Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 51
Friðrika Hjördís Geirsdóttir islandvaknar@k100.is „Typpi óskast! Ég leita að typpi sem er til í að vera með í gerð fræðslumyndbands um smokka- notkun. Ekki mun sjást í andlit við- komandi, einungis svæði líkamans frá cirka nafla að lærum og svo hendurnar,“ skrifar Sigga Dögg kynfræðingur á facebook-síðu sinni í vikunni en þarna leitar hún að sjálfboðaliðum sem vilja taka þátt í fræðsluverkefni á vegum hennar sjálfrar, Embættis landlæknis, Há- skóla Íslands og Ástráðs, kyn- fræðslufélags læknanema. Hún seg- ir viðbrögðin ekki hafa látið á sér standa og nú þegar sé hún komin með nokkra álitlega til verksins. Þeir einstaklingar sem taka þátt í verkefninu fá ekki greitt fyrir fram- lagið á hefðbundin máta heldur verður andvirði launanna nýtt til góðra verka. „Ég var rosalega mikið að velta þessu fyrir mér, hversu mikill peningur er sanngjarn pen- ingur? Hausinn á mér fór í svona fjórtán hringi,“ segir Sigga Dögg sem komst svo að lokum að sann- gjarnri niðurstöðu. „Ég er svo hrifin af því að gefa sannar gjafir og við fjölskyldan gefum þær oft í jólagjöf. Þannig að ég hugsaði að við mynd- um bara frekar kaupa vatnsbrunn til Afríku, getum gefið bólusetn- ingar og hnetusmjörsmauk.“ Af hverju setur maður smokk á banana? Myndbandið sem verður gert op- inbert í október er til þess gert að vekja athygli á notkun smokka og efla fræðslu um notkun þeirra á eins raunverulegan máta og kostur er. „Við erum búin að vera að kenna það hvernig á að setja smokkinn á typpið í langan tíma á tré- eða plast- typpi og banana. Sumir hafa alltaf misskilið það og spurt; af hverju er maður alltaf að setja smokkinn á banana? Einn til dæmis var í alvör- unni með smokk á banana og skildi ekkert í því af hverju hann virkaði ekki sem verja.“ Fólkið sem vill bæta kynfræðsluna Sumir gætu velt því fyrir sér hvers konar fólk það sé sem tilbúið er að senda myndir af kynfærum sínum til ókunnugrar konu, vitandi það að þær verði jafnvel sýndar gestum og gangandi. „Þetta er alls konar fólk, ótrúlega venjulegt fólk sem finnst þetta mikilvægt og lang- ar að breyta einhverju í kynfræðslu, finnst jafnvel ástand mála ekki nægilega gott og hugsar að ef það geti hjálpað þá sé það bara sjúklega til í það.“ Þeir sem hafa áhuga á því að verða að liði geta fengið frekari upplýsingar á facebook-síðu Siggu Daggar eða sent henni tölvupóst á sigga@siggadogg.is Leitin að limnum Kynfræðingurinn Sigríður Dögg Arnardóttir er hvergi nærri hætt að fræða landann um kynlíf og málefni því tengd. Í nýjasta verkefninu leitar hún að typpum til að nota í fræðslumyndband um smokkanotkun. Morgunblaðið/Rikka Typpi til fræðslu Sigga Dögg leitar að typpum og segir karlmenn ekki hafa látið á sér standa. nema við sjálf, íbúarnir á þessum hnetti, tökum markmiðin alvarlega. Elíza Gígja er jafnframt hluti af ungmennaráði Sameinuðu þjóðanna sem samanstendur af tólf fulltrú- um, víðs vegar að af landinu, á ald- ursbilinu 13-18 ára. Eitt af meginstefum heimsmark- miðanna er samvinna milli ólíkra hagsmunaaðila, þ.á m. ungmenna, segir á heimasíðu Stjórnarráðs Ís- lands. Í ljósi þess, og einnig 12. og 13. