Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 6
6 PRESSAN 22. febrúar 2019
E
rum við alein í alheiminum
eða eru algjörlega óþekkt
lífsform á einhverjum
plánetum? Þetta er líklega
ein af stærstu spurningunum sem
leita á mannkynið og hefur gert
alla tíð. En nú er hugsanlega ekki
svo langt þangað til við fáum svör
við þessu. Jafnvel innan næstu
fimm til tíu ára að mati Uffe Gråe
Jørgensen, prófessors í stjarneðlis
fræði við Kaupmannahafnar
háskóla. Að minnsta kosti ef lífið
hegðar sér eitthvað í líkingu við
það sem það gerir á jörðinni.
„Það er ótrúleg tilhugsun að við
lifum á tíma þar sem við getum í
fyrsta sinn fengið svarið við svona
mikilvægri spurningu. Það er frá
bært að við munum fá svar,“ sagði
Jørgensen nýlega í samtali við
videnskab.dk.
Innan fárra ára verður ný kyn
slóð geimsjónauka tilbúin til
að leita að ummerkjum um líf á
byggilegum plánetum utan sól
kerfisins okkar. Með því að rann
saka gufuhvolf þeirra getum við
fengið svar við spurningunni um
hvort líf sé að finna utan jarðar
innar. En stóra spurningin er auð
vitað hvert á að beina sjónum
þessara sjónauka í leit að geimver
um, einfrumungum, plöntum eða
hverju því sem við teljum að geti
verið að finna í hinum risastóra al
heimi?
Fjarplánetur eru væntanlega til
valdar til slíkra rannsókna en það
eru plánetur sem eru á braut um
stjörnur sínar utan sólkerfis okkar.
Sérfræðingar eru að mestu sam
mála um að beina eigi leitinni að
slíkum plánetum. Nú þegar vitum
við um 3.800 fjarplánetur í alheim
inum og þær eru örugglega miklu
fleiri. Þetta eru dularfullir heimar
fyrir okkur því við komumst ekki til
þeirra til að rannsaka þá. En þrátt
fyrir að nýju stjörnusjónaukarnir
séu mjög fullkomnir þá gera þeir
okkur aðeins kleift að rannsaka
þær plánetur sem eru allra næst
sólkerfinu okkar. En það þýðir ekki
að beina sjónaukunum að hvaða
plánetum sem er af þessum 3.800,
fyrst þarf að að skera úr um hvort
þær séu byggilegar. Ef þær eiga
að vera byggilegar fyrir líf eins og
við þekkjum það þá þarf hitastigið
að vera passlegt, það þarf að vera
fljótandi vatn þar, andrúmsloft og
plánetan þarf að snúast um öxul
sinn.
Jørgensen sagði að á grunni
getu nýju sjónaukanna og skilyrð
anna sem fjarplánetur verða að
uppfylla til að líf, eins og við þekkj
um það, geti þrifist þar, sé ekki úti
lokað að við finnum sannanir fyrir
lífi á nokkrum slíkum á næsta ára
tug, hugsanlega tíu plánetum og
jafnvel fleiri.
Erum við ein?
Vísindamenn eru ekki allir sam
mála um hvort líf sé að finna utan
jarðarinnar. Sumir telja nánast ör
uggt að svo sé en aðrir benda á
að það þurfi svo mikla röð tilvilj
ana til að líf geti sprottið upp. Þá
benda aðrir á að alheimurinn sé
óendanlegur og því hljóti líf að
hafa kviknað á öðrum plánetum
en jörðinni, slíkur sé fjöldi pláneta
og stjarna. Reynsla okkar hér á
jörðinni sýnir einnig að tilveran
er hörð en hér hefur verið líf þrátt
fyrir ísaldir, árekstra við loftsteina
og breytingar á samsetningu and
rúmsloftsins. Þetta segir okkur að
ef líf kviknar á annað borð þá sé
erfitt að gera út af við það.
En það eru ekki öll kurl komin
til grafar þótt við finnum ummerki
um líf í andrúmslofti plánetu því
þá á eftir að færa sterk rök fyrir að
líf sé á plánetunni. En geimrann
sóknir standa nú á þröskuldi nýrra
tíma þar sem háþróaðir sjónaukar
geta rannsakað miklu meira og
séð miklu lengra út í geiminn en
við höfum getað til þessa.
Risastór sjónauki
Extremely Large Telescope (ELT)
(Mjög stór sjónauki) verður stærsti
sjónaukinn á jörðinni en hann
er háþróaður og er talinn marka
tímamót í geimrannsóknum.
Það er ESO, European Southern
Observatory, sem er að smíða
þetta tækniundur. Sjónaukinn
verður, eins og nafnið gefur til
kynna, stærsti sjónaukinn hér á
jörðinni og stærð skiptir miklu
hvað varðar sjónauka. Hvolfþak
hans verður 85 metrar í þvermál
og stærsti spegill hans verður
stærri en knattspyrnuvöllur. Þeim
mun stærri speglar, þeim mun
meiri upplausn.
Annar nýr sjónauki er James
Webbsjónaukinn sem verður á
braut um jörðina. Aðalverkefni
hans verður að leita að innrauðu
ljósi frá fyrstu stjörnunum og
vetrar brautunum sem urðu til í al
heiminum. En hann mun einnig,
eins og ELT, rannsaka samsetn
ingu andrúmslofts fjarpláneta.
Ef andrúmsloft þeirra inniheldur
einhverja af grunnstoðum lífsins,
eins og við þekkjum það, getur það
verið merki um að líf sé að finna á
þeim. n
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
VATNSENDAHLÍÐ 29, 311 BORGARNES
27.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Sumarhús
57 M2
3
ÁLFTAMÝRI 28, 108 REYKJAVÍK
34.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
72 M2
3
KVÍSLARTUNGA 9, 270 MOSFELLSBÆR
87.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Parhús
286 M2
7
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
Eftir 5 til 10 ár vitum við hvort
við erum ein í alheiminum
Nýrri kynslóð geimsjónauka beint að gufuhvolfum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Uffe Gråe Jørgensen Prófessor í stjarn-
eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Risastór sjónauki En hvert
skal beina honum?