Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Qupperneq 43
Þorláksmessa 21. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Snooker & Poolstofan er rótgróið fyrirtæki og hefur verið í Lág-múla 5, Reykjavík síðan 1998.
Á staðnum eru 18 poolborð og 4
snókerborð í mjög miklum gæðum
sem eru bæði fyrir einstaklinga og
hópa sem sækja staðinn.
Hægt er að segja að Snooker &
Poolstofan sé í lit þar sem appelsínu-
liturinn er svolítið ráðandi í pool-saln-
um og hefur það reynst mjög vel.
„Starfsfólk mitt og ég reynum að hafa
staðinn þannig að fólk geti komið
og slappað af eftir erfiða daga eða
bara til að skemmta sér og öðrum,“
segir Brynjar Valdimarsson, eigandi
staðarins, og heldur áfram:
„Frábær aðstaða er til að horfa á
fótbolta og aðrar íþróttir þar sem við
erum með 10 stóra skjávarpa, tvo 75
tommu flatskjái og 8 aðra flatskjái
til að sjá um að allir geti fylgst með.
Reglulega erum við með sérstakt
Bolta-tilboð þar sem við bjóðum upp
á enn meiri afslátt.
Einnig er gríðarlega gott hljóðkerfi
hjá okkur og við getum haft það á
nokkrum mismunandi leikjum í einu.
Við fáum marga fyrirtækjahópa og
stór hluti af þeim hefur komið árlega
til okkar í mörg ár, enda er þetta ansi
ódýr skemmtun fyrir hópa. Hóparnir
koma til að spila pool eða snooker,
eða til að horfa saman á íþróttavið-
burði.“
Öllum er velkomið að senda tölvu-
póst á pool@pool.is til að fá tilboð
fyrir hópinn sinn.
Einnig er hægt að senda tölvupóst
fyrir hópa til að fá tilboð í bjór og mat
á meðan á íþróttaviðburðir standa
yfir.
„Það er mikið um að hópar komi
til okkar enda er snooker eða pool
frábær skemmtun fyrir hópa, vegna
þess að þú þarft ekki að kunna neitt
til að skemmta þér vel.“
„Við erum með Klúbb og félags-
gjald í hann er 500 kr. fyrir árið, kortið
veitir bæði afslátt af tímagjaldi og
veitingum. Við reynum að vera eins
ódýrir og hægt er, til dæmis kostar
stór bjór 990 kr. í Klúbbnum og ham-
borgari með frönskum og kokteilsósu
aðeins 1.490.kr.“ segir Brynjar enn
fremur.
„Við erum með einstaklega góða
hamborgara og seljum mikið af þeim,
einnig bragðgóðar pítsur frá Italiano
Pizzeria, þegar við erum með hópa
þá getum við pantað frá þeim fyrir
hópinn.
Við höfum verið í rekstri í yfir 20 ár
og höfum við haft það að leiðarljósi
allan þann tíma að sinna okkar við-
skiptavinum eins vel og við mögulega
getum.
Snooker & Poolstofan er þekkt
fyrir einstaklega góða þjónustu og
frábæra skemmtun eða eins og
viðskiptavinir okkar segja: „Mér líður
bara hvergi betur “
„Sjáumst hress og glöð út þetta
ár sem og á nýju ári,“ segir Brynjar
Valdimarsson að lokum. n
SNOOKER & POOL:
Gott verð, fínar veitingar og
opið fram á nótt