Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2018, Síða 72
21. desember 2018
49. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Suðurnes
Reykjavík
Suðurnes
Sími 845-0900 • cargoflutningar@gmail.com • Finndu okkur á facebook
Tvisvar
á dag!
milli Suðurnesja og
höfuðborgarsvæðis
cargoflutningar.is
Flutningaþjónusta
Ike A er ekki
nógu fínn
hönnuður!
Sanddæling úr Landeyjahöfn hefur kostað yfir 2,6 milljarða
Í
slenska ríkið hefur þurft að
greiða rúma 2,6 milljarða ein
göngu fyrir sanddælingu
úr Landeyjahöfn frá opnun
hafnarinnar í júlí 2010. Það gera
rúmlega 300 milljónir á hverju
ári. Þá hafa ýmsar rannsóknir
við höfnina kostað 277 milljónir
króna. Samandregið er heildar
kostnaður vegna byggingar og
rekstrar Landeyjahafnar, ásamt
kostnaði við rekstur Herjólfs, rúm
lega 11 milljarðar króna.
Ein aðalforsendan fyrir
byggingu Landeyjahafnar á sín
um tíma var að ný ferja, sem hent
aði betur við þessar aðstæður, yrði
smíðuð. Útboð fyrir byggingu ferj
unnar tafðist og var að endingu
ekki auglýst fyrr en árið 2016.
Kostnaður á hönnun þeirrar ferju
var síðan 147 milljónir króna.
Áætlanir gera ráð fyrir að kostn
aður við smíði nýs Herjólfs séu um
3,8 milljarðar króna. Það verð mun
þó eflaust hækka því gera þarf
ýmsar breytingar á ferjunni.
Gert er ráð fyrir að smíði nýrr
ar ferju ljúki í mars á næsta ári og
siglingar hefjist stuttu síðar. Upp
runalega átti að afhenda skip
ið á þessu ári en áðurnefndar
breytingar urðu til þess að smíð
in tafðist. Nýja ferjan verður með
mun meiri burðargetu en gamla
skipið og verður að auki rafknúin
að hluta. Samningur hefur verið
gerður á milli Vestmannaeyja
bæjar og Vegagerðarinnar um
að bærinn sjái alfarið um rekstur
ferjunnar fyrstu tvö árin. Áætlað
er að ferðum á mill Eyja og lands
muni fjölga um sex hundruð ferð
ir árlega. Um mikla samgöngubót
verður því að ræða fyrir Eyjamenn
þó að kostnaður sé hár. Gert er ráð
fyrir að afsláttur á miðum í ferjuna
muni hækka úr 40% í 50%. Þá mun
störfum einnig fjölga vegna fleiri
ferða. Gamli Herjólfur verður svo
til taks sem varaskip ef eitthvað
kemur upp á.
Landeyjahöfn
RÚV keypti
húsgögn á
11 milljónir
R
ÚV festi kaup á nýjum
húsgögnum fyrir rúmar
ellefu milljónir króna
nú í haust. Samkvæmt
heimildum DV komu kaupin
mörgum starfsmönnum á óvart
þar sem þeir töldu húsgögnin
sem voru fyrir ekki vera í slæmu
ásamkomulagi og því ekki þörf
á endurnýjun. Yfirmenn sem
taka ákvarðanir um kaup af
þessu tagi voru þó greinilega á
annarri skoðun og munu sér
staklega gömlu stólarnir hafa
verið þyrnir í augum starfs
manna. Kaupin munu hafa far
ið fram í september síðastliðn
um. DV hafði þá samband við
RÚV símleiðis og kannaðist þá
enginn við kaup á húsgögnum.
DV sendi í kjölfarið formlega
fyrirspurn og barst svar skyndi
lega núna, rétt fyrir jól.
Anna Bjarney Sigurðar
dóttir, framkvæmdastjóri
rekstrar, fjármála og tækni hjá
RÚV, segir í svarinu að það
stemmi að RÚV hafi fest kaup á
húsgögnum. Kostnaðurinn var
alls 10.980.000 króna. „ Kaupin
voru liður í verkefni við að
opna vinnuaðstöðuna og um
leið þurfti að endurnýja hluta
af skrifstofuhúsgögnum, aðal
lega skrifborðum ásamt ýms
um hirslum og húsgögnum í
fundarrými sem voru orðin
gömul,“ segir Anna Bjarney.
Ekki kemur fram í svarinu
hvaðan húsgögnin voru keypt
eða hversu mörgum einingum
var fjárfest í. Þess má til gam
ans geta að ef miðað er við verð
í IKEA þá mætti kaupa 80 upp
hækkanleg skrifborð af dýrustu
gerð, fjóra sófa af dýrustu gerð
og 20 skápa af dýrustu gerð fyr
ir sömu upphæð.