Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Side 18
18 MATUR 22. febrúar 2019 E mbla Ósk Ásgeirsdóttir er 23 ára gömul. Hún býr í Gríms- nesi með syni sínum, Hen- rik, sem er fjögurra ára, og kærastanum sínum, Styrmi Jarli. Embla Ósk hefur verið vegan í rúmlega eitt og hálft ár. Veganismi er ekki mataræði heldur réttinda- barátta fyrir dýrin og lífsstíll þar sem leitast er við að útiloka og forð- ast, eftir fremsta megni, nýtingu og ofbeldi gagnvart dýrum. Veganismi er Emblu Ósk hjartans mál. Hún er vegan-aktívisti og heldur úti vin- sælli Instagram-síðu, @embla_osk, þar sem hún breiðir út boðskap um veganisma og hvetur aðra til að taka fyrstu skrefin í átt að hon- um. Embla Ósk hefur verið kölluð „öfgavegan“ en segir það ekki trufla sig. Það sem heldur henni gang- andi eru skilaboð frá fólki sem hef- ur hætt að borða kjöt eða orðið vegan vegna hennar. DV spjallaði við Emblu Ósk um veganismann, aktívismann og allt þar á milli. Alltaf verið með sterka réttlætiskennd Embla Ósk hefur verið vegan síð- an 1. júlí 2017. Frá áramótun- um 2016/2017 var hún fiskæta (e. pescatarian) og þá af umhverfis- ástæðum. „Ég horfði á Cowspiracy en var annars ekkert að kynna mér þetta. Ég var samt byrjuð að bögga fólk og spyrja af hverju það væri að borða kjöt. Ég er með sterka réttlætis- kennd og hef verið með hana frá því ég man eftir mér,“ segir Embla Ósk. Fær jákvæð skilaboð Hvernig varð Instagram-síðan þín að vinsælli vegan-aktívismasíðu? „Þetta var ekkert planað og ég skipulegg ekki hvaða efni ég ætla að deila þennan eða hinn daginn. Það eldur inni í mér og ég ræð ekki við hann. Ég fylgi mörgum vegan- -aktívistum og þegar ég sé eitthvað sem nær til mín, þá verð ég að deila því. Ef mér liggur eitthvað á hjarta, verð ég að deila því,“ segir Embla Ósk. „Mér finnst geðveikt gaman að fólk sé að fylgja mér út af þessu. Það er ekki út af mér heldur hefur fólk virkilega áhuga á því að fræð- ast meira um veganisma. Sumum finnst gaman að fylgjast með „öfga- vegan“ manneskju, sem er allt í lagi. Þá sér sá einstaklingur það sem ég er að deila og fræinu hefur verið komið fyrir.“ Hvaða viðbrögð færðu á Instagram? „Ég er bara að fá góð skilaboð. En ég veit alveg að fólk talar um mig. Ein sagði mér að hún hefði byrjað að fylgja mér því einhver sagði henni að ég væri öfgavegan, en nú er hún hætt að borða kjöt. Sem mér finnst geðveikt. Ég elska hatarana,“ segir Embla Ósk. Hvað finnst þér um að fólk kalli þig „öfgavegan?“ „Mér finnst það fyndið. Ég tek því ekkert persónulega. Fólki finnst ég öfgavegan, auðvitað. Það tek- ur því persónulega að ég sé vegan og tali um það, þótt þetta sé ekkert persónulegt. En þetta er það sem fólk borðar og því finnst eins og það sé verið að ráðast á það. En ég er auðvitað ekki að gera það. Það er þeirra egó sem þarf að losna aðeins um,“ segir Embla Ósk. Hún segir að það sem henni þykir skemmtilegast við þetta allt saman séu skilaboðin sem hún fær. „Það fullkomnar daginn minn þegar ég fæ skilaboð frá fólki sem segist nýlega hafa gerst vegan. Það er best í heimi.