Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 37
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Viltu læra bridge?
Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir
hópa, fyrirtæki og skóla. Guðmundur Páll starfrækir
Bridgeskólann, þar geta þeir lært bridge sem eru að
stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem vilja
bæta við kunnáttu sína.
Námskeið í Bridgeskólanum hefjast 1. og 3. október.
Allir undir 25 ára aldri fá frítt á byrjendanámskeið.
Upplýsingar hjá Guðmundi Páli Arnarsyni
í síma 8985427 eða á gpa@simnet.is
Eldri borgarar spila alla mánudaga og
fimmtudaga kl. 13–17 í Síðumúla 37
Stórmót í Bridge
Reykjavík Bridgefestival
fer fram í Hörpu
31. janúar–3. febrúar 2019,
skráning á bridge@bridge.is
Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is
Bridge sameinar aldurshópana • Bridge er gott fyrir heilsu þína • Bridge er manns gaman
„Bridge er fyrir alla“
„Flestir sem læra
og spila bridge ná
árangri í lífinu“.
Bill Gates stofnandi
Microsoft, spilar bridge
2-3 tíma flesta daga
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hef farið á hverju vori í ellefu ár
með nokkra stóra sekki af fræi og
nokkur hundruð kíló af áburði þarna
upp eftir. Svo hef ég dundað mér við
að bera á örfoka land þar sem er
sviðin jörð,“ sagði Jóhann Krist-
jánsson landgræðslumaður. Svæðið
sem um ræðir er suðaustan við Þór-
isjökul og norðan við línuveginn við
Skjaldbreið. Ef það gerði rok um
það leyti sem Jóhann byrjaði á land-
græðslunni mátti sjá moldina hverfa
af svæðinu í 12-15 kílómetra löngum
stróki.
„Þegar við erum komin í 400-500
metra hæð er moldin mjög dýrmæt.
Það tók margar aldir fyrir jarðveg-
inn sem þarna fauk út í buskann að
byggjast upp. Það er ekki lengur
taumlaus beit á þessu svæði en eftir
1870 var hún alveg taumlaus. Þetta
er svæðið sem Jónas Hallgrímsson
orti um í ljóðinu Skjaldbreiður og
kallaði Lambahlíðar, því þarna var
fullt af lömbum. Svæðið sem ég vinn
á heitir Fíflvellir og er nú örfoka
melar og rofabörð. Þar var áður
mikill gróður,“ sagði Jóhann. Hann
segir að örfá rofabörð sem eru eftir
séu til vitnis um hvað gróðurþekjan
var þykk og mikil. Nú er hún að
mestu fokin út í veður og vind.
Jóhann hefur til þessa einbeitt sér
að því að græða upp rofabörðin og
nokkurra hektara stóra moldar-
sléttu á svæðinu. Þar safnast leys-
ingavatn á vorin sem ber með sér
mikið af mold. Jóhann kveðst ein-
beita sér að „slökkvistarfinu“, það er
að koma í veg fyrir að moldin fjúki
burt þar sem uppblásturinn hefur
verið mestur.
„Gróðurinn tekur við sér um leið
og þessu er sinnt,“ sagði Jóhann.
Hann hefur fengið upplýsingar og
ráðgjöf frá Landgræðslunni í Gunn-
arsholti. Landsnet hefur stutt hann
mjög vel með því að borga fyrir
áburðinn og fræið. Fyrirtækið á raf-
línur sem liggja yfir svæðið.
SÁ og STEINN
Jóhann fann mel sem hann taldi
geyma mjög góðan jarðveg og
mundi taka vel við áburðargjöf og
fræi. Hann ákvað að sá þar fyrir
stöfunum SÁ, sem voru einu staf-
irnir sem honum komu í hug. Sögnin
er honum líka ofarlega í huga eftir
allt landgræðslustarfið. Hann prent-
aði stafina út, mældi nákvæmlega og
skalaði upp. Svo markaði hann fyrir
stöfunum á jörðinni með snúru og
hælum, bar á reitina og sáði. Áletr-
unin er um 35 metra breið og rúm-
lega 12 metra há. Hún leynir sér
ekki úr lofti. Stafirnir SÁ eru ekki
eina áletrunin sem Jóhann hefur
skilið eftir sig í íslenskri náttúru.
„Á sínum tíma fór ég upp á Esj-
una með þremur félögum mínum. Í
bakpokanum var skilti úr ryðfríu
stáli sem stóð á STEINN. Við fest-
um skiltið upp og merktum Stein-
inn,“ sagði Jóhann. „Við getum farið
hvenær sem er upp eftir og náð í
skiltið sem við settum þarna upp!“
Sjálfboðaliði græðir upp auðnina
Jóhann Krist-
jánsson hefur bjarg-
að jarðvegi og grætt
upp örfoka land
Ljósmynd/Úr einkasafni
Landgræðslustarf Jóhann Kristjánsson dreifir áburði og grasfræinu með skóflu. Fljótt spretta upp grastoppar sem binda jarðveginn. Skjaldbreiður í baksýn.