Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 8
8 21. desember 2018FRÉTTIR K lámsíðan Pornhub er í hópi vinsælustu vef- síðna heims þó að fáir viðurkenni opinberlega að þeir skoði efnið, rúmlega 4,8 milljónir klámmyndbanda, sem þar er í boði. Alls voru heimsóknir á síðuna meira en 33 milljarðar á síðasta ár sem þýðir að daglegar heimsóknir voru yfir 90 milljónir á heims- vísu. Í lok hvers árs tekur Porn- hub saman áhugaverða töl- fræði ársins fyrir heiminn og sökk ritstjórn DV það lágt að óska eftir sérstöku yfirliti fyr- ir Ísland. Starfsmenn klámsíð- unnar voru boðnir og búnir til þess og í skriflegu svari til DV segir fjölmiðlafulltrúinn Chris Jackson: „Við getum staðfest að Íslendingar skoða mjög mikið af klámi. Miðað við höfðatölu þá er Ísland í þriðja sæti í heimin- um, rétt á eftir Bandaríkjunum og Kanada. Ísland er sjónarmun á undan Bretlandi sem er í 4. sæti.“ Íslendingar leita í ræturnar Það leitarorð sem Íslendingar leita mest að á Pornhub bendir til þess að Íslendingar séu heima- kærir með afbrigðum. Það er ein- faldlega orðið „Iceland“ og því má beinlínis fullyrða að Íslendingar séu einstaklega áhugasamir um bólfarir samlanda sinna. Heimild- ir herma að lítið sé í boði sé leit- að eftir því orði en ritstjórn DV myndi að sjálfsögðu aldrei leggj- ast svo lágt að leita. Þá er orðið „Icelandic“ í sjöunda sæti og sjálfreist níðstöng íslenskra karl- manna og lesbía nær svo há- marki því „Icelandic girl“ er í átt- unda sæti. „Lesbian“ er næstvinsælasta leitarorð Íslendinga og í þriðja sæti er „Fortnite“ sem vekur upp grunsemdir um óhóflega klám- notkun íslenskra ungmenna. Þá vekur athygli að leitarorðið „trans“ rýkur upp listann hjá landanum en tíðni leitar jókst um 411% á árinu. Flestir hugs- andi menn hljóta að falla í trans yfir slíkum vexti. Til samanburð- ar hafði heimurinn lítinn áhuga á íslensku klámefni en vinsælasta leitarorð heimsins var „Lesbian“ sem er í takt við áhuga Íslendinga. Í öðru sæti er „hentai“, „milf“ í þriðja sæti, „stepmom“ í því fjórða og „japanese“ í fimmta sæti sem er að einhverju leyti á skjön við áhuga Íslendinga. Heimildir DV herma að klámmyndböndum á Pornhub sé skipt í margs konar flokka. Vinsælustu flokkarnir á heimsvísu eru „Lesbian“, „Japanese“, „Milf“, „Ebony“ og „Hentai“. Áhugi Íslendinga liggur þó í myrk- ari skúmaskotum því „Anal“ er sá flokkur sem íslenskir klámneytendur skoða mest. Almennt er áhugi Íslendinga á þvottahúsinu 91% meiri en hjá öðrum þjóðum. Íslenskar konur áhuga- samar um klám Hlutfall kvenna sem skoða Pornhub er óvenju hátt á Ís- landi miðað við aðrar þjóð- ir. Um 34% íslenskra not- enda eru kvenkyns en 66% karlkyns samkvæmt skýrslu Pornhub. Aðeins Filipps- eyjar (62%–38%), Brasilía (35%–65%) og Suður-Afríka (35%–65%) eru með hærra hlutfall kvenna sem klámneytenda. Meðalheimsóknartími á Porn- hub er 10 mínútur og 13 sekúndur í hvert skipti. Filippseyingar dvelja lengst á síðunni eða í 13 mínútur og 50 sekúndur í hvert skipti. Ís- lendingar eru undir meðaltalinu en meðalheimsókn Íslendings tekur 9 mínútur og 39 sekúndur. Ekki verður fullyrt um hvort það sé dæmi um dapurt kynferðislegt út- hald eða markvissa tímastjórnun. Vinsælasta klámmyndaleik- kona heims árið 2018 samkvæmt leitarvélum Pornhub var Stormy Daniels, sem vakti heimsathygli vegna tengsla sinna við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Í öðru sæti var Mia Khalifa og Riley Reid var í því þriðja. Lana Rhoades var síðan í fjórða sæti og Brandi Love í því fimmta. Íslendingar hafa greinilega lítinn áhuga á bandarískum stjórnmálum því Stormy var ekki í efstu sætum . Vinsælasta klámmyndaleik- kona Íslendinga var Peta Jensen, Mia Khalifa í öðru sæti, Sarah Banks í því þriðja, Kimmy Granger í fjórða sæti og Dillion Harper í fimmta sæti. n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt „VIÐ GETUM STAÐFEST AÐ ÍSLENDINGAR HORFA MJÖG MIKIÐ Á KLÁM“ n Ísland er í þriðja sæti yfir klámáhorf í heiminum n Óvenjuhátt hlutfall kvenna horfir á klám hérlendis samkvæmt upplýsingum frá Pornhub Klámssíðan Pornhub er ein vinsælasta vefsíða heims. Íslendingar eru þar afar virkir notendur. Sarah Banks Dillion Harper Peta Jensen Kimmy Granger

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.