Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 68
68 FÓLK xx. xxxxxx 201x
Birgir Örn, eða Biggi lögga
eins og hann er nefndur í
daglegu tali, hefur fengist
við ýmislegt í gegnum tíð-
ina. Til dæmis var hann
formaður stjórnmála-
flokksins Samstöðu og
áhrifavaldur á Facebook. Í
sex mánuði árið 2017 starf-
aði hann sem flugþjónn hjá
Icelandair en sneri aftur til
lögreglustarfanna eftir það.
Marín Manda hefur verið nokkuð áberandi í gegnum tíðina. Hún
hefur meðal annars starfað við blaðamennsku, hönnun og rekið
eigin verslun. Hún var einnig nokkuð þekkt fyrir ástarsambönd sín
við Fjölni Þorgeirsson og Arnar Gunnlaugsson. Marín Manda hefur
starfað hjá WOW air og er auk þess vinsæl á samfélagsmiðlum.
Landsmenn kannast best við
Evu Laufeyju sem sjónvarpskokk
á Stöð 2. Þar hefur hún slegið í
gegn í þáttunum Ísskápastríð.
Hún er einnig einn þekktasti
matarbloggari landsins. Eva varð
flugfreyja hjá Icelandair árið
2011 og starfaði þar á sumrin
samhliða námi í viðskiptafræði.
Hin ástsæla gaman-
leikkona María Heba
Þorkelsdóttir sló í
gegn í kvikmyndinni
Okkar eigin Osló
árið 2012 og hlaut
Edduverðlaun fyrir.
Hún hefur einnig
getið sér gott orð
fyrir leik í þáttaröð-
um á borð við Fanga,
Pressu og Hamar-
inn. Í vor útskrifaðist
María sem flugfreyja
hjá Icelandair.
Stórleikarinn Gunnar
Eyjólfsson lést fyrir rúmum
tveimur árum. Hann var
margverðlaunaður, bæði á
fjölum leikhússins og fyrir
kvikmyndaleik. Þekktastur
var hann fyrir kvikmyndina
79 af stöðinni frá árinu
1962. Á sjötta áratugnum
var Gunnar búsettur í
Bandaríkjunum og starfaði
þá meðal annars sem flug-
þjónn hjá Pan American á
gullaldarárum þess.
Heiðar er snyrtifræðingur að mennt og hefur viðurnefnið snyrtir því
fest við hann. Heiðar hefur verið viðloðandi tískubransann og dag-
skrárgerð í áratugi. Hefur hann til dæmis leiðbeint fólki varðandi
framkomu, hreinlæti og útlit. Heiðar starfaði sem flugþjónn í áratug
en gerðist síðar fararstjóri.
Eva Laufey Kjaran
Hermannsdóttir
Birgir Örn
Guðjónsson
Gunnar
Eyjólfsson
Marín Manda
Magnúsdóttir
María Heba
Þorkelsdóttir
Heiðar Jónsson