Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 46

Morgunblaðið - 20.09.2018, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÁÍslandi ferkosninga-umræða í fjölmiðlum einkum fram í „RÚV“ síð- ustu vikur fyrir kosningar. Ekki verður sagt að sú kynning eins og hún hefur þróast síðustu ár auðveldi kjósendum að gera upp hug sinn. Aðrir fjölmiðlar halda sig meir til hlés en áður, þegar flokkslitun var áberandi og fjölmiðlar (í hefðbundnum skilningi) voru fleiri. Augljóst er að þessir fjölmiðlar telja kosningaefni ekki fréttavænt og eftirspurn takmarkaða. Sama virðist gilda um eldhús- dagsumræður og stefnuræðu forsætisráðherra þar sem áhorf hefur minnkað. Því vek- ur óneitanlega athygli hversu vel stærstu fjölmiðlar vest- anhafs sinna stjórnmála- umræðu og þá sérstaklega annað hvert ár, þegar kosið er. Þessir fjölmiðlar og þá ljós- vakamiðlar sérstaklega verða þó að taka ríkulegt tillit til áhorfs því það ræður öllu um tekjugrundvöllinn. Stór hluti fréttaþátta, umræðu- og fréttaskýringaþátta er yfir- fullur af stjórnmálalegum fréttum. Þegar prófkjör standa yfir hjá flokkunum tveim í einstökum ríkjum eða kjördæmum eru iðulega bein- ar útsendingar þaðan fram eftir öllu og fjölmennt útsend- ingarlið og fréttamenn á staðnum. Og það sem mesta undrun vekur þó annars stað- ar í ljósi þessa, er hversu dræm þátttaka almennings er samt í kosningum í nóvember. Gauragangur fjölmiðla er sýnu meiri þau ár þegar auk þriðjungs öldungadeildar og allrar fulltrúaráðsdeildar er kosið um Hvíta húsið. En þrátt fyrir þær flugeldasýningar þykir gott ef kjörsókn kemst sæmilega yfir 50% í lok þeirra. Í kosningum á „miðju kjör- tímabili“ er forsetinn ekki í kjöri, þótt í bakgrunni sé. Og þá dregur enn úr kosninga- þátttöku og þykir gott ef 40% kjósenda mæta á kjörstað. Repúblikanar leggja inn í kosningar nú með meirihluta í báðum þingdeildum. Þeir hafa tveggja sæta meirihluta í öld- ungadeild, sé laust sæti McCa- ins talið með. Í fulltrúadeild er meirihlutinn mun ríflegri eða 23 þingmenn. Í sumum fjöl- miðlum er nú sagt að meiri- hlutinn í þinginu kunni að vera í hættu „vegna óvinsælda Trumps“. Óháð þeirri klisju er það annað lögmál sem gæti bent til að repúblikanar töp- uðu meirihluta í báðum þing- deildum. Meg- inreglan sem reynslan ákvarðar er sú að flokkur forsetans tapi fylgi í þinginu í þessum „milli“- kosningum. Þegar horft er til meðaltals síðustu 20 „milli“kosninga þá sést að flokkar forsetans tapa að með- altali 4 þingmönnum í öld- ungadeild og 30 þingmönnum í fulltrúadeild. Miðað við áð- urgreindar tölur standa líkur því til þess að repúblikanar verði í minnihluta í báðum deildum eftir kosningar. Stuð- púðinn er of lágur. Repúblikanar eru bersýni- lega viðbúnir því að missa meirihluta sinn í fulltrúadeild- inni, þótt forsetinn sjálfur sé brattur og telji ekki óhugsandi að þingmenn flokksins þar geti haldið velli og jafnvel auk- ið meirihluta sinn! Þótt aðrir í flokksforystunni séu fjarri því að vera svo bjartsýnir þá telja þeir sig enn eiga von um að halda meirihluta í öld- ungadeildinni, þrátt fyrir meðaltalsregluna. Ástæðan er þessi: Þar sem kosið er um þriðjung þingmanna í öld- ungadeild, sem kjörnir eru til 6 ára skiptir máli hvaða sæti koma til endurkjörs. Og í þessum kosningum vill svo til að mun fleiri sæti demókrata (og 2ja „óháðra“ sem greiða atkvæði með þeim) koma til kjörs, en þau sæti sem repú- blikanar hafa setið, eða 24 (plús 2) hjá demókrötum en aðeins 8 sæti repúblikana. Sennilega verður ekki kosið um sæti McCains. Haldi repúblikanar 50 þing- sætum í öldungadeild halda þeir virkum meirihluta þar, því falli atkvæði þar jöfn greiðir Pence varaforseti (for- seti öldungadeildarinnar) úr- slitaatkvæðið og vitað er hvar það lendir. Skoðanakannanir hafa sýnt demókrata með mun meira fylgi kjósenda í komandi kosn- ingum. Síðustu vikur hefur þó aðeins dregið úr þeim mun. Talnaspekingar repúblikana segja að fari munur á fylgi flokkanna í könnunum niður fyrir 7% aukist líkur á því að repúblikanar haldi meirihluta í báðum deildum. Ástæðan er önnur meðaltalsregla. Hún sýnir að repúblikanar eru mun staðfastari í að fara á kjörstað en demókratar. Demókratar halda þó í þá von að þeir eigi nú öflugan óvæntan smala sem muni koma þeirra kjósendum á kjörstað. Donald J. Trump forseta. Það getur því allt gerst. Þótt ekki sé nú kosið um forseta í Bandaríkjunum þykja kosningarnar spennandi} Spenna eykst nokkuð Ö ðru hverju rekst maður á fólk sem hefur svo gamaldags viðhorf til samskipta kynjanna að maður trúir varla að því sé alvara. Það sem kemur kannski enn meira á óvart er að einhver sjái tilefni til að gera slík- um viðhorfum hátt undir höfði. Sumir reyna að réttlæta ýmiss konar ósæmilega hegðun og ruddaskap með þeim rökum að þetta hafi nú ekki þótt mikið mál hérna einu sinni. Því mið- ur snúast slíkar réttlætingar oftast um forn- eskjulegt viðhorf til kvenna. Í fyrradag las ég stuttan pistil þar sem slík viðhorf voru höfð í flimtingum. Mér þótti verra að sjá að þessum orðum var hampað á síðum Morgunblaðsins. Höfundur pistilsins hugsar til baka til þeirra tíma þegar það þótt sjálfsögð hegðun að „tendra sig upp á brenni- víni og Camel-smók“ og bjóða stelpunum upp og reyna „allt til að vanga þær og trukka og helst að komast í sleik“. Gefið er í skyn að svona hafi þetta bara verið og þar með eðlilegt. Veltum því í alvörunni fyrir okkur að jafnvel þó að þessi hegðun hafi verið algeng á árum áður, var hún þá eðlileg? Að vísa í gamla tíma með rökum um að svona hafi þetta verið réttlætir ekki ofbeldi eða kvenfyrirlitn- ingu. Það minnir aðeins á þá staðreynd að á þeim tíma stigu brotaþolar ekki fram og sögðu ekki frá brotum eða ósæmilegri hegðun í sinn garð. Hegðun sem er ekki í lagi í dag var heldur ekki í lagi þá. Það hefur ekkert með pólitísk- an rétttrúnað að gera, heldur almenna virð- ingu fyrir fólki. Að standa gegn kynferð- isbrotum hefur heldur ekkert að gera með pólitískan rétttrúnað. Ég kæri mig lítið um að menn blandi dólgslegri hegðun í garð kvenna inn í umræðu um pólitískan rétttrúnað og saki þá sem ekki hlæja að gömlum grodd- arasögunum um að hafa tapað sér í rétttrún- aði. Í kjölfar #metoo-byltingarinnar skrifaði ég pistil í þennan sama dálk í fyrra þar sem ég sagði að stærsti árangur þeirrar umræðu sem nú hefði skapast væri að þeir sem tileink- uðu sér ekki virðingu í samskiptum mundu að lokum dæma sjálfa sig úr leik. Það er óþarfi fyrir Morgunblaðið að skipta þeim aftur inn á. Einhverjum kann að finnast nóg komið af umræðu um #metoo, en það er ljóst að sú bylting er komin til að vera – og sem betur fer. Mögulega hefur gleymst að spyrja ömmur okkar hvernig þær upplifðu þá tíma þegar strák- unum fannst eðlilegt að skvetta í sig brennivíni og reyna allt til að komast í sleik. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Að troða sér í sleik Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Viðbúið er að Bjarni Bene-diktsson, fjármála- ogefnahagsráðherra, leggi íhaust fram á þingi frum- varp um Þjóðarsjóð, varúðarsjóð sem verði eins konar áfallavörn fyrir þjóðina ef stórtæk efnahagsleg áföll ríða yfir, s.s. vegna vistkerfisbrests, náttúruhamfara eða sjúkdómsfar- aldurs. Bjarni kynnti hugmyndina upphaflega á ársfundi Landsvirkj- unar 2016 og stefnt er að stofnun sjóðsins í stjórnarsáttmálanum. Nú hafa hugmyndirnar