Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 2
2 SPORT 22. febrúar 2019 Steingrímur var forsætisráð­ herra Íslands árið 1990. Hann gegndi ýmsum öðrum ráð­ herraembættum á sinni far­ sælu starfsævi. Hann sat á Al­ þingi fyrir Framsóknarflokkinn árin 1971–1994, auk þess að vera skipaður seðlabankastjóri, sem hann var 1994–1998. Steingrímur var sonur Her­ manns Jónas­ sonar, fyrrver­ andi for­ manns Fram­ sóknar­ flokksins og forsætisráð­ herra. Sælgætið Þristur hefur oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hrósað sigri í fjölmiðlum þegar Íslendingar eru beðnir um að velja sitt eftirlætis nammi. Saga Þristsins nær aftur til ársins 1990 þegar hann var fyrst framleidd­ ur en það má segja að fæðingu hans hafi borið að með óvenju­ legum hætti. „Við fengum bón um að gera afmælisköku með karamellukremi og lakkrís. Hún var ofboðslega góð,“ segir Jón Sigurður Kjartansson, sem stofn­ aði sælgætisgerðina Kólus, sem framleiðir Þrist, ásamt bróður sínum, Kjartani Páli, árið 1962. Einstaklega góðar og ljúffengar vöfflur 29 sársaukaár að taka enda? n Liverpool gæti orðið enskur meistari í fyrsta sinn í 29 ár n Þetta var í gangi árið 1990 Í vor gætu 29 ár af sársauka tekið enda í Bítlaborginni því Liver­ pool gæti þá unnið efstu deild á Englandi í knattspyrnu. Þetta stórveldi hefur gengið í gegn­ um erfiða tíma en Jurgen Klopp er að finna ljósið við enda gang­ anna, eins og segir í söngnum fræga, You’ll Never Walk Alone sem stuðningsmenn Liverpool kyrja á öllum leikjum. Engan óraði fyrir því árið 1990 að Liverpool færi í gegnum svona tímabil en liðið getur stigið stórt skref í átt að meistaratitlinum með sigri á sig­ ursælasta félagi Englands í dag, Manchester United, á sunnudag. United hefur unnið deildina þrett­ án sinnum frá því að Liverpool landaði þeim stóra síðast. Stjórnin skellti sér í Eurovison fyrir hönd Íslands og Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örv­ arsson gerðu allt vitlaust úti í hinum stóra heimi. Keppnin fór fram í Zagreb en Stjórnin flutti þar lagið Eitt lag enn, sem lif­ ir góðu lífi enn í dag. Evrópa elskað lagið einnig og end­ aði Stjórnin í fjórða sæti. Það var á þeim tíma besti árangur í sögu Íslands, í þessari vinsælu keppni. Þessir vinsælu þættir frá Bandaríkjun­ um voru þeir vinsælustu í öllum heim­ inum árið 1990. Cheers, eins og þeir hétu á móðurmálinu, voru framleidd­ ir frá 1982 til ársins 1993, samtals urðu þættirnir 275 klukkustundir að lengd. Þátturinn gerðist á vinsælum stað í mið­ borg Boston, í Massachusetts­fylki. Í Staupasteini var mikið glens og mikið gaman, og allir vissu hvað þú hést. Ásta Sigríður Einarsdóttir, sem þá var 18 ára nemandi í Mennta­ skólanum í Reykjavík, var kjör­ in Ungfrú Ísland árið 1990. Ásta Sigríður er dóttir Einars Sveins­ sonar, þá framkvæmdastjóra Sjóvár­Almennra, og Birnu Hrólfsdóttur kennara. Ásta fór í Ungfrú heim og skrifaði DV um málið. „Gina Marie Tolle­ son, 21 árs gömul Suðurríkja­ stúlka frá Bandaríkjunum, vann titilinn Ungfrú heimur í úrslita­ keppni sem fram fór í London í gærkvöldi. Önnur í röðinni varð ungfrú Írland og þriðja varð ungfrú Venesúela. Okkar stúlka, Ásta Sigríður Einarsdóttir, komst ekki á blað meðal þeirra bestu og endaði neðarlega í hópi 80 keppenda. Ungfrú heimur er með brúnt hár og 180 sentímetr­ ar á hæð. Hún hefur fengist við ballett, djass og steppdans en segist hafa mestan áhuga á að verða sjónvarpsfréttakona,“ stóð í DV seint árið 1990. Nelson Mandela var afar mik­ ill baráttumaður fyrir réttind­ um blökkumanna og barðist hart gegn aðskilnaðarstefn­ unni. Hann var leiðtogi innan ANC sem barðist fyrir aukn­ um réttindum svartra og hann og félagar hans beittu verkföll­ um og fleiri aðgerðum til að fá sitt í gegn. Mótmæli fóru fram í Suður­Afríku árið 1960 og létust þónokkrir félagar hans. Stjórn­ völd í Suður­Afríku bönnuðu þá ANC og voru leiðtogar samtak­ anna handteknir. Mandela var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Eft­ ir mikla baráttu var Mandela sleppt úr haldi árið 1990, en hann hafði þá setið í fangelsi í 27 ár. Árið 1993 fékk Mandela síðan friðarverðlaun Nóbels. Ári seinna fóru fram fyrstu lýð­ ræðislegu forsetakosningarnar í Suður­Afríku. Mandela bauð sig fram og vann sannfærandi sigur. Þristur Eitt lag enn Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Ásta Sigríður var fegursta kona Ísland Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra Staupasteinn Nelson Mandela sleppt úr haldi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.