Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 Skúli Halldórsson sh@mbl.is S tyrking krónu, sveiflur á mörkuðum, þensla á vinnumarkaði og hækkandi launakröfur kalla á aukna sjálf- virknivæðingu í sjávarútvegi, þar sem einingum mun fækka og þær sem eftir standa munu stækka. Þetta segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar. Í samtali við 200 mílur um gang veiða og vinnslu á nýloknu fiskveiðiári segir Gunnþór að vel hafi gengið á árinu. „Enda held ég að flestir séu að komast í höfn með sinn kvóta. Sterk króna og verðlækkanir á mörkuðum eru þó vissulega að setja mark sitt á rekstrarskil- yrði í greininni,“ segir Gunnþór. Lokun Rússlands áhrifamikil „Við megum ekki gleyma því að sveiflur hafa ávallt einkennt umhverfi íslensks sjávarútvegs og við erum að koma úr árferði sem hefur ver- ið okkur hagfellt síðustu ár. Nú eru aðstæður að snúast og bregðast þarf við því,“ bætir hann við. „Hjá okkur erum við að sjá hvað mesta verð- lækkun á síldarmörkuðum, en verðið hefur verið mjög lélegt eftir að Rússlandsmarkaður lokaði á okkur,“ segir hann og bendir á að dregið hafi mjög úr framleiðslu og útflutningi á loðnu til Austur-Evrópu. „Það er enginn markaður til staðar fyrir hana annars staðar, þannig að stærri hluti loðnunnar fer í mjöl og lýsisvinnslu. Rússland hefur lengi verið einn stærsti síldarmarkaður í heimi, þannig að í þessu hefur lokun hans einn- ig mikil áhrif.“ Sama gjald fyrir sama fiskinn Atvinnuveganefnd Alþingis lagði í vor fram frumvarp þar sem gert var ráð fyrir að veiði- gjöld í sjávarútvegi yrðu endurútreiknuð vegna versnandi afkomu fyrirtækja í sjávar- útvegi. Sérstaklega yrði horft til lítilla og með- alstórra fyrirtækja við útreikninginn, sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður nefndarinnar, í samtali við 200 mílur í lok maí. Ekki varð frumvarpið að lögum og því eru veiðigjöldin enn óbreytt – og há, að mati Gunnþórs. „Sú staðreynd er öllum ljós að veiðigjöldin eru orðin mjög há. Veiðigjöld eru orðin um 13% af aflaverðmæti ísfisktogara, eða næst- stærsti gjaldaliður á eftir launum. Þegar við erum farin að horfa upp á þrettán prósent af aflaverðmæti hverfa í veiðigjöld þá er það ansi hátt hlutfall. Þá er alveg sama hvort útgerðin er stór, meðalstór eða lítil. Veiðigjöld þurfa að taka mið af afkomu tegunda og vera með þeim hætti að allir greiði sama gjald fyrir sama fisk- inn.“ Efla þurfi markaðsstarfið Spurður um helstu áskoranir sem blasi við sjávarútvegi um þessar mundir nefnir hann í fyrsta lagi sterkt gengi, hækkandi olíuverð og launahækkanir, bæði í sjávarútvegi og í öðrum atvinnugreinum. „Laun hafa hækkað á Íslandi að und- anförnu, töluvert umfram helstu samkeppn- isþjóðir okkar, og í því felst mikil áskorun sem við þurfum að mæta. Sömuleiðis er ljóst að við þurfum að efla markaðsstarf, en þar tel ég að fyrirtækin geti unnið meira saman við að verja hagsmuni okkar á erlendri grundu.“ Á sama tíma sé ljóst að laun sjómanna hafi lækkað mikið í kjölfar verðlækkana erlendis og styrkingar krónunnar. Þensla á vinnumark- aði valdi því að erfiðara sé að fá fólk til vinnu í dag en áður. „Ef fram heldur sem horfir í þeim efnum verður það áskorun að manna sum af fiskiskip- um flotans. Því þurfa menn að ná aukinni framleiðni við veiðar til að geta hækkað laun þeirra sem þær stunda. Það verður ekki gert nema með aukinni sjálfvirknivæðingu og öfl- ugri skipum með góðan aðbúnað fyrir sjó- menn,“ segir Gunnþór. „Breytt rekstrarumhverfi með sterkari krónu, hækkun kostnaðarliða og sífellt aukn- um kröfum um skattheimtu af greininni kallar á aukna framleiðni í greininni.“ Hefur fulla trú á framtíðinni Gunnþór leggur áherslu á að hann telji ís- lenskan sjávarútveg öflugan og ljóst sé að mik- il framþróun hafi átt sér stað hjá vinnslum í landi. „Með aukinni tæknivæðingu hafa orðið til öflug tæknifyrirtæki í kringum greinina, til dæmis Skaginn 3X, Marel og Valka, ásamt fjölda annarra tæknifyrirtækja sem eru mjög framarlega á sínu sviði. Þrátt fyrir fækkun beinna starfa í sjávarútvegi hafa orðið til önn- ur og verðmætari störf í tæknifyrirtækjunum, sem eru komin á fullt í útflutning á þekkingu sinni. Þannig að þrátt fyrir þessar áskoranir sem við blasa hef ég fulla trú á framtíðinni.“ Ljósmyndir/Aðsend Togveiðar Nást þarf aukin aukinni framleiðni við veiðar til að geta hækkað laun þeirra sem þær stunda. Það verður ekki gert nema með aukinni sjálfvirknivæðingu og öflugri skipum, segja þeir sem þekkja. Bregðast þarf við breyttum aðstæðum Veiðar og vinnsla gengu vel hjá Síldarvinnslunni á fiskveiði- árinu sem lauk í gær. Veiðigjöld taka til sín 13% af aflaverð- mæti fiskiskipanna og þensla á vinnumarkaði veldur því að áskorun verður að manna sum skip flotans ef fram heldur sem horfir. Framkvæmdastjóri Sveiflur hafa ávallt einkennt umhverfi sjávarútvegins, segir Gunnþór Ingvason. Uppsjávarskip Loðna, síld og makríll eru stofanar sem mikið eru nýttir á Austurlandi. ÁRAMÓT Í SJÁVARÚTVEGI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.