Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 25
ar batnað til muna en nú fer öll
vinna fram á millidekki og körin
eru færð með sjálfvirkum hætti
niður í lest.“
Bárður Hafsteinsson skipaverk-
fræðingur hannaði skipið en
óvenjulega lögun skrokksins má
m.a. rekja til svk. Flekkefjord-
togara sem Bárður hannaði á 9.
áratugnum til að gera skip sem
féllu sem best að rúmmáls-
reglugerðum sem þá giltu um
dönsk skip. Reyndist lögunin koma
vel út í ölduprófunum og kom í
ljós að stórt perustefni framkallar
bæði gott sjólag eykur um leið til
muna plássið um borð.
Auk Drangeyjar voru Kaldbak-
ur, Björgúlfur og Björg, skip Sam-
herja og ÚA, smíðuð með sömu
lögun og í Cemre-skipasmíðastöð-
inni í Tyrklandi.
Afkastamikið skip
Alltaf á sér stað einhver aðlögun
þegar nýtt fiskveiðiskip er tekið í
notkun og segir Gylfi að þar hafi
allt verið í samræmi við áætlun.
„Það má reikna með að eitthvað
komi upp á í nýsmíðuðu skipi, sem
lagfæra þarf og bæta en fyrstu
mánuðir Drangeyjar á veiðum hafa
gengið vel.“
Vinnslubúnaðurinn um borð,
sem hannaður var og smíðaður af
Skaganum 3X á Akranesi, hefur
líka virkað í samræmi við vænt-
ingar. „Afköstin eru mikil en þess
er gætt að stýra veiðunum til að
taka ekki inn of stór hóll svo að
hráefnið sé örugglega í topp-
gæðum,“ útskýrir Gylfi en enginn
ís er notaður um borð heldur er
fiskurinn forkældur með fullkomnu
kælikerfi og hitastig hans orðið
-0,5°C þegar ofan í lestina er kom-
ið. ai@mbl.is
Færibönd Vélarnar ráða ríkjum ofan í lestinni og taka við fiskinum af millidekkinu.Stjórntæki Vélar sjá um erfiðustu og hættulegustu störfin. Afköst aukast og slysahætta minnkar.
Afköstin eru mikil en
þess er gætt að stýra
veiðunum til að taka
ekki inn of stór hóll svo
að hráefnið sé örugg-
lega í toppgæðum
Fley Fylgjast þarf
vel með öllu.
Scanmar ehf. • Grandagarði 1A • Sími: 551 3300 • GSM: 691 4005 • Netfang: tm@scanmar.is
www.scanmar.is
Veður geta verið válynd
en það er ávallt á vísan að róa
með Scanmar
Scanmar búnaður er þekktur fyrir áreiðanleika, endingu og lága bilanatíðni sem á sér ekki hliðstæðu.
Aflanemi Flæðinemi
Hleranemi Dýpis-, halla- og hitanemiSökk- og hæðarnemi
Trollauga