Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 68

Morgunblaðið - 20.09.2018, Qupperneq 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er ótrúlega gaman og mikill heiður að fá að koma fram með Petri á þessum tímamótum,“ segir Þóra Einarsdóttir sópran sem syngur ein- söng á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 undir stjórn Petris Sakari. Svo skemmtilega vill til að í nóvember fagnar Petri Sakari sex- tugsafmæli sínu og um sama leyti eru 30 ár liðin frá því að hann tók við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfón- íunnar. „Í tilefni af þessu tvöfalda af- mæli stjórnar Sakari tónleikum helg- uðum tveimur meisturum hljóm- sveitartónlistar: Pjotr Tsjajkovskíj og Richard Strauss,“ segir í tilkynn- ingu frá Sinfóníunni. „Ég er búin að fylgjast með Petri sem hljómsveitarstjóra frá því ég var unglingur,“ segir Þóra og bendir á að það sé ekkert launungarmál hversu mikil og jákvæð áhrif Sakari hafi haft bæði á Sinfóníuna og tónlistarlífið heilt yfir hérlendis. Þóra og Sakari hafa unnið nokkuð saman á umliðnum ár- um, en hann stjórnaði meðal annars óperunni Ragnheiði eftir Gunnar Þórðarson við texta Friðriks Erlings- sonar þar sem Þóra söng titilhlut- verkið. Á tónleikum kvöldsins syngur Þóra Fjóra síðustu söngva Richards Strauss, en auk þess leikur hljóm- sveitin Ævintýri Ugluspegils eftir Strauss og Sinfóníu nr. 5 eftir Tsjaj- kovskíj. Gleymir nánast að syngja „Fjórir síðustu söngvar voru síðasta verkið sem Strauss lauk við, kominn á níræðisaldur í rústum heimsstyrjald- arinnar síðari árið 1948. Ljóðin sem hann samdi við eiga það sameiginlegt að fjalla öll um ævilokin á ótrúlega fal- legan hátt,“ segir Þóra sem aldrei áð- „Þykkur og mikill hljóm- sveitarvefur“  Þóra Einarsdóttir syngur einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þann 29. júlí árið 1890 lést hol- lenski listmálarinn Vincent van Gogh af völdum skotsárs. Hann var 37 ára. Um hálfu ári síðar, 25. janúar 1891, lést svo yngri bróðir hans, Théo, 34 ára, eftir langvar- andi veikindi. Í bókinni Þetta var bróðir minn … eftir franska blaða- manninn og rithöfundinn Judith Perrignon er samband þeirra bræðra rakið frá sjónarhóli Théos og var bókin skrifuð til að færa fyrrnefndar dagsetningar nær hvor annarri, eins og segir aftan á kápu hennar. Í bókinni setur Perrignon sig í spor Théos, fær að láni rödd hans og minningar og styðst í skrifum sínum m.a. við hin þekktu bréf sem bræðurnir skrifuðu hvor öðr- um, sem og sjúkraskýrslur Théos. Bókin er fallega skrifuð, þrungin sorg og sársauka en um leið full væntumþykju Théos í garð eldri bróður síns sem hann dáðist mikið að, eins og frægt er, og gerði allt sem í hans valdi stóð til að koma list hans á framfæri. Fyrir bókina hlaut Perrignon bókmenntaverðlaunin Marianne árið 2007, ári eftir að bókin kom út í Frakklandi. Og nú er hún komin út hér á landi í íslenskri þýðingu Rutar Ingólfsdóttur en það er bókaútgáfan Ugla sem gef- ur út. Að deyja úr sorg Perrignon var stödd hér á landi fyrr í mánuðinum til að kynna bókina í tilefni af útgáfu hennar á íslensku og segist hún hafa unnið ítarlega heimildarvinnu fyrir skrif- in og verið heltekin af viðfangsefn- inu meðan á skrifunum stóð. „En svo kemur önnur bók og svo önnur og önnur og það