Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Side 44
Þorláksmessa 21. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Betri bílakaup er fyrirtæki sem þjónustar almenning við kaup á bílum að utan og við flutning til
landsins. Með slíkum hætti fást bílarnir
á mun lægra verði en í gegnum bílaum-
boð. Á undanförnum tæpum tveimur
árum hefur Betri bílakaup flutt inn með
þessum hætti á annað þúsund gæða-
bíla fyrir ánægða kaupendur.
Í þessum hópi eru meðal annars
hátt í 500 bílar af gerðinni Mitsubis-
hi Outlander PHEV og fjölmargir af
tegundinni Volvo, ýmist í forpöntunum
á nýjum bílum eða innflutningi á lítið
keyrðum nýlegum bílum.
„Við sjáum um allt fyrir kaupandann,
frá a–ö. Kaupsamningurinn við erlenda
bílasölu er á nafni kaupandans en við
sjáum um alla pappírsvinnu og innflutn-
inginn. Eimskip flytur bílinn og hann er
tryggður alla leið. Þessi aðferð við bíla-
kaup tryggir kaupendum hagstæðara
verð en áður hefur þekkst. Einnig erum
við með www. betribilasalan.is sem er
netbílasala og getum við selt fyrir þig
gamla bílinn meðan sá nýi er á leiðinni,“
segir Brynjar Valdimarsson hjá Betri
bílakaupum.
Fyrirtækið er til húsa að Ármúla 4–6.
Að sögn Brynjars er allt kaupferlið hjá
Betri bílakaupum mjög gegnsætt og
þægilegt:
„Segjum að þú sért væntanleg-
ur kaupandi, þú ert að leita að bíl. Þú
segir okkur hvernig bíl þú vilt eignast og
við finnum hann fyrir þig. Við semjum
um verðið við erlenda bílasalann. Við
tökum fasta þóknun fyrir okkar þjónustu,
249.900 kr. með vsk. Þú millifærir pen-
ingana á erlendu bílasöluna. Við erum
með samning við Eimskip sem þú nýtir
þér. Þegar þú ert búinn að millifæra sjá-
um við um allt, flutninginn, skráum bílinn,
komum honum á númer og afhendum
þér hann hérna uppi í Ármúla 4.“
Mitsubishi Outlander PHEV
Gott úrval, sérstaklega hagstætt verð
og mikil gæði eru það sem viðskiptavinir
Betri bílakaupa uppskera. Mikil áhersla
er lögð á svokallaða græna bíla og segir
Brynjar þá vera um 90% af þeim bílum
sem viðskiptavinir kaupa í gegnum fyrir-
tækið. Er þá ýmist um að ræða raf- eða
blendingsbíla (hybrid bensín+rafmagn).
„Við bjóðum upp á hinn glænýja og
frábæra Mitsubishi Outlander PHEV,
en hann hentar einstaklega vel íslensk-
um aðstæðum. Þessir bílar hafa verið
gríðarlega vinsælir á Íslandi enda mjög
ríkulega útbúnir og með langa ábyrgð,
það er 5 ára almennri ábyrgð og 8 ára
rafhlöðuábyrgð. Framleiðsluárið 2019
fékk ýmsar stórgóðar viðbætur, sem
dæmi lengri drægni á rafmagni, hljóð-
látari bensínmótor, meira akstursöryggi
auk þess sem bíllinn er sparneytnari
og kraftmeiri. Verð er frá 4.299.000 kr.
miðað við gengi 137 kr. á EUR.
Nýr Volvo 2019
„Einnig getum við pantað 2019 Volvo
þar sem þú færð að setja bílinn þinn
saman eins og þú vilt hafa hann. Í
grunninn koma þeir með talsvert meiri
búnaði, með lengri ábyrgð, 4 ár almenn,
8 ár á rafhlöðu, og langt undir því verði
sem þekkist hér heima. Virkilega öflugir
og frábærir lúxusbílar.
Dæmi um verð á Volvo XC60 T8
R-Design frá 8.070.000 kr.* og Volvo
XC90 T8
Momentum 8.590.000 kr.*
Með aukahlutapakka upp á meira en
1.200 þ.kr.
*Volvo,miðað við gengi 89 kr. á CAD
dagsins 20.12.2018.
Nýi Nissan Leaf Tekna 2019
Verð 4.580.000.kr. miðað við gengi 137
kr. á EUR.
Einn með öllu. Nýtt útlit og miklu
lengri drægni. Vinsælasti rafmagnsbíll
í heimi. Bilanaminnsti bíll í heimi. Erum
með 10 Nissan Leaf Tekna bíla sem eru
að leggja af stað. Fyrstur kemur fyrstur
fær. Frábært verð. Nánari upplýsingar
eru á vefnum betribilakaup.is. Fyrir-
spurnum er einnig svarað í síma 511-
2777. n
BETRI BÍLAKAUP:
Ódýrari gæðabílar
fluttir beint inn
Mitstubishi Outlander PHEV
Volvo
Nissan Leaf