Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 72

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Page 72
21. desember 2018 49. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000  Suðurnes  Reykjavík  Suðurnes Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook Tvisvar á dag! milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðis cargoflutningar.is Flutningaþjónusta Ike A er ekki nógu fínn hönnuður! Sanddæling úr Landeyjahöfn hefur kostað yfir 2,6 milljarða Í slenska ríkið hefur þurft að greiða rúma 2,6 milljarða ein­ göngu fyrir sanddælingu úr Landeyjahöfn frá opnun hafnarinnar í júlí 2010. Það gera rúmlega 300 milljónir á hverju ári. Þá hafa ýmsar rannsóknir við höfnina kostað 277 milljónir króna. Samandregið er heildar­ kostnaður vegna byggingar og rekstrar Landeyjahafnar, ásamt kostnaði við rekstur Herjólfs, rúm­ lega 11 milljarðar króna. Ein aðalforsendan fyrir byggingu Landeyjahafnar á sín­ um tíma var að ný ferja, sem hent­ aði betur við þessar aðstæður, yrði smíðuð. Útboð fyrir byggingu ferj­ unnar tafðist og var að endingu ekki auglýst fyrr en árið 2016. Kostnaður á hönnun þeirrar ferju var síðan 147 milljónir króna. Áætlanir gera ráð fyrir að kostn­ aður við smíði nýs Herjólfs séu um 3,8 milljarðar króna. Það verð mun þó eflaust hækka því gera þarf ýmsar breytingar á ferjunni. Gert er ráð fyrir að smíði nýrr­ ar ferju ljúki í mars á næsta ári og siglingar hefjist stuttu síðar. Upp­ runalega átti að afhenda skip­ ið á þessu ári en áðurnefndar breytingar urðu til þess að smíð­ in tafðist. Nýja ferjan verður með mun meiri burðargetu en gamla skipið og verður að auki rafknúin að hluta. Samningur hefur verið gerður á milli Vestmannaeyja­ bæjar og Vegagerðarinnar um að bærinn sjái alfarið um rekstur ferjunnar fyrstu tvö árin. Áætlað er að ferðum á mill Eyja og lands muni fjölga um sex hundruð ferð­ ir árlega. Um mikla samgöngubót verður því að ræða fyrir Eyjamenn þó að kostnaður sé hár. Gert er ráð fyrir að afsláttur á miðum í ferjuna muni hækka úr 40% í 50%. Þá mun störfum einnig fjölga vegna fleiri ferða. Gamli Herjólfur verður svo til taks sem varaskip ef eitthvað kemur upp á. Landeyjahöfn RÚV keypti húsgögn á 11 milljónir R ÚV festi kaup á nýjum húsgögnum fyrir rúmar ellefu milljónir króna nú í haust. Samkvæmt heimildum DV komu kaupin mörgum starfsmönnum á óvart þar sem þeir töldu húsgögnin sem voru fyrir ekki vera í slæmu ásamkomulagi og því ekki þörf á endurnýjun. Yfirmenn sem taka ákvarðanir um kaup af þessu tagi voru þó greinilega á annarri skoðun og munu sér­ staklega gömlu stólarnir hafa verið þyrnir í augum starfs­ manna. Kaupin munu hafa far­ ið fram í september síðastliðn­ um. DV hafði þá samband við RÚV símleiðis og kannaðist þá enginn við kaup á húsgögnum. DV sendi í kjölfarið formlega fyrirspurn og barst svar skyndi­ lega núna, rétt fyrir jól. Anna Bjarney Sigurðar­ dóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, fjármála og tækni hjá RÚV, segir í svarinu að það stemmi að RÚV hafi fest kaup á húsgögnum. Kostnaðurinn var alls 10.980.000 króna. „ Kaupin voru liður í verkefni við að opna vinnuaðstöðuna og um leið þurfti að endurnýja hluta af skrifstofuhúsgögnum, aðal­ lega skrifborðum ásamt ýms­ um hirslum og húsgögnum í fundarrými sem voru orðin gömul,“ segir Anna Bjarney. Ekki kemur fram í svarinu hvaðan húsgögnin voru keypt eða hversu mörgum einingum var fjárfest í. Þess má til gam­ ans geta að ef miðað er við verð í IKEA þá mætti kaupa 80 upp­ hækkanleg skrifborð af dýrustu gerð, fjóra sófa af dýrustu gerð og 20 skápa af dýrustu gerð fyr­ ir sömu upphæð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.