Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 58
58 21. desember 2018TÍMAVÉLIN
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Eina nótt,
árið 1713,
dreymdi mig að
ég hefði gert
samning við
djöfulinn um sál
mína.
n Kynngimagnað verk Giuseppe Tartini
S
nemma á átjándu öld
samdi ítalska tónskáldið
Giuseppe Tartini verk
sem hann nefndi Djöfl-
atrilluna. Verkið fékk nafn sitt
af því að það var innblásið af
kölska sjálfum. Margir segja að
Tartini hafi samið við djöfulinn
til þess að geta samið verkið.
Djöflatrillan er enn talin með
erfiðari verkum sem hægt er
að spila á fiðlu og hafa spunn-
ist margar sögur í kringum það.
Sumir segja að djöfullinn sjálf-
ur tali til fólks með illum til-
gangi þegar það hlustar á verk-
ið.
Afburðafær fiðluleikari
Giuseppe Tartini var fæddur í
bænum Pirano árið 1692. Í dag
heitir bærinn Piran og er innan
landamæra Slóveníu en á tíma
Tartini var hann hluti af Fen-
eyjum. Tartini gat hins vegar
rakið sínar ættir til Flórens.
Foreldrar Tartini vildu að hann
gerðist munkur og því var hann
látinn læra tónlist. En sjálf-
ur ákvað hann að nema lög og
skylmingar.
Tartini kvæntist konu að
nafni Elisabetta Premazore
sem var ein af hjákonum
kardínálans Giorgio Cornato.
Cornato reiddist Tartini og
kærði hann fyrir mannrán. Tar-
tini flúði því í klaustur í bænum
Assisi og hóf að spila á fiðlu.
Færni hans á hljóðfærið var
eftirtektarverð og Tartini kom
fram víða á Ítalíu og kynntist
mörgum af helstu tónskáldum
þess tíma. Einnig hóf hann að
semja tónlist sjálfur. Árið 1715
varð hann sá fyrsti sem vitað er
um til að eignast fiðlu smíðaða
af snillingnum Antonio Stradi-
vari. En þá fiðlu gaf hann nem-
anda sínum. Árið 1726 opnaði
hann eigin tónlistarskóla sem
tók við nemendum frá allri
Evrópu.
Náði ekki að grípa drauminn
til fulls
Tartini samdi mörg verk og gaf
út lærð rit um tónlist. Hans
þekktasta er án efa Djöflatrillan
frá árinu 1713, þegar Tartini var
aðeins 21 árs gamall. Söguna
um tilurð verksins sagði hann
frönskum stjörnufræðingi, Jer-
ome Lalande, þegar Tartini
bjó einn í Ancona. Þessa sögu
skrifaði Tartini aldrei um held-
ur ritaði Lalande hana niður í
bók sinni Ferð Frakka um Ítalíu
1765 og 1766. Þar reyfar hann
orð Tartini:
„Eina nótt, árið 1713,
dreymdi mig að ég hefði gert
samning við djöfulinn um sál
mína. Allt fór eins og ég vildi,
minn nýi þjónn uppfyllti allar
mínar þrár. Meðal þess sem ég
gerði var að láta hann hafa fið-
lu mína til að sjá hvort hann
gæti spilað. Mjög varð ég undr-
andi að heyra undurfagra
sónötu, leikna með svo mikilli
listagáfu, að ég hefði aldrei get-
að trúað því í mínum villtustu
órum. Ég varð líkt og færður í
galdraheim, náði ekki andan-
um og vaknaði. Um leið greip
ég fiðluna til þess að reyna að
halda í einhvern hluta úr þess-
um draumi. En fyrir gýg! Tón-
listin sem ég samdi er vissulega
sú besta sem ég hef nokkurn
tíman gert, og ég kalla hana
Djöflatrilluna, en munurinn er
svo mikill að ég hefði eyðilagt
hljóðfæri mitt og alfarið hætt
að leika tónlist ef ég hefði getað
lifað án þeirrar gleði sem hún
veitir mér.“
Átti kölski þátt í verkinu?
Tartini gaf Djöflatrilluna aldrei
út. Hann lést nálægt áttræðu
árið 1770 en verkið kom ekki út
á prenti fyrr en tæpum þrjátíu
árum síðar, árið 1798 eða 1799.
Fræðimenn hafa reyndar efast
um að verkið sé jafn gamalt og
Lalande segir það vera. Stíllinn
og þroski verksins bendi til
þess að það hafi verið skrifað
í kringum 1740. Þeir gleyma
því hins vegar að ofurmann-
legt vald átti þátt í því. Þá hef-
ur því einnig verið haldið fram
að djöfullinn í draumi Tar-
tini sé í raun tónskáld að nafni
Francesco Maria Veracini, sem
Tartini leit mjög upp til. Aðrir
hafa sagt að Tartini hafi skrif-
að þetta um það leyti sem hann
hitti Lalande og þá verið næst-
um geðveikur af einveru.
Djöflatrillan þykir enn með-
al erfiðari verka sem hægt er
að spila á fiðlu. Það tekur um
fimmtán mínútur að spila
verkið. Upphafið er angur-
vært en þegar líður á það verð-
ur það krefjandi, sérstaklega
fyrir tvígripin og skrautið. Það
er ásækjandi og dramatískt.
Töluverða færni þarf til þess
að komast klakklaust í gegn-
um verkið sem er þó nokkuð
vinsælt í uppsetningu. Hefur
það meðal annars verið flutt
margoft hér á Íslandi í gegnum
tíðina.
Sögurnar um Tartini og
samband hans við djöfulinn
ágerðust eftir því sem leið á 19.
öldina. Þá gekk sú flökkusaga
að Tartini sjálfur hefði verið
með sex fingur til að geta spilað
verkið. Á meðal þeirra sem ýttu
undir þessar sögur var rúss-
neskur dulspekingur að nafni
Helena Blavatsky.
Sumir segja að maður heyri
aldrei sama lagið í hvert skipti
sem Djöflatrillan er leikin. Að
djöfullinn sjálfur tali til hlust-
andans í gegnum verkið og til-
gangur hans sé aldrei góður. n
við gömlu höfnina
Ei í ingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
við gömlu höfnina
Eilíf hamingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
við gömlu höfnina
Eilíf hamingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
vi gömlu höfnina
Eilíf amingja
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í ef irrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn.
Siginn fiskur og selspik með tilheyrandi.
Steingrímur í eftirrétt á aðeins
1.950 kr.
Siginn fiskur er annan hvern þriðjudag frá
4. des.–23. des. í hádeginu milli 11.30–14.00.
Sægreifinn við Geirsgötu
Tekið er á móti pöntunum fyrir Þorláksmessu í 553-1500
Kæst stórskata og tindabykkja með öllu
tilheyrandi. Steingrímur í eftirrétt á aðeins
2.350 kr.
Skatan er í boði 1. des milli 11.30 og 14.00,
og 17.des.–23. des. alla daga, allan daginn
DJÖFLAROKK 18. ALDAR
Tartini og Kölski Margt er á huldu varðandi drauminn sem Djöflatrillan birtist í.