um sjóðinn verið útfærðar og hafa áformin um lagasetningu og mat á áhrifunum verið birtar á samráðs- gátt stjórnvalda. Fram kemur að um sé að ræða viðbúnað vegna áfalla sem ríkissjóður hefði að óbreyttu ekki nægilegan fjárhagslegan styrk til að mæta nema með því að skerða verulega velferð þjóðarinnar, t.d. náttúruhamfarir á borð við Heima- eyjargosið eða vistkerfisbrest eins og hrun síldarstofnsins á sínum tíma. „Einnig gæti verið um að ræða atburði eða kringumstæður af allt öðrum toga, svo sem afleiðingar af stórfelldum netárásum á mikilvæga innviði landsins eða hryðjuverk,“ segir í greinargerðinni. Byggja á sjóðinn upp með tekjum af arðgreiðslum eða auð- lindaafnotagjöldum frá orkuvinnslu- fyrirtækjum á forræði ríkisins, eink- um Landsvirkjun. Þjóðarsjóðurinn verður eign íslenska ríkisins en ekki á að nota sjóðinn til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika eða vera mótvægi við tímabundnar hag- sveiflur og ekki verður heimilt að draga á sjóðinn til að fjármagna auk- inn ríkisrekstur, tilfærslur til heim- ila eða framkvæmdir. „Fyrirhugað er að Þjóðarsjóður fái framlög úr ríkissjóði sem svari til tekna af arð- greiðslunum frá orkuvinnslufyr- irtækjunum og að hann fjárfesti þá fjármuni einvörðungu í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfesting- arstefnu sem stjórn sjóðsins setur með samþykki ráðherra,“ segir í um- fjölluninni. Er talin ástæða til að stefna að því að byggja sjóðinn upp þar til stærð hans verði orðin um 10% af vergri landsframleiðslu. Til skoð- unar er að sett verði „gólf“ fyrir út- hlutunum úr Þjóðarsjóði „á þá leið að ráðstöfun úr sjóðnum komi ein- ungis til álita ef fjárhagsáfall svarar til meira en 5% af tekjum ríkissjóðs“. Lagt er til að fyrirkomulagið verði með þeim hætti ef stór áföll ríða yfir verði heimilt með samþykki Alþingis að veita fé úr Þjóðarsjóði til ríkissjóðs, sem nemi allt að helmingi eigna sjóðsins á hverjum tíma. Heimilt að ganga á helming eigna sjóðsins hverju sinni Settar eru fram hugmyndir um að þörf væri fyrir greiðslur úr Þjóð- arsjóði þegar stórt áfall væri farið að nema a.m.k. nokkrum tugum millj- arða króna, t.d. 50 milljörðum, um- fram það sem kynni að vera borið af öðrum tryggingum. „Miðað við þetta og að einungis væri gengið á helm- ing eigna sjóðsins hverju sinni er tal- ið skynsamlegt að stefnt verði að því að framtíðarstærð sjóðsins verði nálægt 250-300 [milljarðar kr.] eða nærri tíu hundraðs- hlutar af [vergri landsfram- leiðslu]. Ætla má að það gæti tekið um fimmtán til tuttugu ár að byggja upp slíkan sjóð miðað við varfærnislegar for- sendur um þá fjármuni sem gera má ráð fyrir að til hans falli á kom- andi árum og um ávöxtun þeirra.“ 250 til 300 milljarðar renni í Þjóðarsjóðinn Fram kemur í mati fjármála- ráðuneytisins á áhrifum fyrir- hugaðs Þjóðarsjóðs að skv. fyr- irliggjandi sviðsmyndum Landsvirkjunar gætu arð- greiðslur fyrirtækisins hækkað um 10-20 milljarða á ári. Til bráðabirgða er gengið út frá því að fjárhæðin verði að lágmarki 10 milljarðar og að jafn hátt framlag verði að jafnaði veitt til Þjóðarsjóðs. Fyrst um sinn yrði þó hluta arðgreiðsluteknanna varið í átak í uppbyggingu hjúkr- unarrýma og til nýsköp- unar í atvinnulífinu en í stjórnarsáttmálanum er gert ráð fyrir að sett verði bráðabirgðaákvæði um að árleg framlög í Þjóðarsjóð verði tímabundið lægri en arð- greiðslutekj- urnar. 10-20 millj- arðar á ári FRAMLÖG Í ÞJÓÐARSJÓÐ Bjarni Benediktsson Morgunblaðið/Ómar Virkjun Miðað við arðgreiðslur orkuvinnslufyrirtækja og 10 milljarða árleg framlög gæti uppsöfnuð staða sjóðssins náð 250-300 milljörðum á 15 árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.