu
skemmtilegra að vera í smekk-
legum fötum í veiði. Og að vera
smart í sínu daglega lífi, það
erum við.“
Tilraunamennska sem var
tekið fagnandi
Tvíd hefur haft yfir sér yfirbragð
fágunar og jafnvel kvenleika
og hafa kunnáttusamir stund-
um parað saman tvídjakka og til
dæmis gallabuxur eða bætt við
höttum og treflum og fetlingum
og þannig náð að fanga hvers-
dagslegt yfirbragð.
Kormákur og Skjöldur eru í
viðskiptum við Walker Slater í
Skotlandi. Fyrirtækið sérhæfir
sig í tvídfatnaði og sló fyrst í gegn
í Skotlandi. Nú hafa þeir opn-
að búðir víðs vegar um Bretland,
í Kanada og Japan og stefna á
Bandaríkin.
„Þeir sérhæfa sig í tvídfatnaði
og velja efnið vel. Það er klassískt
og sniðin hafa slegið í gegn. Þeir
byrjuðu úti í Skotlandi með sína
línu af þeirri einföldu ástæðu
að þeim þótti ekki nægilega fal-
legt tvíd í boði, það sem var fyrir
var gamaldags og svo virtist sem
enginn þorði að taka áhættu
eða leika sér með formið. En til-
raunamennsku þeirra var tekið
fagnandi. Til dæmis hafa Emmu-
jakkarnir, sem við bjóðum kon-
um upp á, rokið út og við höfum
ekki undan að panta. Einnig lát-
um við sérsauma fyrir okkur, þá
sauma þeir fyrir okkur en nýta
okkar snið. Að auki ætla þeir að
hjálpa okkur með hestalínu í vor.“
En hvernig gengur að reka búð
við Skólavörðustíg? Væri ekki
betra að vera við Laugaveg eða í
verslunarmiðstöðvunum?
„Það væri sjálfsagt betra. En
þetta hefur verið að vaxa hjá
okkur. Túristarnir koma líka
mikið við þegar þeir sjá útstill-
ingarnar. En ætli þetta sé ekki
svipað og með annað sem Skjöld-
ur og Kormákur hafa tekið sér fyr-
ir hendur. Við höfum eignast okk-
ar fastakúnna og svo bætist smám
saman við í þann hóp,“ segir Júlía
og bætir við að skemmtilegast við
starfið sé að ræða við kúnnana.
„Flestir frá Bandaríkjunum
eru miður sín yfir Trump og gráta
yfir honum hjá okkur á meðan
Rússar eru flestir yfir sig stolt-
ir af Pútín. Mórallinn fer dálítið
eftir því hvað er að gerast í hverju
þjóðfélagi fyrir sig. En búðin er
nánast eins og félagsmiðstöð og
stundum er boðið upp á kaffi.
Það er ekki til skemmtilegra
starf.“ n
„Nú erum
við minni
bændur og meiri
heimsborgarar
Erum minni bændur og
meiri heimsborgarar
n Konur þora loks að ganga með hatt n Félagsmiðstöðin á Skólavörðustíg n Tvíd slær í gegn