Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 38

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. lokað Við leitum að listaverkum erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Við leitum að verkum eftir fumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, louisu matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason, Jóhann Briem, Þorvald Skúlason og Nínu tryggvadóttur. Þá erum við einnig með kaupendur að góðum verkum eftir Kristján Davíðsson, Georg Guðna, alfreð Flóka, Braga Ásgeirsson, tryggva Ólafsson og Stórval. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Þýski bílarisinn Volkswagen til- kynnti í síðustu viku að hann hygðist hætta framleiðslu á Volkswagen- bjöllunni á næsta ári, en ætlun fyrir- tækisins er að leggja meiri áherslu á rafmagnsbíla og stærri fjölskyldu- bíla. Í vetur mun bjallan koma út í tveimur mismunandi gerðum, bæði sem blæjubíll og með föstu þaki, en síðasti bíllinn kemur af framleiðslu- línunni í júlí 2019. Hinrich Woebcken, framkvæmda- stjóri Volkswagen Group í Banda- ríkjunum, viðurkenndi að bjallan ætti sér marga aðdáendur sem yrðu eflaust leiðir vegna ákvörðunarinnar, en tók fram að hann útilokaði ekki að bjallan myndi eiga afturkvæmt í framtíðinni og sagði: „Aldrei að segja aldrei.“ Vafasamar rætur Volkswagen-bjallan er ein þekkt- asta og ástsælasta bifreiðarhönnun 20. aldarinnar, en hún var upp- haflega hönnuð af bílsmiðnum fræga Ferdinand Porsche árið 1936 að beiðni Adolfs Hitler, leiðtoga þriðja ríkisins. Markmiðið með hönnuninni var að búa til bíl sem væri ódýr og að- gengilegur fyrir almenning, „vagn fólksins“. Örlögin höguðu því hins vegar þannig að bifreiðin fór ekki í fram- leiðslu fyrr en eftir lok síðari heims- styrjaldar, þegar bandamenn leituðu leiða til þess að fá þýska bílaiðnaðinn aftur í gang. Um 20.000 bjöllur voru þá framleiddar fyrir breska hersetu- liðið í Þýskalandi og sala til almenn- ings fylgdi fljótlega í kjölfarið. Vinsældir bílsins voru hins vegar minni utan Þýskalands, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem menn veigr- uðu sér við að kaupa „nasistabíla“. Á því varð hins vegar nokkur breyting árið 1959, þegar auglýs- ingastofan Doyle Dane Bernback ákvað að gefa bílnum nafnið „bjallan“ og lagði áherslu á að stærð bílsins gæti verið kostur fyrir neytendur. Sjöundi áratugurinn reyndist gull- öld bjöllunnar, sem seldist sem aldrei fyrr. Árið 1968 var bíllinn notaður sem aðalhetjan í kvikmyndinni „Ást- arbjallan Herbie“, en bíllinn var á þeim tíma nánast orðinn að hálfgerðu einkenni fyrir hippatímabilið sem þá stóð í sem mestum blóma. Bíllinn var auðveldur í rekstri og auðvelt að gera við hann, auk þess sem oftast var hægt að eignast einn slíkan grip tiltölulega ódýrt. Vinsældir bílsins á þessum tíma má einnig sjá í listaverkum Andy Warhol, auk þess sem ein bjalla slæddist með á umslag bítlaplöt- unnar Abbey Road, en það er líklega ein frægasta ljósmynd tónlistarsög- unnar. Bjallan átti þó eftir að draga nokkurn dilk á eftir sér, þar sem bíl- númer hennar, „28 IF“, varð óvænt að einni „vísbendingu“ í þeirri gölnu samsæriskenningu sem spratt upp um þetta leyti, um að bassaleikarinn Paul McCartney væri látinn. Ótímabærar andlátsfregnir Eftir sjöunda áratuginn hallaði undan fæti hjá bjöllunni og fram- leiðslu hennar var hætt árið 2003. Þá höfðu 21.529.464 bjöllur verið fram- leiddar í heiminum, sem er heims- met. Árið 2011 ákvað Volkswagen að „endurlífga“ bjölluna með nýrri hönnun, sem fór misjafnlega vel í aðdáendur upprunalega bílsins. Engu að síður sést á þeirri ákvörðun, að það er engan veginn loku fyrir það skotið að þessi gamalkunni vinur á veginum muni eiga afturkvæmt. Gamalkunnur vinur kveður  Framleiðslu Volkswagen-bjöllunnar verður hætt á næsta ári  Ein vinsælasta bifreiðartegund frá upphafi  „Aldrei að segja aldrei,“ segir framkvæmdastjóri VW Group um framtíð bjöllunnar Hér á landi fékk bílasalan Hekla hf. umboð fyrir Volkswagen- bifreiðar árið 1952 og fóru fyrstu bílarnir í sölu ári síðar. Bjallan naut fljótlega nokkurra vinsælda og varð hún um langt skeið ein söluhæsta bifreið landsins, ef ekki sú söluhæsta. Alls voru seldar um 14 þúsund „upprunalegar“ bjöllur hér á landi þar til innflutningi á þeim var hætt árið 1976, eða um það leyti sem framleiðslu á bílnum var hætt í Þýskalandi. Talið er að Viggó Maack skipaverkfræðingur hafi eignast fyrstu bjölluna sem seld var hér á landi, og sagði hann í samtali við Dagblaðið Vísi árið 1986 að bíllinn hefði verið „mektarbíll“ sem hefði hentað sér og fjöl- skyldu sinni vel, þar sem alltaf hefði verið pláss í bílnum. Einn sölu- hæsti bíllinn BJALLAN Á ÍSLANDI Hætt verður að framleiða Volkswagen bjölluna á næsta ári Fyrstu hugmyndir umVW júlí 1935 Fólksvagninn Heimild : Volkswagen/AFP Photo Grindin og boddíið gerð úr tré og stáli Blæjubjalla 1949 Tveggja sæta með opnanlegu þaki Bjalla árgerð 1967 1952 Pretzel Dune blæjubíll 2016 Nýja bjallan 1997 2003 Síðasta útgáfa bjöllunnar Lokaútgáfa blæjubílsins 2010 Nokkrar útgáfur Síðasta bjallan, númer 21.529.464 af uppruna- legu hönnuninni kemur af færibandinu Morgunblaðið/Eggert Bjallan VW-bjallan naut mikilla vinsælda hérlendis. Þessi forláta bjalla, sem finna má í sýningarsal Heklu, var framleidd árið 1952 og er enn ökufær. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA? Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.