er mjög skrítið hvað ég var fljót að gleyma þess- ari þráhyggju sem ég hafði fyrir viðfangsefninu,“ segir hún og brosir. Hún hafi reynt eftir fremsta megni að setja sig í spor Théos og inn í hugarheim hans og leitað allra mögulegra upplýsinga um hann. „Heilsu hans hrakar sífellt eftir því sem líður á bókina, á fá- einum mánuðum og mig langaði að skilja til fullnustu þessa sorg sem hrjáði hann og veikindin. Við vit- um ekki nákvæmlega hvað gerðist en í ævisögu van Goghs er Théo ein af aðalpersónunum því hann hjálpaði bróður sínum mjög mikið og undir lok hennar stendur að Théo hafi dáið úr sorg. Það kemur fram í öllum bókum um ævi van Goghs og ein af ástæðunum fyrir því að ég vildi segja frá þessum sex mánuðum í lífi hans. Það hafði aldrei verið gert áður og ég vildi skilja hvernig það væri að deyja úr sorg,“ segir Perrignon. En hvernig fékk hún hugmynd- ina að bókinni? „Ég dái bréfin sem bræðurnir skrifuðu hvor öðrum, mér finnst þau undurfalleg,“ segir Perrignon, og þessi staðhæfing um að Théo hafi látist sex mánuðum síðar úr sorg vakti forvitni mína og ég velti fyrir mér hvernig væri að deyja úr sorg. Ég ákvað því að endurskapa þessa atburðarás, segja frá því sem gerðist frá dauða Vincents fram að dauða Théos.“ Perrignon segist í fyrstu hafa verið smeyk við að segja söguna í fyrstu persónu, sem Théo, en verið hvött til að halda því áfram af út- gefandanum. Bæði ljóðræn og hversdagsleg Til að undirbúa sig og kynnast Théo segist Perrignon hafa kynnt sér heimildir bæði í París og Amsterdam og lesið bréf bræðr- anna mjög nákvæmlega og þá ekki bara hvors til annars heldur líka móður þeirra og systur. Hún segir mikla hefð hafa verið fyrir bréfa- skrifum í van Gogh-fjölskyldunni og þessi bréf séu afar góð heimild um bæði tímann sem þau voru skrifuð á og þá sem skrifuðu þau. „Bréf eru mjög hversdagsleg og þú skrifar m.a. um það sem þú hefur verið að gera, um hvað þú ert að hugsa, hvernig þú hefur sof- ið og fleira þess háttar og þannig varð það auðveldara fyrir mig að setja mig inn í hugarheim Théos,“ segir Perrignon. – Þegar maður les þessi bréf sér maður að bréfaskriftir voru eigin- lega listform í sjálfu sér á þessum tíma, þau eru á köflum svo ljóð- ræn og tilfinningarík … „Já, þau eru stundum mjög ljóð- ræn en stundum mjög hversdags- leg, t.d. þegar þeir eru að skrifa móður sinni eða systur,“ svarar Perrignon. En í samanburði við tölvupóst og skilaboð á okkar tím- um – örfá orð og broskalla – komi þau vissulega fyrir sjónir sem ljóð- rænn og fallega skrifaður texti. Perrignon segir alla þekkja goð- sögnina van Gogh, fámála listmál- arann sem skar af sér eyrnasnep- ilinn í einhverju æðiskasti. Fólk þykist vita hver van Gogh var og Hvernig er að deyja úr sorg?  Í skáldsögunni Þetta var bróðir minn … fjallar Judith Perrignon um bræðurna Vincent og Théo van Gogh  Bréf og sjúkraskýrslur meðal heimilda Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sorgarsaga „Við vitum ekki nákvæmlega hvað gerðist en í ævisögu van Goghs er Théo ein af aðalpersónunum því hann hjálpaði bróður sínum mjög mikið og undir lok hennar stendur að Théo hafi dáið úr sorg,“ segir Perrignon. Bræður Kápa bókarinnar Þetta var bróðir minn ... eftir Perrignon.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.