Morgunblaðið - 01.09.2018, Síða 47
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 47
Best er að byrja á kartöflunum, afhýða þær, skera niður og byrja á að
sjóða þær. Þegar þær eru komnar í pottinn er fiskurinn útbúinn og
gerður tilbúinn fyrir ofninn. Það eina sem er viðkvæmt fyrir biðinni
er fiskurinn, maður vill bera hann á borð þegar hann er nýkominn úr
ofninum.
Sætkartöflumús
Fyrir þrjá
ca 5-600 g sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita
1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita
½ rautt chili, fræhreinsað
safi úr ½ límónu (lime)
ca 1 msk. smjör
salt og pipar
Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra
bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir.
Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út
í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili
smátt. Límónusafa bætt út í pottinn.
Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kart-
öflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu)
fjarlægt.
Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti,
pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætk-
artöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í
á meðan.
Þorskur með pistasíusalsa
ca 600 g þorskhnakkar eða þorskflök
salt og pipar
3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
3 msk. sítrónusafi og rifið hýði af ½ sítrónu
1 msk. olífuolía
ca 1 dl fersk steinselja, söxuð
¼-½ rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað
Ofninn hitaður í 220 gráður. Þorskflökin skorin í bita og þeim rað-
að í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar.
Því næst er blandað saman í skál: pistsíuhnetum, sítrónusafa, sí-
trónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er hellt yfir fiskinn.
Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til
fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Sojasmjörsósa
3 msk. smjör
1 skarlottulaukur (hægt að nota ½ rauðlauk), saxaður fínt
1 hvítlauksrif, saxað fínt
1 tsk. rautt chili, saxað fínt
2-3 msk. sojasósa
1 msk. steinselja, söxuð smátt
Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15
mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu.
Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál
og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram.
Ofnbakaður þorskur
með pistasíusalsa,
sætkartöflumús og
sojasmjörsósu
olía til steikingar
3 hvítlauksrif, söxuð
1 ferskur rauður chili, fræhreinsaður og saxaður
1 msk. ferskt engifer, rifið
30 g ferskt kóríander, stilkar og blöð saxað í sitt hvoru lagi
4 tsk. karrímauk, rautt eða grænt (curry paste)
1 lítri fiskisoð (gert úr 3 fiskiteningum)
1 dós kókosmjólk (ca. 400 ml)
2.5 dl rjómi eða matreiðslurjómi
3 msk. tómatmauk (tomato paste)
ca. 500 g kartöflur, flysjaðar og skornar í bita
1 stórt grænt epli, flysjað og skorið í bita
800 g þorskhnakkar (eða annar góður þéttur, hvítur fiskur), skor-
inn í bita
1½ límóna, safinn (lime)
2 tsk. sykur
2 tsk. fiskisósa (fish sauce)
pipar
Olía hituð í stórum potti og hvítlauk, chili, engifer og kóríander
stilkum ásamt karrímauki bætt út í pottinn og steikt í um það bil
2 mínútur.
Því næst er fiskisoði, kókosmjólk, rjóma, tómatmauki, eplum
og kartöflum bætt út og soðið í 10-15 mínútur eða þar til kartöfl-
urnar eru hér um bil soðnar í gegn.
Þá er fiskinum bætt út í súpuna og hún látin malla í stutta
stund þar til hann er soðinn í gegn. Að lokum er söxuðum kórían-
derlaufum bætt út í ásamt límónusafa og súpan smökkuð til með
sykri, fiskisósu og pipar.
Súpan er gjarnan borin fram með góðu brauði.
Fiskisúpa með karríi og eplum
Fyrir 4-5
500 g tómatsósa með hvítlauk og/eða kryddjurtum
fersk basilika
1 kíló þorskur eða ýsa
pipar og salt
1 msk. olía
svartar ólífur
1-2 kúlur ferskur mozzarella
Ofninn hitaður í 200 gráður.
Sósan hituð í potti, basilika söxuð gróft og bætt út í sósuna. Fisk-
urinn skorinn í hæfilega stór stykki og kryddaður með salti og pipar.
Eldfast mót smurt með olíu, fiskinum raðað í formið og sósunni
hellt yfir. Að lokum er ólífunum dreift yfir. Álpappír breiddur yfir
mótið og það sett í ofninn í ca. 10-15 mínútur.
Mozzarella-osturinn skorinn í sneiðar. Eldfasta mótið tekið úr ofn-
inum og hitinn hækkaður í 215 gráður. Álpappírinn fjarlægður og
ostinum raðað ofan á. Eldfasta mótið sett aftur inn í ofninn og bakað
í ca. 10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.
Borið fram með hrísgrjónum og salati, jafnvel góðu brauði líka.
Pitsufiskur