Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 01.09.2018, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 47 Best er að byrja á kartöflunum, afhýða þær, skera niður og byrja á að sjóða þær. Þegar þær eru komnar í pottinn er fiskurinn útbúinn og gerður tilbúinn fyrir ofninn. Það eina sem er viðkvæmt fyrir biðinni er fiskurinn, maður vill bera hann á borð þegar hann er nýkominn úr ofninum. Sætkartöflumús Fyrir þrjá ca 5-600 g sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita 1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita ½ rautt chili, fræhreinsað safi úr ½ límónu (lime) ca 1 msk. smjör salt og pipar Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kart- öflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætk- artöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan. Þorskur með pistasíusalsa ca 600 g þorskhnakkar eða þorskflök salt og pipar 3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur) 3 msk. sítrónusafi og rifið hýði af ½ sítrónu 1 msk. olífuolía ca 1 dl fersk steinselja, söxuð ¼-½ rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað Ofninn hitaður í 220 gráður. Þorskflökin skorin í bita og þeim rað- að í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistsíuhnetum, sítrónusafa, sí- trónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er hellt yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki. Sojasmjörsósa 3 msk. smjör 1 skarlottulaukur (hægt að nota ½ rauðlauk), saxaður fínt 1 hvítlauksrif, saxað fínt 1 tsk. rautt chili, saxað fínt 2-3 msk. sojasósa 1 msk. steinselja, söxuð smátt Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram. Ofnbakaður þorskur með pistasíusalsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu olía til steikingar 3 hvítlauksrif, söxuð 1 ferskur rauður chili, fræhreinsaður og saxaður 1 msk. ferskt engifer, rifið 30 g ferskt kóríander, stilkar og blöð saxað í sitt hvoru lagi 4 tsk. karrímauk, rautt eða grænt (curry paste) 1 lítri fiskisoð (gert úr 3 fiskiteningum) 1 dós kókosmjólk (ca. 400 ml) 2.5 dl rjómi eða matreiðslurjómi 3 msk. tómatmauk (tomato paste) ca. 500 g kartöflur, flysjaðar og skornar í bita 1 stórt grænt epli, flysjað og skorið í bita 800 g þorskhnakkar (eða annar góður þéttur, hvítur fiskur), skor- inn í bita 1½ límóna, safinn (lime) 2 tsk. sykur 2 tsk. fiskisósa (fish sauce) pipar Olía hituð í stórum potti og hvítlauk, chili, engifer og kóríander stilkum ásamt karrímauki bætt út í pottinn og steikt í um það bil 2 mínútur. Því næst er fiskisoði, kókosmjólk, rjóma, tómatmauki, eplum og kartöflum bætt út og soðið í 10-15 mínútur eða þar til kartöfl- urnar eru hér um bil soðnar í gegn. Þá er fiskinum bætt út í súpuna og hún látin malla í stutta stund þar til hann er soðinn í gegn. Að lokum er söxuðum kórían- derlaufum bætt út í ásamt límónusafa og súpan smökkuð til með sykri, fiskisósu og pipar. Súpan er gjarnan borin fram með góðu brauði. Fiskisúpa með karríi og eplum Fyrir 4-5 500 g tómatsósa með hvítlauk og/eða kryddjurtum fersk basilika 1 kíló þorskur eða ýsa pipar og salt 1 msk. olía svartar ólífur 1-2 kúlur ferskur mozzarella Ofninn hitaður í 200 gráður. Sósan hituð í potti, basilika söxuð gróft og bætt út í sósuna. Fisk- urinn skorinn í hæfilega stór stykki og kryddaður með salti og pipar. Eldfast mót smurt með olíu, fiskinum raðað í formið og sósunni hellt yfir. Að lokum er ólífunum dreift yfir. Álpappír breiddur yfir mótið og það sett í ofninn í ca. 10-15 mínútur. Mozzarella-osturinn skorinn í sneiðar. Eldfasta mótið tekið úr ofn- inum og hitinn hækkaður í 215 gráður. Álpappírinn fjarlægður og ostinum raðað ofan á. Eldfasta mótið sett aftur inn í ofninn og bakað í ca. 10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Borið fram með hrísgrjónum og salati, jafnvel góðu brauði líka. Pitsufiskur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.