Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Blaðsíða 10
10 22. febrúar 2019FRÉTTIR
Frost í kortunum?
Ekki láta kuldann koma þér í vandræði
Komdu við og láttu mæla rafgeyminn þinn!
TUDOR
Alltaf öruggt start
eftir kaldar nætur
MIKIÐ ÚRVAL, TRAUST
OG FAGLEG ÞJÓNUSTA
Bíldshöfða 12 / S. 577 1515 / skorri.is
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
Hr
að
þjónusta
ÚRVAL AF HJÁLMUM OG ÚLPUM
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Allir barna
hjálmar
9.995 kr.-
Fullorðins
hjálmar frá
19.995 kr.-
CMP herra
úlpur frá
29.995 kr.-
Samkvæmt upplýsingum frá
Fangelsismálastofnun Wash
ingtonfylkis (Washington State
Department of Corrections)
situr 28 ára gamall hálfíslenskur
karlmaður, Alexander Gunnar
Bjarnason, inni í Monroe Cor
rectional Complexfangelsinu
í Monroeborg. Situr hann inni
fyrir skilorðsrof. Samkvæmt upp
lýsingum frá stofnuninni hefur
ekki verið staðfest hvenær mál
hans mun rata fyrir dómstóla.
Samkvæmt gögnum sem DV
hefur undir höndum var Alex
ander Gunnar handtekinn fyrir
skilorðsrof í janúar 2017 og aft
ur í febrúar sama ár. Í apríl 2017
hlaut hann 6 mánaða fangelsis
dóm fyrir fíkniefnavörslu, inn
brot, ökutækjastuld, auðkenn
isstuld og fyrir að auglýsa eða
stuðla að vændi. Þá var honum
gert að gangast undir áfengis
og vímuefnameðferð. Hann var
síðast handtekinn fyrir að rjúfa
skilorð í janúar síðastliðnum
og var þá neitað um lausn gegn
tryggingu.
Þá hefur DV undir höndum gögn um tvo
Íslendinga sem afplána skilorðsbundinn
dóm í Bandaríkjunum um þessar mundir.
Samkvæmt dómskjölum frá Lake
County í Washington var 22 ára Ís
lendingur, Bjarki Línberg Björnsson, sak
felldur fyrir stuld á skotvopni (grand theft
firearm) í nóvember 2017.
Brotið átti sér stað í nóvember 2016.
Var hann dæmdur til að sæta svokölluðu
community supervision í þrjú ár, til 7.
nóvember 2020.
Þá er 26 ára karlmaður, Atli Már Heim
isson, á skilorði í Iowafylki,
sem rennur út 2021. Sam
kvæmt dómskjölum hef
ur hann hlotið á annan
tug dóma, ýmist skil
orðsbundið fang
elsi eða óskilorðs
bundið, frá árinu
2014. Um er að
ræða brot á borð
við ránstilraun,
fíkniefnavörslu, fíkni
efnasölu og óspektir
og ofbeldisfulla hegð
un á almannafæri.
Líkt og DV greindi frá í desember 2017
var íslenskur karlmaður, Stefán Ingimar
Koeppen Brynjarsson, handtekinn í
Cancún í Mexíkó í október 2016 grunaður
um fíkniefnasmygl. Fjallað var um hand
töku hans í þarlendum fjölmiðlum en þar
kom ekki fram hvers konar fíkniefni var
um að ræða eða hversu mikið magn. Eftir
handtökuna var Stefán Ingimar fluttur í
Ceferesofangelsið í Perote.
Í samtali við DV sagðist Grímur Gríms
son yfirlögregluþjónn ekki kannast við
málið og þá reyndist málið heldur ekki á
skrá hjá borgaraþjónustu utanríkisráðu
neytisins. Síðan þá hafa engar upplýsingar
borist um dóm yfir Stefáni og er því mögu
legt að hann sé í haldi yfirvalda í Mexíkó.
Það hefur DV ekki fengið staðfest.
ALEXANDER
GUNNAR BJARNASON
BJARKI LÍNBERG BJÖRNSSON
OG ATLI MÁR HEIMISSON
STEFÁN INGIMAR KOEPPEN
Bjarki Línberg Björnsson Atli Már Heimisson