Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Page 14
14 22. febrúar 2019FRÉTTIR
SONUR KRISTJÁNS AFPLÁNAR
LÍFSTÍÐARDÓM
Í BRETLANDI
Sonur Kristjáns Jóhanns Matthíassonar var
einungis 14 ára gamall þegar hann hlaut lífstíðardóm
í Bretlandi fyrir stinga unglingspilt í hjartað. Áður en
hann framdi verknaðinn, árið 2007, hafði hann ánetj-
ast kannabisefnum og var kominn í slæman félags-
skap. Á þeim tíma sem hann hefur setið inni hefur
hann snúið við blaðinu og náð undraverðum árangri.
Kristján segir það hafa gert gæfumuninn að Brandon
var fluttur í opið úrræði á seinasta ári. Þar hafi hann
loksins fengið tækifæri til betrunar. Brandon á sér þá
ósk heitasta að geta búið hjá föður sínum á Íslandi í
framtíðinni og Kristján bindur vonir við að þeir feðgar
muni sameinast á ný.
Í
febrúar 2016 ræddi ég fyrst við
Kristján, en þá hafði Brandon
setið í fangelsi í tæp átta ár.
Kristján hafði þá aðeins einu
sinni fengið að heyra í honum í
síma.
Líkt og fram kom þá á Kristján
tvo syni með konu sem hann
kynntist þegar hann bjó í Bret
landi á árum áður, þá Brandon
Richmond, 22 ára, og Darrell, sem
er 28 ára. Sambúð Kristjáns og
konunnar gekk ekki upp á sínum
tíma og Kristján flutti aftur til Ís
lands. Eldri sonurinn Darrell kom
reglulega í heimsókn til föður síns
en sambandið við Brandon var
mun stopulla.
„Hann kom einu sinni til Ís
lands, þá 11 ára, og heimsótti mig
í Keflavík þar sem hann dvaldi í
tvær vikur. Honum fannst bærinn
vera óttalegt krummaskuð.“
Kristján vissi á þessum tíma að
sonur hans væri í slæmum mál
um og væri farin að fikta við hass
reykingar, og jafnvel sterkari efni.
Kristján var hins vegar að eigin
sögn svo grænn að hann gerði sér
einfaldlega ekki grein fyrir að því
að sonur hans væri á fallbraut.
Áður hafði Brandon staðið sig vel
í skóla og sjaldan lent í vandræð
um. Að sögn Kristjáns var níðst á
syni hans fyrir að vera svokallað
„half caste“, af blönduðum kyn
þætti.
„Það var rosalega mikil klíku
myndun í kringum hann. Hann
passaði ekki neins staðar inn.“
Fékk taugaáfall og brotnaði
saman
Aðeins hálfu ári síðar fékk Kristján
að vita að sonur hans sæti í gæslu
varðhaldi vegna gruns um aðild að
manndrápi. Brandon hafði verið
í slagtogi með unglingagengi og
kvöld eitt í mars 2007 eltu þeir uppi
16 ára pilt að nafni Kodjo Yenga og
öskruðu: „Drepum hann, drepum
hann!“ Yenga var því næst bar
inn með kylfum og að lokum veitt
hnífstunga í hjartað.
Breskir fjölmiðlar fjölluðu
þónokkuð um málið á sínum
tíma og vakti það upp umræð
ur um vaxandi gengjamenningu í
Lundúnum, hækkandi glæpatíðni
og neikvæð áhrif þess á ungdóm
landsins. Á þeim tíma sem Kodjo
Yenga var drepinn höfðu 26 ung
menni verið drepin af gengjum í
London á árinu 2007. Fram kom
að verknaðurinn hefði verið inn
vígsluathöfn í götuklíku.
Kristján segist hafa fengið
taugaáfall og brotnað niður við
fréttirnar. Þar sem honum reyndist
erfitt að nálgast upplýsingar um
framgang málsins og líðan sonar
síns þá þurfti hann einkum að
reiða sig á upplýsingar frá
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Kristján Jóhann Matthíasson.