Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Side 33
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
URTA ISLANDICA:
Sælkeravörur úr íslenskri náttúru
Urta Islandica er spennandi nýtt fyrirtæki með úrval af áhuga-verðum vörum sem gaman
er að prófa sig áfram með. „Það
nýjasta hjá okkur núna er sýróp sem
við framleiðum úr íslenskum jarðsjó.
Sýrópið má nota í ýmsa matargerð
og eins og allt sem við framleiðum
hér hjá Urtu, hentar það sérstaklega
vel í klassíska íslenska matseld. Okkur
finnst fátt skemmtilegra en að taka
hefðbundnar íslenskar matvörur,
snúa aðeins upp á þær og endur-
hugsa,“ segir Guðbjörg Lára Sigurðar-
dóttir, markaðsstjóri Urtu.
Fyrirtæki í sífelldri þróun
Urta hefur þróast mjög í kringum
ferðamannastrauminn en undanfarið
hefur fyrirtækið verið að vinna sig í
átt að útflutningi og er það næsta
skref. „Við sérhæfum okkur í fram-
leiðslu á matargjafavöru úr íslenskum
jurtum og berjum. Síðan framleiðum
við íslensk jurtakryddsölt þar sem
við blöndum berjunum og jurtun-
um við saltið. Þetta er allt handtínt
og pakkað. Við erum sem sagt með
jurtakryddsölt, sýróp, sultur, kex og
jurtate – og nær vörulínan okkar
yfir 200 vörutegundir,“ segir Lára.
Hún segir frá því að sýrópið frá Urta
Islandica sé mjög vinsælt í t.d. kokteil-
gerð á veitingastöðum og kaffi eða
eftirréttagerð.
Fæst um land allt
Urta Islandica er með starfsstöðvar
á þremur stöðum og selur vörur sínar
í verslanir um allt land. Auk þess er
vefverslun á síðunni urta.is þar sem
jafnframt má fræðast um fyrirtækið
og vörurnar. Urta Islandica er ekta
fjölskyldufyrirtæki en stofnendur eru
hjónin Þóra Þórisdóttir og Sigurður
Magnússon. Á heimili þeirra hjóna
að Austurgötu 47 í Hafnarfirði var
fyrirtækið stofnað og þar er ennþá
tilraunaeldhús, skrifstofa og verslun.
Lára, dóttir þeirra, sér um markaðs-
mál og hönnun en bræður hennar
tveir sjá um vélar og framleiðsluna.
Þá eru einnig fimm aðrir starfsmenn í
Urta-fjölskyldunni.
„Við erum með flotta framleiðslu-
aðstöðu að Básvegi 10 í Reykjanesbæ
og þar getur fólk fengið að horfa inn
í framleiðsluferlið jafnframt því að
skoða vöruúrvalið í verslun okkar á
staðnum. Verslunin og framleiðslan á
Básvegi gengur undir nafninu Sjó-
búð, en þar eru framleidd öll okkar
jurtakryddsölt, jurtasýróp, sultur og
þar erum við einnig með okkar eigin
borholu með íslenskum matvælavott-
uðum jarðsjó.“ Önnur framleiðslustöð
er síðan að Hafnarbraut 11 á Höfn í
Hornafirði, í gömlu sundlaug Horn-
firðinga, þar fer fram öll jurtavinnsla
og framleiðsla á jurtatei.
Nýjar og hentugar umbúðir
Margir þekkja saltið frá Urtu en nú er
hægt að fá það í hentugum nýjum
umbúðum með áfastri saltkvörn.
„Það hefur aldrei verið auðveldara
að strá þara-hvítlaukssaltinu okkar
á bökuðu kartöfluna eða, lakkríssalti
yfir súkkulaðibúðinginn,“ segir Lára.
„Nú er einnig hægt að fá jurtakrydd
Urtu í hrististaukum með strágöt-
um. Vinsælasta afurðin okkar er
jurtakryddsaltið, Black Lava salt, sem
fer einfaldlega vel með öllum mat
ásamt því að líta glæsilega út.“
Vörulínur Urtu eru fjölbreyttar og
það ættu allir geta fundið sitt uppá-
hald. Fyrirtækið er í stanslausri þróun
og búast má við spennandi nýjungum
frá því í framtíðinni.
Sjá nánar á urta.is
Facebook
Instagram
Netpóstur: urta@urta.is n
Ómengaður íslenskur jarðsjór
Girnilegt jurtakrydd
Girnilegt jurtate í fallegum pakkningum
Spennandi salt sem skemmtilegt er að
leika sér með í matargerðinni