“ Ísland best í heimi? Hver finnst þér vera algeng rang- færsla um dýraiðnaðinn? „Fólk heldur að Ísland sé best í heimi. Dýraníðsmyndböndin sem fólk sér á netinu; það heldur að þetta sé ekki svona á Íslandi,“ segir Embla Ósk. „Ég man þegar ég fór í fjós þegar ég var lítil og sá ekkert að því. Ég skil alveg að fólk sé ekkert að pæla í þessu. En um leið og þú byrjar að horfa á þetta frá sjón- arhorni dýranna þá sérðu hvað þetta er hræðilegt. Fólk heldur líka að vegna þess að dýrin standa úti á túni á sumrin þá sé í lagi að drepa þau. En það er ekki rétt. Auðvitað eru til miklu stærri og grimmari fyrirtæki erlendis, en aðstæðurn- ar hérna eru samt hræðilegar. Svín sjá til dæmis ekki sólarljós. Þetta er ógeðslegur iðnaður,“ segir Embla Ósk og heldur áfram: „Svo heldur fólk líka að kjöt- og mjólkuriðnaðurinn hér sé ekki að menga eins og iðnaður- inn úti. Ég hef fengið að heyra að vegan-vörurnar sem eru flutt- ar inn mengi meira. En hvað um allt fóðrið sem við flytjum inn fyrir dýrin? Við flytjum inn mörg tonn af fóðri fyrir dýrin. Það er fárán- legt magn og mengar miklu meira en vegan-maturinn okkar. Við erum líka að drepa dýr og flytja þau út og öfugt. Þetta er svo mikil græðgi.“ Ekki persónulegt val Hverju svararðu þegar fólk segir: „Af hverju geturðu ekki haldið skoðun þinni fyrir þig sjálfa og virt það að ég borði kjöt?“ „Getið þið ekki virt dýrin? Dýr vilja ekki láta drepa sig, vill einhver láta drepa sig? Ef þú gengir að hund- inum þínum með hníf og reyndir að drepa hann, hvað myndi hann gera? Svín gera það sama. Þetta er ekki persónulegt val ef það er fórnar- lamb,“ segir Embla Ósk og bætir við: „Ég segi alltaf við fólk að barna- níðingum langi að níðast á börn- um, það þýðir ekki að það sé rétt. Þá verður fólk reitt. Það vill ekki líkja þessu saman.“ Ef þú mættir velja eitthvað eitt til að segja fólki, hvað væri það? „Ef þú myndir ekki senda gælu- dýrið þitt í sláturhús af hverju finnst þér í lagi að önnur dýr séu þar. Fólk þarf líka að vita að það þurfi ekki að borða kjöt.“ Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni á DV.is n Ráin er alhliða veitingahús í hjarta Reykjanesbæjar MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR „Þetta er ekki persónulegt val ef það er fórnarlamb“ Embla Ósk er vegan-aktívisti Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is „Það er eldur inni í mér og ég ræð ekki við hann MYND: HANNA/DV Morgunmatur: „Ég fæ mér oftast boozt-skál með jarðarberjum, banana og bláberjum eða þeim frosnu ávöxtum sem ég á til, og kókósmjólk. Síðan set ég múslí, skorna ávexti, chia-fræ og goji-ber ofan á, stundum set ég líka súkkulaði ef ég er í stuði.“ Hádegismatur: „Salat með sætum kartöflum, hrísgrjónum og grænmeti. Bæti svo baunum, falafel-boll- um eða oumph við. Það fer eftir því hvað er til.“ Millimál: „Mér finnst fátt betra en gróft brauð með tahini, avókadó, rauðrófum, tómötum og salti og pipar. Fæ mér einnig stundum hrökkkex með hummus og grænmeti, eða epli með hnetusmjöri. Ég reyni líka að vera dugleg að fá mér ávexti í millimál.“ Kvöldmatur: „Lasanja er okkar uppáhald, en það er ekkert smá næringarríkt og gott. Grunnurinn er allt það grænmeti sem er til í ísskápnum, vegan-hakk, ein salsasósa og smá vegan- rjómaostur. Ég set tortillakökur á milli og annaðhvort næringarger eða vegan-ost ofan á. Svo fer þetta inn í ofn og er borðað með smá salati til hliðar.“ Dæmigerður matseðill Emblu Óskar: Embla Ósk Ásgeirsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.