Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Síða 16
16 22. febrúar 2019FRÉTTIR
breskum fjölmiðlum sem fjölluðu
ítarlega um málið.
Kristján lýsti þessu þannig árið
2016:
„Ég hringdi fjölda símtala og
mér tókst á einum tímapunkti að
móðga breskan embættismann
með því að benda honum á að
þeir væru að brjóta barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna og að líklega
væri betur tekið á málum barn-
ungra fanga í Bangladess. Eftir það
voru allar dyr lokaðar.“
Kristjáni tókst loks í eitt skipti
að ná sambandi við son sinn. „Það
var eftir endalausa ýtni. Mér tókst
að tala einhverja embættiskonu
til.“ Símtalið var ansi tilfinninga-
þrungið.
„Ég heyrði að hann var hrædd-
ur. Hann vildi ekki ræða málið
sjálft við mig en hann sagðist sakna
pabba gamla. Ég lagði áherslu á
það við hann að hann segði sann-
leikann. Síðan var símtalinu slitið
af starfsmönnum fangelsisins.“
Vistaður með fullorðnum
Vorið 2008 féll dómur í Old Bailey í
Lundúnum og var Brandon dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpinn,
með möguleika á reynslulausn
eftir 16 ár. Annar piltur úr klíkunni
fékk einnig lífstíðardóm, og þrír
aðrir voru dæmdir í 10 ára fangelsi
fyrir aðild þeirra að morðinu.
„Þegar dómurinn var lesinn
upp hélt ég fyrst að þetta hefði
verið einhver mislestur. Ég missti
trúna á mannkynið í smá tíma. Þó
svo að ég hafi alltaf sagt að hann
eigi að taka út sína refsingu þá
var þetta ekki nokkur glóra. Ég var
niðurbrotinn, og ekki var mikill
skilningur í kringum mann.“
Brandon var um tíma vistaður í
unglingafangelsi áður en hann var
fluttur í fangelsi nálægt Ipswich
sem hýsir fullorðna afbrotamenn.
Þar voru aðstæðurnar vægast sagt
afar bágbornar og að sögn Krist-
jáns var gengjamyndun algeng.
Þegar ég ræddi við Kristján árið
2016 hafði Brandon dvalið í þrjú
ár í unglingafangelsi (Juvenile
Detention Center) þar sem að-
stæðurnar voru ögn skárri.
Hefur snúið við blaðinu
Það var síðan á síðasta ári að
Brandon var fluttur í Standford
Hill, opið fangelsi í Kent.
„Hann hefði ekki fengið að fara
þangað nema vegna þess að hann
hefur sýnt mjög góða hegðun og
ekki lent í slagsmálum eða veseni,
jafnvel þó að það hafi verið upp-
reisn í fangelsinu á sínum tíma,“
segir Kristján.
Kristján heimsótti Brandon í
fyrra og segir aðstæðurnar lítið
minna á fangelsi, frekar skóla
eða íþróttahús. Fangarnir reka til
dæmis verslun á staðnum og tæki-
færi til menntunar eru mjög fjöl-
breytt. Á heimasíðu fangelsisins
kemur fram að markmiðið sé að
fangarnir fái að vinna úti í samfé-
laginu og þá er mikið lagt upp úr
samvinnu á milli fanganna þar
sem þeir reyndari leiðbeina hin-
um.
Brandon er að sögn Kristjáns
með mikla ástríðu fyrir líkamsrækt
og þekkir hann til dæmis nöfnin á
öllum þekktustu fitnesskeppend-
um Íslands.
„Hann er algjörlega búinn að
snúa við blaðinu og breytingin er
alveg mögnuð. Hann er búinn að
vera að lyfta á fullu og orðinn stór
og stæðilegur. Hann er búinn að
læra einkaþjálfarann og stúdera
næringarfræði og svo er hann að
bæta við sig námi í pípulögnum.“
Betrunarvist getur gert
kraftaverk
Kristján segist aldrei hafa reynt
að breiða yfir glæp sonar síns.
Að sjálfsögðu þurfi sonur hans
að taka út refsingu og horfast í
augu við gjörðir sínar. Hann tel-
ur hins vegar sannað með sögu
Brandons að betrunarvist getur
gert kraftaverk. Sonur hans hafi
snúið við blaðinu eftir að hann var
fluttur í úrræði þar sem hann var
ekki lengur í „glæpamannaverk-
smiðju“, innan um fullorðna af-
brotamenn.
Kristján hyggst fara og heim-
sækja Brandon í lok mars en það
stendur til að hann fái að fara
reglulega í dagsleyfi seinna á ár-
inu. Ef allt gengur að óskum mun
hann fá reynslulausn á næsta ári,
en Kristján ætlar þó ekki að gera
sér of miklar vonir strax. Þegar ég
ræddi við Kristján árið 2016 sagð-
ist hann biðja fyrir því að sonur
hans yrði nýtur þjóðfélagsþegn
þrátt fyrir allt saman. Í dag er ekki
ástæða til að ætla annað en að það
verði að veruleika.
„Ég er ofsalega bjartsýnn í dag,
og stoltur af stráknum mínum.“ n
Standford Hill er opið fangelsi í Kent.
Kodjo Yenga var 17 ára gamall.
Breskir fjölmiðlar fjölluðu ítarlega um morðið á Kodjo Yenga á sínum tíma. Ljósmynd/Skjáskot af vef BBC.
Brandon Richmond.
„Hann er
algjörlega
búinn að snúa
við blaðinu
„Hann passaði ekki
neins staðar inn