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveða skýrt á um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós og til að hafa áhrif á málefni er þau varða, var ákveðið að virkja þátttöku ungmenna á Íslandi í gegnum ungmennaráðið. Er það í samræmi við sáttmála ríkisstjórn- arinnar þar sem kveðið er á um að framfylgja skuli ákvæðum Barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna, m.a. um aukin áhrif barna í samfélaginu. Þannig mun ungmennaráðið funda sex sinnum á ári og árlega með ríkisstjórn, auk þess sem hlut- verk ráðsins er að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Elíza heldur vídeódagbók og fræðir jafnaldra Elíza mun deila upplifun sinni og reynslu með bloggum og sam- félagsmiðlum meðan á verkefninu stendur. Einnig verða gerðir tveir sjónvarpsþættir um ferðina sem verða sýndir á RÚV í haust. Fulltrúar ráðuneytisins hafa nú þegar farið til Úganda til að und- irbúa tökur erlendis. Áslaug Karen segir Elízu Gígju eiga eftir meðal annars að fara inn í hefðbundið fiskimannaþorp í Úganda. Þar muni hún kynnast stúlku á svipuðum aldri, sem þau hafa fundið til að taka þátt í verkefninu. Þannig mun Hulda Bjarnadóttir hulda@k100.is Elíza Gígja Ómarsdóttir var valin úr stórum hópi íslenskra ungmenna til að fara til Úganda á vegum ut- anríkisráðuneytisins til að kynna sér heimsmarkmið Sameinuðu þjóð- anna. Á sunnudag heldur hún til Úganda. Tilgangurinn með ferðinni er að kynna 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. „Þú lýgur“ Karen, upplýsingafulltrúi heims- markmiðanna og Elíza Gígja kíktu í síðdegisþáttinn á K100 og fóru yfir framvindu verkefnisins og fram- haldið á þessu ævintýri. Elíza Gígja er 15 ára gömul reykvísk stúlka sem sótti um starfið þegar íslensk stjórnvöld auglýstu nýverið eftir unglingi fæddum 2003 til þess að taka þátt í kynningu á heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna. Stíft umsóknarferli tók við enda sóttu 80 unglingar um starfið. Að lokum mætti Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra á hliðarlínuna á fót- boltaleik þar sem systir Elízu Gígju var að keppa og tilkynnti henni að hún hefði verið valin. Hún segist ekki muna mikið eftir því samtali en hún man eftir því að hafa sagt við forsætisráðherra „Þú lýgur.“ Katrín fullvissaði hana þó um að hún væri ekki að grínast og að Elíza Gígja væri á leið til Úganda. Eitt markmiðanna að útrýma hungri Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun fela í sér fyrirheit um friðsælli, öruggari og almennt betri heim þar sem bæði velferð jarðarbúa og jarðarinnar sjálfrar eru í öndvegi. Eitt mark- miðanna miðar meðal annars að því að útrýma fátækt og hungri. Þessi metnaðarfyllstu markmið sem þjóðir heims hafa sett sér um brýnustu viðfangsefni samtímans verða hins vegar ekki að veruleika hún spegla tilveru sína í öðrum unglingi og bæta við sig þekkingu um frábrugðið líf unglingsins hér á landi. Metnaðarfyllstu mark- miðum heims fylgt eftir Elíza Gígja Ómarsdóttir var valin úr stórum hópi íslenskra ungmenna til að fara til Úganda á veg- um utanríkisráðuneyt- isins til að kynna sér heimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna. Ungmennaráð Ráðið samanstendur af tólf fulltrúum víðs vegar að af landinu, á aldursbilinu 13-18 ára. Elíza Gígja Ómarsdóttir Andlit auglýsingaherferðar ut- anríkisráðuneytisins sem ætlað er að kynna 17 heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. 10% afsláttur af öllum trúlofunar- og giftingarhringapörum Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.