Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Blaðsíða 43
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ Snooker & Poolstofan er rótgróið fyrirtæki og hefur verið í Lág-múla 5, Reykjavík síðan 1998. Á staðnum eru 18 poolborð og 4 snókerborð í mjög miklum gæðum sem eru bæði fyrir einstaklinga og hópa sem sækja staðinn. Hægt er að segja að Snooker & Poolstofan sé í lit þar sem appelsínu- liturinn er svolítið ráðandi í pool-saln- um og hefur það reynst mjög vel. „Starfsfólk mitt og ég reynum að hafa staðinn þannig að fólk geti komið og slappað af eftir erfiða daga eða bara til að skemmta sér og öðrum,“ segir Brynjar Valdimarsson, eigandi staðarins, og heldur áfram: „Frábær aðstaða er til að horfa á fótbolta og aðrar íþróttir þar sem við erum með 10 stóra skjávarpa, tvo 75 tommu flatskjái og 8 aðra flatskjái til að sjá um að allir geti fylgst með. Reglulega erum við með sérstakt Bolta-tilboð þar sem við bjóðum upp á enn meiri afslátt. Einnig er gríðarlega gott hljóðkerfi hjá okkur og við getum haft það á nokkrum mismunandi leikjum í einu. Við fáum marga fyrirtækjahópa og stór hluti af þeim hefur komið árlega til okkar í mörg ár, enda er þetta ansi ódýr skemmtun fyrir hópa. Hóparnir koma til að spila pool eða snooker, eða til að horfa saman á íþróttavið- burði.“ Öllum er velkomið að senda tölvu- póst á pool@pool.is til að fá tilboð fyrir hópinn sinn. Einnig er hægt að senda tölvupóst fyrir hópa til að fá tilboð í bjór og mat á meðan á íþróttaviðburðir standa yfir. „Það er mikið um að hópar komi til okkar enda er snooker eða pool frábær skemmtun fyrir hópa, vegna þess að þú þarft ekki að kunna neitt til að skemmta þér vel.“ „Við erum með Klúbb og félags- gjald í hann er 500 kr. fyrir árið, kortið veitir bæði afslátt af tímagjaldi og veitingum. Við reynum að vera eins ódýrir og hægt er, til dæmis kostar stór bjór 990 kr. í Klúbbnum og ham- borgari með frönskum og kokteilsósu aðeins 1.490.kr.“ segir Brynjar enn fremur. „Við erum með einstaklega góða hamborgara og seljum mikið af þeim, einnig bragðgóðar pítsur frá Italiano Pizzeria, þegar við erum með hópa þá getum við pantað frá þeim fyrir hópinn. Við höfum verið í rekstri í yfir 20 ár og höfum við haft það að leiðarljósi allan þann tíma að sinna okkar við- skiptavinum eins vel og við mögulega getum. Snooker & Poolstofan er þekkt fyrir einstaklega góða þjónustu og frábæra skemmtun eða eins og viðskiptavinir okkar segja: „Mér líður bara hvergi betur “ „Sjáumst hress og glöð út þetta ár sem og á nýju ári,“ segir Brynjar Valdimarsson að lokum. n SNOOKER & POOL: Gott verð, fínar veitingar og opið fram á nótt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.