Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 33
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ URTA ISLANDICA: Sælkeravörur úr íslenskri náttúru Urta Islandica er spennandi nýtt fyrirtæki með úrval af áhuga-verðum vörum sem gaman er að prófa sig áfram með. „Það nýjasta hjá okkur núna er sýróp sem við framleiðum úr íslenskum jarðsjó. Sýrópið má nota í ýmsa matargerð og eins og allt sem við framleiðum hér hjá Urtu, hentar það sérstaklega vel í klassíska íslenska matseld. Okkur finnst fátt skemmtilegra en að taka hefðbundnar íslenskar matvörur, snúa aðeins upp á þær og endur- hugsa,“ segir Guðbjörg Lára Sigurðar- dóttir, markaðsstjóri Urtu. Fyrirtæki í sífelldri þróun Urta hefur þróast mjög í kringum ferðamannastrauminn en undanfarið hefur fyrirtækið verið að vinna sig í átt að útflutningi og er það næsta skref. „Við sérhæfum okkur í fram- leiðslu á matargjafavöru úr íslenskum jurtum og berjum. Síðan framleiðum við íslensk jurtakryddsölt þar sem við blöndum berjunum og jurtun- um við saltið. Þetta er allt handtínt og pakkað. Við erum sem sagt með jurtakryddsölt, sýróp, sultur, kex og jurtate – og nær vörulínan okkar yfir 200 vörutegundir,“ segir Lára. Hún segir frá því að sýrópið frá Urta Islandica sé mjög vinsælt í t.d. kokteil- gerð á veitingastöðum og kaffi eða eftirréttagerð. Fæst um land allt Urta Islandica er með starfsstöðvar á þremur stöðum og selur vörur sínar í verslanir um allt land. Auk þess er vefverslun á síðunni urta.is þar sem jafnframt má fræðast um fyrirtækið og vörurnar. Urta Islandica er ekta fjölskyldufyrirtæki en stofnendur eru hjónin Þóra Þórisdóttir og Sigurður Magnússon. Á heimili þeirra hjóna að Austurgötu 47 í Hafnarfirði var fyrirtækið stofnað og þar er ennþá tilraunaeldhús, skrifstofa og verslun. Lára, dóttir þeirra, sér um markaðs- mál og hönnun en bræður hennar tveir sjá um vélar og framleiðsluna. Þá eru einnig fimm aðrir starfsmenn í Urta-fjölskyldunni. „Við erum með flotta framleiðslu- aðstöðu að Básvegi 10 í Reykjanesbæ og þar getur fólk fengið að horfa inn í framleiðsluferlið jafnframt því að skoða vöruúrvalið í verslun okkar á staðnum. Verslunin og framleiðslan á Básvegi gengur undir nafninu Sjó- búð, en þar eru framleidd öll okkar jurtakryddsölt, jurtasýróp, sultur og þar erum við einnig með okkar eigin borholu með íslenskum matvælavott- uðum jarðsjó.“ Önnur framleiðslustöð er síðan að Hafnarbraut 11 á Höfn í Hornafirði, í gömlu sundlaug Horn- firðinga, þar fer fram öll jurtavinnsla og framleiðsla á jurtatei. Nýjar og hentugar umbúðir Margir þekkja saltið frá Urtu en nú er hægt að fá það í hentugum nýjum umbúðum með áfastri saltkvörn. „Það hefur aldrei verið auðveldara að strá þara-hvítlaukssaltinu okkar á bökuðu kartöfluna eða, lakkríssalti yfir súkkulaðibúðinginn,“ segir Lára. „Nú er einnig hægt að fá jurtakrydd Urtu í hrististaukum með strágöt- um. Vinsælasta afurðin okkar er jurtakryddsaltið, Black Lava salt, sem fer einfaldlega vel með öllum mat ásamt því að líta glæsilega út.“ Vörulínur Urtu eru fjölbreyttar og það ættu allir geta fundið sitt uppá- hald. Fyrirtækið er í stanslausri þróun og búast má við spennandi nýjungum frá því í framtíðinni. Sjá nánar á urta.is Facebook Instagram Netpóstur: urta@urta.is n Ómengaður íslenskur jarðsjór Girnilegt jurtakrydd Girnilegt jurtate í fallegum pakkningum Spennandi salt sem skemmtilegt er að leika sér með í matargerðinni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.