Morgunblaðið - 01.09.2018, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
S
tyrking krónu, sveiflur á mörkuðum,
þensla á vinnumarkaði og hækkandi
launakröfur kalla á aukna sjálf-
virknivæðingu í sjávarútvegi, þar
sem einingum mun fækka og þær
sem eftir standa munu stækka. Þetta segir
Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síld-
arvinnslunnar.
Í samtali við 200 mílur um gang veiða og
vinnslu á nýloknu fiskveiðiári segir Gunnþór
að vel hafi gengið á árinu. „Enda held ég að
flestir séu að komast í höfn með sinn kvóta.
Sterk króna og verðlækkanir á mörkuðum eru
þó vissulega að setja mark sitt á rekstrarskil-
yrði í greininni,“ segir Gunnþór.
Lokun Rússlands áhrifamikil
„Við megum ekki gleyma því að sveiflur hafa
ávallt einkennt umhverfi íslensks sjávarútvegs
og við erum að koma úr árferði sem hefur ver-
ið okkur hagfellt síðustu ár. Nú eru aðstæður
að snúast og bregðast þarf við því,“ bætir hann
við.
„Hjá okkur erum við að sjá hvað mesta verð-
lækkun á síldarmörkuðum, en verðið hefur
verið mjög lélegt eftir að Rússlandsmarkaður
lokaði á okkur,“ segir hann og bendir á að
dregið hafi mjög úr framleiðslu og útflutningi
á loðnu til Austur-Evrópu.
„Það er enginn markaður til staðar fyrir
hana annars staðar, þannig að stærri hluti
loðnunnar fer í mjöl og lýsisvinnslu. Rússland
hefur lengi verið einn stærsti síldarmarkaður í
heimi, þannig að í þessu hefur lokun hans einn-
ig mikil áhrif.“
Sama gjald fyrir sama fiskinn
Atvinnuveganefnd Alþingis lagði í vor fram
frumvarp þar sem gert var ráð fyrir að veiði-
gjöld í sjávarútvegi yrðu endurútreiknuð
vegna versnandi afkomu fyrirtækja í sjávar-
útvegi. Sérstaklega yrði horft til lítilla og með-
alstórra fyrirtækja við útreikninginn, sagði
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri
grænna og formaður nefndarinnar, í samtali
við 200 mílur í lok maí. Ekki varð frumvarpið
að lögum og því eru veiðigjöldin enn óbreytt –
og há, að mati Gunnþórs.
„Sú staðreynd er öllum ljós að veiðigjöldin
eru orðin mjög há. Veiðigjöld eru orðin um
13% af aflaverðmæti ísfisktogara, eða næst-
stærsti gjaldaliður á eftir launum. Þegar við
erum farin að horfa upp á þrettán prósent af
aflaverðmæti hverfa í veiðigjöld þá er það ansi
hátt hlutfall. Þá er alveg sama hvort útgerðin
er stór, meðalstór eða lítil. Veiðigjöld þurfa að
taka mið af afkomu tegunda og vera með þeim
hætti að allir greiði sama gjald fyrir sama fisk-
inn.“
Efla þurfi markaðsstarfið
Spurður um helstu áskoranir sem blasi við
sjávarútvegi um þessar mundir nefnir hann í
fyrsta lagi sterkt gengi, hækkandi olíuverð og
launahækkanir, bæði í sjávarútvegi og í öðrum
atvinnugreinum.
„Laun hafa hækkað á Íslandi að und-
anförnu, töluvert umfram helstu samkeppn-
isþjóðir okkar, og í því felst mikil áskorun sem
við þurfum að mæta. Sömuleiðis er ljóst að við
þurfum að efla markaðsstarf, en þar tel ég að
fyrirtækin geti unnið meira saman við að verja
hagsmuni okkar á erlendri grundu.“
Á sama tíma sé ljóst að laun sjómanna hafi
lækkað mikið í kjölfar verðlækkana erlendis
og styrkingar krónunnar. Þensla á vinnumark-
aði valdi því að erfiðara sé að fá fólk til vinnu í
dag en áður.
„Ef fram heldur sem horfir í þeim efnum
verður það áskorun að manna sum af fiskiskip-
um flotans. Því þurfa menn að ná aukinni
framleiðni við veiðar til að geta hækkað laun
þeirra sem þær stunda. Það verður ekki gert
nema með aukinni sjálfvirknivæðingu og öfl-
ugri skipum með góðan aðbúnað fyrir sjó-
menn,“ segir Gunnþór.
„Breytt rekstrarumhverfi með sterkari
krónu, hækkun kostnaðarliða og sífellt aukn-
um kröfum um skattheimtu af greininni kallar
á aukna framleiðni í greininni.“
Hefur fulla trú á framtíðinni
Gunnþór leggur áherslu á að hann telji ís-
lenskan sjávarútveg öflugan og ljóst sé að mik-
il framþróun hafi átt sér stað hjá vinnslum í
landi.
„Með aukinni tæknivæðingu hafa orðið til
öflug tæknifyrirtæki í kringum greinina, til
dæmis Skaginn 3X, Marel og Valka, ásamt
fjölda annarra tæknifyrirtækja sem eru mjög
framarlega á sínu sviði. Þrátt fyrir fækkun
beinna starfa í sjávarútvegi hafa orðið til önn-
ur og verðmætari störf í tæknifyrirtækjunum,
sem eru komin á fullt í útflutning á þekkingu
sinni. Þannig að þrátt fyrir þessar áskoranir
sem við blasa hef ég fulla trú á framtíðinni.“
Ljósmyndir/Aðsend
Togveiðar Nást þarf aukin aukinni framleiðni við veiðar til að geta hækkað laun þeirra sem þær stunda. Það verður ekki gert nema með aukinni sjálfvirknivæðingu og öflugri skipum, segja þeir sem þekkja.
Bregðast þarf við breyttum aðstæðum
Veiðar og vinnsla gengu vel hjá
Síldarvinnslunni á fiskveiði-
árinu sem lauk í gær. Veiðigjöld
taka til sín 13% af aflaverð-
mæti fiskiskipanna og þensla á
vinnumarkaði veldur því að
áskorun verður að manna sum
skip flotans ef fram heldur
sem horfir.
Framkvæmdastjóri Sveiflur hafa ávallt einkennt umhverfi sjávarútvegins, segir Gunnþór Ingvason.
Uppsjávarskip Loðna, síld og makríll eru stofanar sem mikið eru nýttir á Austurlandi.
ÁRAMÓT Í SJÁVARÚTVEGI