Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 28
28 FÓLK - VIÐTAL 21. desember 2018
alla leiki. Í þessu liði voru ekki að-
eins frábærir knattspyrnumenn
heldur sterkir karakterar. Margir
af þessum mönnum eru látnir, en
við, sem eftir erum, erum góðir
vinir og hittumst við og við.“
Á þessum tíma spilaði KR fyrst
íslenskra liða í Evrópukeppni.
Ellert segir að strákarnir í liðinu
hafi þvingað þá ákvörðun í gegn
hjá Knattspyrnusambandinu, árið
1964. Þar mættu þeir enska liðinu
Liverpool, heima og úti.
„Við töpuðum báðum leikjun-
um en þetta voru stórir viðburðir.
Hérna í Laugardalnum var upp-
selt. Síðan héldum við út til Liver-
pool. Það er mitt besta afrek á ferl-
inum að vera fyrirliði KR og ganga
fyrstur út á Anfield Road fyrir
framan 45 þúsund manns. Ég mun
aldrei gleyma þessari stund. Við
töldum okkur vera komna meðal
þeirra allra bestu. Sem við sannar-
lega vorum.“
Voru einhverjir peningar í fót-
boltanum á þessum tíma?
„Nei, það var aldrei til króna
fyrir eitt né neitt. Við fórum með
búningana okkar heim til að þvo
þá,“ segir Ellert og brosir.
Lengi framan af spilaði Ellert
vinstra megin og svo á miðjunni.
Síðustu árin færðist hann aftur í
miðvörðinn og að eigin sögn var
hann bestur þar. Þegar Ellert hætti
að spila 1971, nýkjörinn á þing, fór
KR liðinu að ganga heldur brösug-
lega. Þá sneri hann aftur til þess að
bjarga liðinu frá falli og var kosinn
knattspyrnumaður ársins.
Spilaðir þú hinn alræmda 14-2
leik við Dani?
„Nei, ég var svo heppinn að
vera heima þegar þessi leikur fór
fram. Þá var ég nýorðinn skrif-
stofustjóri hjá Reykjavíkurborg og
gaf ekki kost á mér í þennan leik.
Þeir vildu heldur ekki hafa mig, því
þeir voru að skipta mönnum út og
prófa nýja hluti.“
Þremur árum síðar, árið 1970,
komu Danirnir hingað til Íslands
og léku landsleik í Laugardaln-
um. Þá var Ellert fyrirliði og aftasti
maður í vörn og leiknum lauk með
0-0 jafntefli.
„Við hefðum átt að vinna hann
og en náðum samt hefndum,“
segir Ellert ákveðinn.
Þú hefur verið lengi starfandi
innan knattspyrnuhreyfingarinn-
ar. Áttir þú von á að Ísland gæti
náð jafn langt, bæði í karla- og
kvennaflokki, eins og raun ber
vitni?
„Nei. Mér hefði aldrei dottið
það í hug að við kæmumst alla
leið í úrslitakeppni. Hér áður fyrr
vorum við vissulega góðir, en við
vorum áhugamenn og gerðum
okkur grein fyrir því að við mynd-
um aldrei komast í efstu röð. Þessi
árangur núna hlýtur að vera ein-
hvers konar heimsmet, bæði hjá
stúlkunum og piltunum. Ég er
auðvitað mjög hreykinn af þeim.
Það er ekki víst að þetta gerist
nokkurn tímann aftur. En í dag
getum við borið höfuðið hátt og
sagst vera með þeim bestu. Sem
við erum.“
Hvergi nærri hættur
Ellert hefur á langri ævi náð ár-
angri á mörgum sviðum og átt
gæfuríkan feril. Hann er þó fyrst
og fremst fjölskyldumaður og
hans mesta stolt í lífinu eru börnin
og barnabörnin.
„Ég er þakklátur fyrir allt og
hef sloppið nokkuð vel frá því að
vera leiðinlegur og að gera eitt-
hvað af mér. Ég hef verið heppinn
með vini og störf, en er ekki nærri
hættur að lifa lífinu lifandi.“
Hann er við hestaheilsu og vel
á sig kominn þrátt fyrir aldurinn.
Þegar við náðum tali af Ellerti var
hann nýkominn úr líkamsrækt.
„Ávallt hef ég hugsað vel um
heilsuna, bæði líkamlega og and-
lega. Ég hreyfi mig og nýt góðs af
því að hafa verið í íþróttum. Ég
hef nóg að gera við að sinna fjöl-
skyldunni og starfið í Félagi eldri
borgara hefur gefið mér nýtt líf.“ n
Óskaskrín er gjöfin sem höfðar til allra. Þú getur valið úr fjölmörgum upplifunum
handa þeim sem þér þykir vænt um og fært þeim ógleymanlegar minningar um jólin.
Það er auðvelt að gleðja með Óskaskríni.
Sími 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
FULLKOMIN JÓLAGJÖF FYRIR HVERN SEM ER
„Ekki hægt að dæma
allt Alþingi og þá sem
þar sitja fyrir þessa ógæfu
sem sumir hafa kallað yfir sig
Bjarni og Ellert skömmu
fyrir brunann
Morgunblaðið 30. júní 1970
Sameining DV 26. nóvember 1981