Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 44
Þorláksmessa 21. desember 2018KYNNINGARBLAÐ Betri bílakaup er fyrirtæki sem þjónustar almenning við kaup á bílum að utan og við flutning til landsins. Með slíkum hætti fást bílarnir á mun lægra verði en í gegnum bílaum- boð. Á undanförnum tæpum tveimur árum hefur Betri bílakaup flutt inn með þessum hætti á annað þúsund gæða- bíla fyrir ánægða kaupendur. Í þessum hópi eru meðal annars hátt í 500 bílar af gerðinni Mitsubis- hi Outlander PHEV og fjölmargir af tegundinni Volvo, ýmist í forpöntunum á nýjum bílum eða innflutningi á lítið keyrðum nýlegum bílum. „Við sjáum um allt fyrir kaupandann, frá a–ö. Kaupsamningurinn við erlenda bílasölu er á nafni kaupandans en við sjáum um alla pappírsvinnu og innflutn- inginn. Eimskip flytur bílinn og hann er tryggður alla leið. Þessi aðferð við bíla- kaup tryggir kaupendum hagstæðara verð en áður hefur þekkst. Einnig erum við með www. betribilasalan.is sem er netbílasala og getum við selt fyrir þig gamla bílinn meðan sá nýi er á leiðinni,“ segir Brynjar Valdimarsson hjá Betri bílakaupum. Fyrirtækið er til húsa að Ármúla 4–6. Að sögn Brynjars er allt kaupferlið hjá Betri bílakaupum mjög gegnsætt og þægilegt: „Segjum að þú sért væntanleg- ur kaupandi, þú ert að leita að bíl. Þú segir okkur hvernig bíl þú vilt eignast og við finnum hann fyrir þig. Við semjum um verðið við erlenda bílasalann. Við tökum fasta þóknun fyrir okkar þjónustu, 249.900 kr. með vsk. Þú millifærir pen- ingana á erlendu bílasöluna. Við erum með samning við Eimskip sem þú nýtir þér. Þegar þú ert búinn að millifæra sjá- um við um allt, flutninginn, skráum bílinn, komum honum á númer og afhendum þér hann hérna uppi í Ármúla 4.“ Mitsubishi Outlander PHEV Gott úrval, sérstaklega hagstætt verð og mikil gæði eru það sem viðskiptavinir Betri bílakaupa uppskera. Mikil áhersla er lögð á svokallaða græna bíla og segir Brynjar þá vera um 90% af þeim bílum sem viðskiptavinir kaupa í gegnum fyrir- tækið. Er þá ýmist um að ræða raf- eða blendingsbíla (hybrid bensín+rafmagn). „Við bjóðum upp á hinn glænýja og frábæra Mitsubishi Outlander PHEV, en hann hentar einstaklega vel íslensk- um aðstæðum. Þessir bílar hafa verið gríðarlega vinsælir á Íslandi enda mjög ríkulega útbúnir og með langa ábyrgð, það er 5 ára almennri ábyrgð og 8 ára rafhlöðuábyrgð. Framleiðsluárið 2019 fékk ýmsar stórgóðar viðbætur, sem dæmi lengri drægni á rafmagni, hljóð- látari bensínmótor, meira akstursöryggi auk þess sem bíllinn er sparneytnari og kraftmeiri. Verð er frá 4.299.000 kr. miðað við gengi 137 kr. á EUR. Nýr Volvo 2019 „Einnig getum við pantað 2019 Volvo þar sem þú færð að setja bílinn þinn saman eins og þú vilt hafa hann. Í grunninn koma þeir með talsvert meiri búnaði, með lengri ábyrgð, 4 ár almenn, 8 ár á rafhlöðu, og langt undir því verði sem þekkist hér heima. Virkilega öflugir og frábærir lúxusbílar. Dæmi um verð á Volvo XC60 T8 R-Design frá 8.070.000 kr.* og Volvo XC90 T8 Momentum 8.590.000 kr.* Með aukahlutapakka upp á meira en 1.200 þ.kr. *Volvo,miðað við gengi 89 kr. á CAD dagsins 20.12.2018. Nýi Nissan Leaf Tekna 2019 Verð 4.580.000.kr. miðað við gengi 137 kr. á EUR. Einn með öllu. Nýtt útlit og miklu lengri drægni. Vinsælasti rafmagnsbíll í heimi. Bilanaminnsti bíll í heimi. Erum með 10 Nissan Leaf Tekna bíla sem eru að leggja af stað. Fyrstur kemur fyrstur fær. Frábært verð. Nánari upplýsingar eru á vefnum betribilakaup.is. Fyrir- spurnum er einnig svarað í síma 511- 2777. n BETRI BÍLAKAUP: Ódýrari gæðabílar fluttir beint inn Mitstubishi Outlander PHEV Volvo Nissan Leaf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.