Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 51

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2019, Qupperneq 51
SAKAMÁL 5122. febrúar 2019 til ráða? Þarna stóð hann í stoln- um einkennisfatnaði rannsóknar- deildar hersins, með lykil að handjárnunum í annarri hönd og hníf í hinni. Málalyktir urðu þær að Justin, sem hafði lifað af tvær ferðir til Írak, var skorinn á háls af kollega sínum úti í hundsrassi í Norður- Karólínu. Cooper handtekinn Þetta sama kvöld var tilkynnt að Justin væri fjarverandi án leyfis og rannsóknarlögreglumenn hersins voru ekki lengi að tengja Cooper við málið. Hann hafði enda ekki farið leynt er hann spurðist fyrir um Cooper í Nam Deck-þjálfunar- búðunum. Þann 12. janúar viðurkenndi Cooper allt saman og fór með rann- sóknarlögreglumenn að þeim stað þar sem hann hafði grafið Justin. Cooper var ákærður fyrir morð, mannrán, hindrun réttvísinnar og að hafa siglt undir fölsku flaggi. Í október, 2006, stóð hann frammi fyrir dauðadómi. Fleiri sambönd Ashley bar vitni og sagði sem var, að hún hefði sagt Cooper að henni hefði verið nauðgað af tveimur landgönguliðum, sem hún vissi ekki hvað hétu. Ashley brynnti músum þegar hún bar vitni og viðurkenndi að hafa hringt í karlmenn í hern- um síðastliðin sex ár. „Ég hef lágt sjálfsmat og ég þarfnast einhvers til að tala við,“ sagði hún. Fleiri hermenn báru vitni og sögðu frá sambandi sínu við konu. Á meðal þeirra var Michael Chunkie sem hafði fengið sím- hringingu frá Callie Adams. Með þeim þróaðist samband og „hún var eiginlega kærasta mín á þeim tíma. En við hittumst aldrei,“ sagði Michael. Lífstíðardómur og ráðgjöf Með því að játa sekt slapp Cooper við dauðarefsingu. Ashley Elrod var ekki ákærð fyrir eitt eða neitt í málinu. Sagan segir að hún hafi fengið ráðgjöf vegna eigin vanda- mála. Þannig fór það. n ERTU MEÐ VERKI Í BAKI, MJÖÐMUM, HNJÁM EÐA FÓTUM ? Komdu í göngugreiningu! Tímapantanir í síma 55 77 100 og á www.gongugreining.is Bæjarlind 4, Kóp. & Orkuhúsinu Rvk. LYGIN VARÐ DAUÐANS ALVARA n Fjöldi hermanna festist í vef Ashley n Þóttist vera sterkefnuð fegurðardís n Cooper Jackson varð yfir sig ástfanginn n Féll fyrir lygasögu um nauðgun Frá jarðarför Justins Lifði af tvær ferðir til Írak. 35 ára dóm fékk perúski morðinginn Pedro Pablo Nakada Ludena þann 14. júlí, árið 2010. Pedro fékk viðurnefnið „Postuli dauðans“ og sagðist hafa viljað hreinsa jörðina með því að útrýma fíkniefnaneytendum, vændiskonum, hommum og glæpamönnum. Hann fullyrti að hann hefði fengið skipun frá Guði um að gera það. Pedro var dæmdur fyrir 17 morð, en fullyrti sjálfur að hann hefði 25 mannslíf á samviskunni. Pedro sætti að sögn ofbeldi af hálfu fjölskyldu hans frá unga aldri. Systur hans neyddu hann til að klæðast kvenmannsfötum og bræður hans nauðguðu honum því þeir héldu að hann hefði drepið hund. Hvað sem því líður þá skaut hann fórnarlömb sín til bana með 9 millimetra skammbyssu. Hann var handasamaður á vinnustað sínum árið 2002 eftir að hann varð uppiskroppa með skotfæri í bardaga við lögregluna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.