Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 70
70 MATUR 21. desember 2018
UMHVERFISVÆNU
LEIKFÖNGIN FRÁ
PLAN TOYS
ÞROSKALEIKFÖNG Í
JÓLAPAKKANN
HREIÐUR.IS
K ÍK
TU V I Ð Á
SMELLTU HÉ
R
Nammiframleiðendur setja
of mikið í konfektkassana
n 33,5% af Nóa konfektkassa eru umbúðir n After Eight snuðar
neytendur um rúmlega eina plötu í hverjum kassa
S
tærsta áthátíð ársins er
við það að ganga í garð og
margir gera vel við sig í mat
og drykk. Þá er afar vin-
sælt að láta eftir sér konfekt um
jólin. Því ákváðum við að vigta
sex tegundir af vinsælu hátíðar-
konfekti til að athuga hvort upp-
lýsingar um þyngd væru réttar á
umbúðum og hve mikið af um-
búðum hver tegund ber með sér.
Í öllum tilvikum nema tveimur
var meira í konfektkassanum en
stóð á umbúðunum. Mest var
það í Bónus konfekti og Lindu
konfekti, hvort tveggja framleitt af
Góu, þar sem þyngd konfekts var
níu grömmum meiri en stóð á um-
búðum. Í Appolo lakkrís konfekti
vantaði hins vegar tvö grömm upp
á en í After Eight kassa vantaði heil
11 grömm upp á. Það er rétt rúm-
lega ein After Eight-plata.
Það sem kemur hvað mest á
óvart er hve miklar umbúðir eru
utan um jólanammið. Í umbúðum
stendur Appolo lakkrís konfektið
sig best, en þar eru umbúðir að-
eins 6% af heildarþyngdinni. Bón-
us konfektið kemur þar á eftir með
8,5% umbúðaþyngd af heildinni.
Skúrkarnir eru konfektið frá Nóa
Siríus þar sem umbúðir eru 33,5%
af heildarþyngd og konfektið frá
Lindu þar sem umbúðir eru 27% af
heildarþyngdinni. Í tilvikum bæði
After Eight og Celebrations eru
umbúðir 11,9% af heildarþyngd.
Niðurstöðurnar í heild sinni
má sjá hér fyrir neðan.
Appolo lakkrís konfekt –
skráð þyngd á pakka 700 g.
n Kassi með öllu: 743 g
n Nammið sjálft: 698 g
n Umbúðir: 45 g – þar af
pappír 39 g / plast 6 g
Hlutfall umbúða af heild: 6%
Bónus konfekt (framleitt af
Góu) – skráð þyngd á pakka
400 g
n Kassi með öllu: 447 g
n Nammið sjálft: 409 g
n Umbúðir: 38 g – þar af pappír
35 g / plast og álpappír 3 g
Hlutfall umbúða af heild: 8,5%
Lindu konfekt (framleitt af
Góu) – skráð þyngd á pakka
230 g
n Kassi með öllu: 328 g
n Nammið sjálft: 239 g
n Umbúðir: 89 g – þar af
pappír 82 g / plast og álpapp-
ír 7 g
Hlutfall umbúða af heild: 27%
Nóa Siríus konfekt –
skráð þyngd á pakka 135 g
n Kassi með öllu: 215 g
n Nammið sjálft: 143 g
n Umbúðir 72 g – þar af
pappír 62 g / plast 10 g /
undir 1 g álpappír
Hlutfall umbúða af heild:
33,5%
Celebrations – skráð
þyngd á pakka 186 g
Kassi með öllu: 218 g
Nammið sjálft: 192 g
Umbúðir: 26 g – þar
af pappír 23 g / álp-
appír 3 g
Hlutfall umbúða af
heild: 11,9%
After Eight – skráð
þyngd á pakka 300 g
n Kassi með öllu: 328 g
n Nammið sjálft: 289 g
n Umbúðir: 39 g – þar af
pappi 38 g / plast 1 g
Hlutfall umbúða af
heild: 11,9%
MYNDIR: HANNA/DVLilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is