Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 24
24 FÓLK - VIÐTAL 21. desember 2018
Hápunkturinn að
leiða KR í Liverpool
n Skrapp á þing fyrir gamla fólkið n Með Bjarna Ben skömmu fyrir
brunann n Stormaði úr Sjálfstæðisflokknum
E
llert B. Schram kom nýver-
ið inn á þing sem varamað-
ur, 79 ára að aldri. Hann
hefur verið inni og úti af
þingi nú í tæpa hálfa öld sem er
met. Fyrst fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og síðan Samfylkinguna en
um tíma var hann í raun óháður.
Ellert er elsti Íslendingurinn sem
hefur setið á þingi. Ellert ritstýrði
DV ásamt Jónasi Kristjánssyni á
stórveldistíma blaðsins og saman
leiddu þeir baráttuna fyrir frjáls-
um og óháðum fjölmiðlum. Ellert
komst fyrst í sviðsljósið sem fyrir-
liði og máttarstólpi gullaldarliðs
KR og íslenska landsliðsins. Síð-
ar leiddi hann bæði Knattspyrnu-
sambandið og Íþróttasambandið.
Ellert er lögfræðingur frá HÍ og
starfaði á árunum 1966–1971
sem skrifstofustjóri Borgarverk-
fræðings í Rvík. Ellert er ekki
hættur að láta gott af sér leiða því í
dag er hann formaður Félags eldri
borgara. DV ræddi við Ellert um
það sem hæst ber á þessum langa
og fjölbreytta ferli.
Jólainnlit á þingi
Ellert hefur nýlokið viku þingsetu.
Sjálfur kallar hann þetta óvænt jóla-
innlit hjá sér. Hann náði að komast
tvisvar í púlt og minna þingheim á
kröpp kjör eldri borgara. Það er mál-
efni sem hann hefur brunnið fyrir
eftir að hann tók við formennsku í
Félagi eldri borgara árið 2017. Hann
segist ekki hafa átt von á að fá þetta
tækifæri (að setjast inn á þing) enda
voru tveir aðrir á undan honum í
röðinni sem varaþingmenn.
Ellert kom inn sem varamaður
fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson sem tók
sér leyfi vegna ásökunar um kyn-
ferðislega áreitni. Á sama tíma hafa
borist fregnir af því að þingið sé illa
starfhæft vegna máls sexmenning-
anna á barnum Klaustri. Ellert seg-
ir andrúmsloftið á Alþingi ekki vera
jafn slæmt og af er látið.
„Ég varð ekki mikið var við þá
ólgu sem talað er um. Þvert á móti
þá verð ég að viðurkenna að það var
gaman og merkileg uppákoma að
detta svona inn á þing og mér fannst
andrúmsloftið vera nokkuð gott.
Ég get samt trúað því að mörgum
þeirra sem eru í þinghúsinu finnist
þetta óþægilegt. Ég tók ekki sæti hjá
Samfylkingunni með það fyrir aug-
um að ná inn heldur til að styrkja
flokkinn og minna á gamla fólkið.
Ég sá það sem gott tækifæri fyrir mig
sem formann eldri borgara að kom-
ast í ræðustólinn á Alþingi, kalla eft-
ir upplýsingum og tala máli elstu
kynslóðarinnar.“
Hefur þú engar áhyggjur af að
stjórnarandstaðan geti illa sinnt
aðhaldshlutverki sínu?
„Nei, ef þú ert að tala um
Klaustrið, þá tel ég það eigi ekki að
bitna á öllum flokkum sem eiga full-
trúa á þingi. Það er ekki hægt að
dæma allt Alþingi og þá sem þar
sitja fyrir þessa ógæfu sem sumir
hafa kallað yfir sig. Þrátt fyrir allt er
þetta valdamesta samkoman, sem
við verðum að hlusta og taka mark
á. Það er ekki mitt mat að svona
atburðir ráði ferðinni þarna inni.
Hvorki hjá stjórnarflokkunum né
minnihlutaflokkunum.“
Vantar fleiri eldri borgara á þing
Ellert segir að staða eldri borgara
á Íslandi sé mjög misjöfn. Margir
hafa í sig og á og njóta mikilla lífs-
gæða en aðrir standa mjög höllum
fæti. Hann segir Félag eldri borg-
ara sinna báðum hópunum
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
MYNDIR: HANNA/DV