Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Page 22
22 FÓKUS 22. febrúar 2019
É
g var bara smástrákur
þegar afi féll frá á gamals
aldri. Af samtölum við
móður mína og fleiri í fjöl-
skyldunni veit ég hins vegar vel
hversu þungbært það var hon-
um þegar Hermóður fórst. Um
borð voru starfsfélagar hans og
vinir til margra ára,“ segir Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
í samtali við DV. „Í einu vetfangi
urðu 17 börn föðurlaus. Mér
þótti Hermann Guðjónsson sigl-
ingamálastjóri komast vel að orði
þegar hann skrifaði fyrir áratug
um mennina tólf sem drukknuðu
með Hermóði að morgni 18. febr-
úar 1959:
„Hermóðsslysið er stærsta áfall
sem hefur hent íslensku vitaþjón-
ustuna fyrr og síðar. Sjómennirn-
ir tólf urðu ekki grátnir úr helju
frekar en Baldur hinn góði sem
æsir sendu Hermóð hinn hvata
að sækja úr greipum dauðans.
Þeir fylla flokk hinna fjölmörgu
íslensku sjómanna sem hafa týnt
lífi við störf sín og minning þeirra
verðskuldar virðingu.“
Hafist var handa við að smíða
nýtt vitaskip eftir Hermóðsslysið
og árið 1962 kom Árvakur til
landsins.
„Afi Guðni tók þar við skip-
stjórn en fór í land eftir tæpan
áratug. Þá hafði hann verið til sjós
í meira en hálfa öld,“ segir Guðni.
„Mér er sagt að mest hafi hon-
um líkað að vera með vitaskip-
in tvö, Hermóð og Árvakur. Þeir
sem völdust þar í skipsrúm voru
harðduglegir enda ekki vanþörf
á. Víða var erfitt að færa vitavörð-
um vistir, lendingin snúin og síð-
an þungur burður upp stórgrýti
og hamra.
Á sínum langa ferli sinnti afi
líka landhelgisgæslu og lenti þá
í ýmsum svaðilförum. Til dæm-
is þráaðist einn breski togara-
skipstjórinn við þegar afi vildi
færa skip hans til hafnar og hugð-
ist sigla heim á leið. Gamli Ægir
þurfti að skjóta um 30 sinnum
að togaranum, War Grey, uns sá
breski gafst upp. Þetta var á stríðs-
árunum og um darraðardansinn
má meðal annars lesa í Virkinu í
Norðri, 3. bindi,“ segir Guðni.
Guðni telur líkur á að æviferill
afa hans hafi haft áhrif á að hann
hafi ákveðið að skrifa í sagnfræði-
námi um landhelgisdeilur og
þorskastríð. Guðni segir:
„Þar að auki hafa náfrændur
mínir í föðurætt unnið hjá Land-
helgisgæslunni og nefni ég þá
helst þjóðhetju okkar Íslendinga,
Guðmund Kjærnested. Á náms-
árunum ræddi ég oft við hann um
átökin á miðunum og naut þess
mjög.“
Háskasamt að sækja sjóinn
Guðni segir að hollt sé að minn-
ast þess að háskasamt sé að sækja
sjóinn en fagnar um leið þeim
framförum sem hafa orðið í ör-
yggismálum sjómanna.
„Í sama mánuði og Hermóður
fórst sökk togarinn Júlí á Ný-
fundnalandsmiðum, með 30
manna áhöfn. Hollt er að minn-
ast þess hversu háskasamt það
var að sækja sjóinn en fagna því
um leið að sjóslysum hefur snar-
fækkað,“ segir Guðni og bætir við
að lokum: „Þannig telst 2008 seint
til bestu ára Íslandssögunnar en
það ár urðu samt þau tímamót
að enginn mannskaði varð við Ís-
landsstrendur, í fyrsta skipti frá
því að sögur hófust. Og nú þurf-
um við auðvitað að sjá til þess að
öryggismál allra á sjó séu eins og
best verði á kosið, ekki síst með
öflugri landhelgisgæslu sem getur
þá sinnt björgunarstörfum þegar
á reynir.“
Hvíldi þungt á
afa Guðna Th.
„Á sínum langa
ferli sinnti
afi líka landhelgis-
gæslu og lenti þá í
ýmsum svaðilförum
Framhald á síðu 35