Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 10

Morgunblaðið - 01.09.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Á nægjulegt er að sjá ný skip koma inn í íslenska fiski- skipaflotann og fá að fylgj- ast með þeirri uppbygg- ingu sem nú á sér stað í landvinnslu, eins og á Dalvík og Grundarfirði. Á sama tíma er erfitt að horfa upp á ónýttar aflaheimildir í tegundum á borð við blálöngu, keilu og gulllax, sér í lagi þegar því valda einna helst há veiðigjöld stjórnvalda. Þetta segir Heiðrún Lind Mar- teinsdóttir, framkvæmdastjóri Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi, í sam- tali við 200 mílur. „Það er hughreystandi að sjá tæknifyrirtæki í sjávarútvegi í stöð- ugum vexti, og sífellt vaxandi út- flutningur á íslensku hugviti sem skapast hefur í atvinnugreininni er mikið ánægjuefni.“ Fjárfestinga þörf í skipum „Endurnýjun hefur auðvitað verið mikil á undanförnum árum en þó ef til vill ekki nægileg. Skipaflotinn er ennþá tiltölulega gamall þegar á heildina er litið og vonandi verður því áfram hagstætt árferði til fjár- festinga. Þegar við horfum til að mynda yfir botnfiskflotann þá má segja að endurnýjun þar sé brýn, og fjárfestinga þörf í nýjum skipum.“ Heiðrún segir nýtingarstefnu stjórnvalda, með aflareglu í þorsk- veiðum, hafa skilað miklum árangri á undangengnum árum. Leyfilegur hámarksafli hafi þannig aukist úr 130 þúsund tonnum í rúmlega 260 þúsund tonn á einum áratug, og hrygningarstofn þorsks vaxið úr 125 þúsund tonnum í 650 þúsund tonn á aldarfjórðungi. „Með hóflegri sókn samkvæmt aflareglu hafa fiskarnir náð að lifa og vaxa lengur og framlag á hvern ný- liða til bæði afla og hrygningarstofns er því mun meira en áður var,“ segir hún. „Kostnaður við veiðar er mun minni þegar veitt er úr stórum stofni en litlum og því er afkoma þorsk- veiðanna mun betri en hún væri ef stofninn væri lítill.“ Greinilega að gera rétta hluti Mikilvægt sé að halda áfram á þess- ari braut. Veruleg viðbótaraukning ársafla samkvæmt aflareglu velti á því að stór hrygningarstofn nái að geta af sér mun stærri árganga í framtíðinni. „Það má kalla þetta sígandi lukku. Við höfum séð litla en stöðuga aukn- ingu, ár frá ári, að segja má frá árinu 2007. Vonandi heldur þetta áfram því við erum greinilega að gera eitt- hvað rétt í fiskveiðistjórnuninni, sér í lagi hvað varðar þorskinn.“ Nýr samningur um loðnuveiðar, undirritaður af stjórnvöldum Ís- lands, Grænlands og Noregs, er afar mikilvægur, að sögn Heiðrúnar. Hann tryggi hagsmuni Íslands í veiðunum næstu árin og áframhald- andi ábyrga nýtingu loðnustofnsins, sem hafi mikla þýðingu bæði fyrir loðnuveiðar og einnig vegna mik- ilvægis loðnunnar sem fæðu fyrir aðra stofna nytjafiska á Íslands- miðum, svo sem þorsks, ýsu, ufsa og kola. „Það er komin nokkur reynsla á nýja aflareglu við loðnuveiðar frá árinu 2015, sem lögð er til grundvall- ar í þessum samningi. Í aflareglunni er tekið fullt tillit til óvissu í mæl- ingum og öðrum þáttum með beinum hætti, eins og nú er almennt orðið í þessum efnum,“ segir Heiðrún. „Nauðsynlegt er að leggja mat á þessa reynslu og skoða leiðir til að fá betra mat á óvissuna.“ Ekki hægt að útiloka veiðibann Humarvertíðin í ár hefur ekki geng- ið sem skyldi og spurð um komandi fiskveiðiár segir Heiðrún að ástand stofnsins valdi sér áhyggjum og mik- il óvissa sé um framhaldið. Framfar- ir séu þó í stofnmælingum, svo sem með neðansjávarmyndavélum í stað toga, og myndin geti skýrst með því. „Þessi þróun er okkur auðvitað mikið áhyggjuefni. Við þurfum ein- faldlega að gera mun betur í rann- sóknum, enda eru sífelldar breyt- ingar í hafinu sem hafa svo áhrif á fiskgengd. Við eigum að passa upp á það að sinna rannsóknum svo að sómi sé að.“ Munum við jafnvel horfa fram á bann við veiðum á humri ef fram heldur sem horfir? „Maður vonar að sjálfsögðu ekki. En miðað við stöðuna er því miður ekki hægt að útiloka bann.“ Ótrúlega gjöful fiskimið Kolmunnaveiðar segir Heiðrún hafa gengið ágætlega og vonandi sé mak- rílveiðin að glæðast, sem byrjað hafi hálf-brösuglega. „Menn hafa náð að stemma sig af eftir verkfall í helstu tegundum en enn vantar mikið upp á að aflaheim- ildir verði fullnýttar í tegundum eins og til dæmis blálöngu, keilu og gull- laxi. Það er mikið áhyggjuefni, sér í lagi þegar stór þáttur í því er hátt veiðigjald. Þegar gjaldið er orðið þannig að það borgar sig ekki að sækja og gera virði úr eintökum teg- undum, þá hefur augljóslega verið gengið of langt,“ segir Heiðrún. „Við höfum hér ótrúlega gjöful fiskimið og við eigum að nýta og gera verðmæti úr öllum þeim teg- undum sem hér eru. Raunin er hins vegar orðin sú að með háu veiði- gjaldi, auk styrkingar krónunnar og mikilla launahækkana, borgar sig ekki lengur að sækja í þessar teg- undir. Þar af leiðandi verður ríkið, og þjóðin, af miklum verðmætum.“ „Þegar komið er á þennan stað þá hljótum við að þurfa að doka við og endurskoða þær ákvarðanir sem hafa verið teknar um gjaldtöku í at- vinnugreininni. Þegar veiðigjaldið er orðið næststærsti kostnaðarliðurinn í útgerð, á eftir launakostnaði, þá krefst sú staða auðsýnilega endur- skoðunar. Ríkissjóður verður ein- faldlega af fjármunum, séu þessar tegundir ekki nýttar.“ sh@mbl.is Hljótum að þurfa að doka við Nýtingarstefna stjórn- valda hefur tvöfaldað leyfilegan hámarksafla á aðeins áratug. Veiði- gjöldin setja hins vegar stórt strik í reikninginn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjávarútvegur „Þegar veiðigjaldið er orðið næststærsti kostnaðarliðurinn í útgerð, á eftir launakostnaði, þá krefst sú staða auðsýnilega endurskoðunar, segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Ljósmynd/Þröstur Njálsson Sjómenn Mikil endurnýjun hefur verið í fiskiskipaflotanum á undanförnum misserum. Togararnir eyða í dag minna, sem er mikilvægt sakir þess hve eldsneytiskostnaður er stór póstur í kostnaði útgerðarinnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Makríll Hefur skilað miklu í íslenskt þjóðarbú á undanförnum árum. Nú stefnir þess stofn hins vegar að Noregsströndum og sannast með því máltækið að svipull er sjávarafli. ÁRAMÓT Í SJÁVARÚTVEGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.