Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 8
8 21. desember 2018FRÉTTIR
K
lámsíðan Pornhub er
í hópi vinsælustu vef-
síðna heims þó að fáir
viðurkenni opinberlega
að þeir skoði efnið, rúmlega
4,8 milljónir klámmyndbanda,
sem þar er í boði. Alls voru
heimsóknir á síðuna meira en
33 milljarðar á síðasta ár sem
þýðir að daglegar heimsóknir
voru yfir 90 milljónir á heims-
vísu.
Í lok hvers árs tekur Porn-
hub saman áhugaverða töl-
fræði ársins fyrir heiminn og
sökk ritstjórn DV það lágt að
óska eftir sérstöku yfirliti fyr-
ir Ísland. Starfsmenn klámsíð-
unnar voru boðnir og búnir til
þess og í skriflegu svari til DV
segir fjölmiðlafulltrúinn Chris
Jackson: „Við getum staðfest að
Íslendingar skoða mjög mikið
af klámi. Miðað við höfðatölu þá
er Ísland í þriðja sæti í heimin-
um, rétt á eftir Bandaríkjunum
og Kanada. Ísland er sjónarmun á
undan Bretlandi sem er í 4. sæti.“
Íslendingar leita í ræturnar
Það leitarorð sem Íslendingar
leita mest að á Pornhub bendir
til þess að Íslendingar séu heima-
kærir með afbrigðum. Það er ein-
faldlega orðið „Iceland“ og því má
beinlínis fullyrða að Íslendingar
séu einstaklega áhugasamir um
bólfarir samlanda sinna. Heimild-
ir herma að lítið sé í boði sé leit-
að eftir því orði en ritstjórn DV
myndi að sjálfsögðu aldrei leggj-
ast svo lágt að leita. Þá er orðið
„Icelandic“ í sjöunda sæti og
sjálfreist níðstöng íslenskra karl-
manna og lesbía nær svo há-
marki því „Icelandic girl“ er í átt-
unda sæti.
„Lesbian“ er næstvinsælasta
leitarorð Íslendinga og í þriðja
sæti er „Fortnite“ sem vekur upp
grunsemdir um óhóflega klám-
notkun íslenskra ungmenna.
Þá vekur athygli að leitarorðið
„trans“ rýkur upp listann hjá
landanum en tíðni leitar jókst
um 411% á árinu. Flestir hugs-
andi menn hljóta að falla í trans
yfir slíkum vexti. Til samanburð-
ar hafði heimurinn lítinn áhuga
á íslensku klámefni en vinsælasta
leitarorð heimsins var „Lesbian“
sem er í takt við áhuga Íslendinga.
Í öðru sæti er „hentai“, „milf“ í
þriðja sæti, „stepmom“ í því fjórða
og „japanese“ í fimmta sæti sem er
að einhverju leyti á skjön
við áhuga Íslendinga.
Heimildir DV herma
að klámmyndböndum á
Pornhub sé skipt í margs
konar flokka. Vinsælustu
flokkarnir á heimsvísu eru
„Lesbian“, „Japanese“, „Milf“,
„Ebony“ og „Hentai“. Áhugi
Íslendinga liggur þó í myrk-
ari skúmaskotum því „Anal“
er sá flokkur sem íslenskir
klámneytendur skoða mest.
Almennt er áhugi Íslendinga
á þvottahúsinu 91% meiri en
hjá öðrum þjóðum.
Íslenskar konur áhuga-
samar um klám
Hlutfall kvenna sem skoða
Pornhub er óvenju hátt á Ís-
landi miðað við aðrar þjóð-
ir. Um 34% íslenskra not-
enda eru kvenkyns en 66%
karlkyns samkvæmt skýrslu
Pornhub. Aðeins Filipps-
eyjar (62%–38%), Brasilía
(35%–65%) og Suður-Afríka
(35%–65%) eru með hærra hlutfall
kvenna sem klámneytenda.
Meðalheimsóknartími á Porn-
hub er 10 mínútur og 13 sekúndur
í hvert skipti. Filippseyingar dvelja
lengst á síðunni eða í 13 mínútur
og 50 sekúndur í hvert skipti. Ís-
lendingar eru undir meðaltalinu
en meðalheimsókn Íslendings
tekur 9 mínútur og 39 sekúndur.
Ekki verður fullyrt um hvort það sé
dæmi um dapurt kynferðislegt út-
hald eða markvissa tímastjórnun.
Vinsælasta klámmyndaleik-
kona heims árið 2018 samkvæmt
leitarvélum Pornhub var Stormy
Daniels, sem vakti heimsathygli
vegna tengsla sinna við Donald
Trump, forseta Bandaríkjanna. Í
öðru sæti var Mia Khalifa og Riley
Reid var í því þriðja. Lana Rhoades
var síðan í fjórða sæti og Brandi
Love í því fimmta. Íslendingar
hafa greinilega lítinn áhuga á
bandarískum stjórnmálum því
Stormy var ekki í efstu sætum .
Vinsælasta klámmyndaleik-
kona Íslendinga var Peta Jensen,
Mia Khalifa í öðru sæti, Sarah
Banks í því þriðja, Kimmy Granger
í fjórða sæti og Dillion Harper í
fimmta sæti. n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
„VIÐ GETUM STAÐFEST AÐ ÍSLENDINGAR
HORFA MJÖG MIKIÐ Á KLÁM“
n Ísland er í þriðja sæti yfir klámáhorf í heiminum n Óvenjuhátt hlutfall
kvenna horfir á klám hérlendis samkvæmt upplýsingum frá Pornhub
Klámssíðan Pornhub er ein vinsælasta vefsíða
heims. Íslendingar eru þar afar virkir notendur.
Sarah Banks
Dillion Harper
Peta Jensen
Kimmy Granger