Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 35
FÓKUS 3522. febrúar 2019
U
m þessar mundir eru 60 ár
liðin frá því að tvö hræði-
leg sjóslys skóku íslensku
þjóðina. Aðeins leið rúm
vika á milli þess að togarinn Júlí
fórst með allri áhöfn, 30 sjómönn-
um, og að vitaskipið Hermóður
fór sömu leið með 12 mönnum
innan borðs. Alls stóðu 52 börn
uppi föðurlaus eftir harmleikina
tvo. Örlögin höguðu því þannig að
á Hermóði fór tvítugur matsveinn,
Birgir Gunnarsson, sína fyrstu og
hinstu för sem íhlaupamaður. Þá
vildi einnig svo til að Guðni Thor-
lacius, afi Guðna Th. Jóhannes-
sonar, forseta Íslands, var í leyfi
þessa örlagaríku ferð. Í samtali við
DV segir Guðni að atburðirnir hafi
alla tíð síðan legið þungt á afa sín-
um.
Skammt stórra högga á milli
Daganna 7.–9. febrúar 1959
brast á ofsaveður á Nýfundna-
landsmiðum sem æ síðan hefur
verið nefnt Nýfundnalandsveðrið
mikla. Veður hæð var mikil á þess-
um slóðum og frosthörkur gríðar-
legar. Togarinn Júlí var staddur
ásamt fleiri íslenskum skipum á
þessum slóðum við karfaveiðar.
Togarinn var gerður út af Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar og var talinn
eitt glæsilegasta fiskiskip í sögu ís-
lenska flotans þegar hann kom til
landsins árið 1953. Aðstæðurnar
sem þarna mynduðust þekktust
vart á Íslandsmiðum. Fleiri íslensk
skip voru á sömu slóðum og Júlí en
þekkt er kraftaverkasaga skipverja
á togaranum Þorkeli Mána, sem
var einn stærsti og öflugasti togar-
inn í Norðurhöfum.
Gríðarleg ísing lagðist á togar-
ann og skipverjar á Þorkeli Mána
björguðust aðeins með því að
heyja þrotlausa baráttu gegn
klakabrynjunni og losa sig við allt
lauslegt sem ísing festist á, meðal
annars björgunarbáta og talíur. Ís-
ing dregur fljótt úr stöðugleika og
sjóhæfni. Um borð í Júlí fór eflaust
fram svipuð barátta fram á hinstu
stund. Talið er að togaranum hafi
hvolft að lokum undan þunga ís-
ingarinnar. Að minnsta kosti þrjú
erlend skip fórust á sama tíma á
miðunum.
Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur segir um togarana, sem
voru síðutogarar, svokallaðir Ný-
sköpunartogarar, og keyptir til
landsins að lokinni síðari heims-
styrjöldinni: „Þótt margir Nýsköp-
unartogaranna hafi verið afar
fengsæl fiskiskip þóttu þeir ekki
sérlega vel hannaðir og útfærðir
með tilliti til ísingarhættu. Á þeim
voru rekkverk, vírar og fleira sem á
hlóðst ís í vondum vetrarveðrum.“
Alfreð Jónsson var á Norð-
lendingi, sem var eitt þeirra skipa
sem voru á svæðinu þennan
örlagaríka dag. Lýsti hann barátt-
unni við að halda sjó á eftirfarandi
hátt, en látin móðir skipstjórans
birtist honum í draumi og skip-
aði skipstjóranum að snúa skipinu
undan veðri, sem hann og gerði.
Alfreð segir:
„Ég veit að það sem hefur bjarg-
að því að við fórumst ekki var
að ísinn var frosinn í stump í efri
lestinni og haggaðist ekki. Hefði
hann farið af stað og kastast til
hefðu leikslok orðið önnur. Svona
gekk þetta í þá tvo sólarhringa sem
veðrið var verst, síðdegis á öðrum
sólarhring var farið að hreyfa
skrúfu í smástund í einu, og síð-
an smájókst það þar til hægt var
að keyra á hægri ferð með batn-
andi veðri. Það var í mestu lát-
unum, eða daginn eftir að veðrið
skall á, sem við fréttum að Þorkell
Máni væri að farast … Ekkert hafði
heyrst af togaranum Júlí frá því
kvöldinu áður … svo slitnaði loft-
netið niður hjá okkur og við vorum
sambandslausir. Vonuðumst við
eftir að þar hefði loftnetið slitnað
eins og hjá okkur og togarinn því
ekki getað látið vita af sér.“
Leit hætt og áhöfn talin af
Örvæntingarfull leit stóð yfir
að togaranum á alls 70 þúsund
fermílna svæði en rúmri viku síðar,
þann 17. febrúar, var tilkynnt um að
leitinni hefði verið hætt og togarinn
Júlí væri talinn af með allri áhöfn.
Tíðindin voru gríðarlegt áfall, en
þjóðin fékk ekki mikinn tíma til að
syrgja. Daginn eftir var tilkynnt um
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
Hermóður og Júlí:
n Langaði að hringja í þrjátíu ár n 52 börn stóðu uppi föðurlaus eftir harmleikina tvo
Framhald á síðu 36
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Háskasamt
að sækja sjóinn
Kristbjörg Gunnarsdóttir
með mynd af bróður
sínum, Birgi.
„Aðstæðurnar
sem þarna
mynduðust þekktust
vart á Íslandsmiðum
MYND: HANNA/DV