Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Qupperneq 22
22 MATUR 21. desember 2018
Hefðirnar, sko. En síðan smakka
þau og verða ánægð,“ segir Krist-
inn og bætir við að það sé fínt að
jólin séu bara einu sinni á ári, mat-
arlega séð.
„Ég hef ekkert á móti söltuðu
eða reyktu kjöti – það er alveg
æðislegt. En þetta er fullmikið af
því góða á mjög stuttum tíma. Ég
flyt inn til landsins fjögur kíló af
vatnsbjúg þegar ég fer aftur heim
til Belgíu þannig að ég er alltaf
fjórum kílóum þyngri en þegar ég
fór til Íslands,“ segir Kristinn og
brosir.
Ný sería tekin upp á Reykjanesi
Eins og áður segir tekur Kristinn
upp þættina SOÐ á vinnustofu
sinni í Belgíu. Hingað til hefur
hann séð um allt sjálfur – tekið
upp, klippt og sent til Sjónvarps
Símans, en allt það ferli segir hann
taka um þrjá vinnudaga fyrir einn
þátt. Í vor verður þó breyting á
þegar ferðasería um Reykjanes
lítur dagsins ljós. Þá vinnur Krist-
inn með tökumanni, en segir að
þættirnir snúist ekki endilega um
matarmenningu á Reykjanesi.
„Þetta er aðallega ég úti í nátt-
úrunni að elda eitthvað og reyna
að tengja það Íslandi, frekar en
Reykjanesi sérstaklega. Ég er með
myndatökumann með mér þannig
að þetta er eitt skref í áttina að
sjónvarpsgerð frekar en vlog-gerð.
Ég lifi yfirleitt í núinu og stefni á að
halda áfram að gera það sem ég vil
gera. Það er greinilegt að fólk vill
horfa á SOÐ og ég er með ýmsar
pælingar um hvert mig langar að
fara með það. Ég held að ég muni
samt alltaf halda í þennan grunn
sem ég er búinn að búa til,“ segir
Kristinn. Þessi grunnur felst í raun
í því að gera matreiðslu einfalda
og um leið gera grín að sér sjálfum
og óförum sínum í eldhúsinu.
„Ég held að hugmyndin hafi
upprunalega kviknað því ég
var orðinn þreyttur á venjuleg-
um kokkaþáttum. Ég hef horft á
kokkaþætti síðan Siggi Hall var og
hét á Stöð 2 í gamla daga og kom
alltaf heim úr skólanum og horfði
á Sigga Hall. Í þessum kokkaþátt-
um er svo mikill hátíðleiki. Það
er allt svo fullkomið – búið að
skera laukinn og búið að vinna
alla undirbúningsvinnuna. En að
vinna í eldhúsi er ekki svo full-
komið. Það klúðrast alltaf eitthvað
eða maður gleymir einhverju á
eldavélinni. Mér fannst vanta það.
Mig langar að fólk horfi og hugsi:
Ég get þetta líka fyrst þessi vitleys-
ingur getur gert þetta,“ segir Krist-
inn og hlær. „Mér finnst gaman að
gera grín að sjálfum mér. Ég hef
gaman af því að klikka. Stundum
þarf ég að klippa eitthvað út því
það er of mikið. Þá hlæ ég oft upp-
hátt þegar ég er að klippa þáttinn.
Sit kannski á kaffihúsi hlæjandi að
sjálfum mér, átta mig svo á að fólk
er að horfa á mig að horfa á mig að
hlæja að mér. Það er fáránleg til-
finning.“
Var sagt að verða ekki kokkur
En hvaðan kemur þessi óbilandi
ást á mat og matargerð?
„Þegar ég hugsa til baka þá sótti
ég mikið í eldhúsið frá unga aldri.
Ég ætlaði mér alltaf að verða kokk-
ur. Einn eldri vinur minn, sem
var kokkur, sagði við mig að ég
ætti ekki að verða kokkur út af fá-
ránlegum vinnutíma. Þannig að
ég varð myndlistarmaður – sem
býður upp á enn verri vinnutíma
þannig að ég hefði alveg eins geta
orðið kokkur,“ segir Kristinn og
hlær, sáttur við sitt í dag.
„Auðvitað er ekkert of seint að
verða kokkur en ég hef unnið í eld-
húsum og á veitingastöðum og
það er gaman, en ekki nógu gam-
an. SOÐ er skemmtilegra því ég er
minn eigin herra. Þótt maður ætti
sinn eigin veitingastað þá er mað-
ur aldrei sinn eigin herra, heldur
herra þeirra sem koma á staðinn
til að borða.“
Dreymir um að ferðast um
Bandaríkin á sendibíl
SOÐ á dyggan aðdáendahóp sem
stækkar stöðugt. Kristinn á þó ekki
mikil samskipti við áhorfendur
þáttanna, þótt hann glaður vildi.
„Það er lítið um að fólk sé að
biðja um sérstaka uppskrift. Það
hefur komið fyrir, en almennt
er ég látinn í friði. Fólk má alveg
þrusa meira í athugasemdakerfið,
heimta og vera frekt. Svo lengi sem
það er enginn dónaskapur,“ segir
hann.
Áður en ég kveð Kristin verð ég
að spyrja hvaða lönd hann dreym-
ir um að heimsækja til að svala
matarævintýraþránni.
„Það eru nokkur, til dæmis
Kórea. Ég væri þvílíkt til í að skoða
matarmenninguna þar betur. Ég
hef farið til Ítalíu en það er alltaf
gaman að fara þangað bara út af
matnum. Ég væri líka rosalega
til í að fara til Vestur-Afríku, bara
af einskærri forvitni um matar-
menninguna. Það er eitthvað
sem kallar mig þangað. Banda-
ríkin eru líka spennandi. Ég væri
til í að ferðast um öll Bandaríkin
á einhverjum sendibíl. Þannig að
ef Pálmi hjá Símanum er að lesa
þetta þá má hann punkta þetta
niður hjá sér.“ n
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
„Svo eru Ora grænar
baunir að ég held
verstu grænu baunir sem
til eru. Þetta er alveg ótrú-
leg dósamatarárátta.
Janus og Kristinn við tökur á SOÐ á Reykjanesi.
Að brugga bjór með Árna Theodór Long hjá BORG Brugghúsi.