Morgunblaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
Fyrstu tónleikar tónleikaraðarinnar Á ljúfum nótum í
Fríkirkjunni verða í dag, fimmtudag, kl. 12. Þar flytja
Ágúst Ólafsson barítón og Gerrit Schuil píanóleikari
ljóðaflokkinn An die ferne Geliebte eftir Ludwig van
Beethoven ásamt fleiri sönglögum eftir sama tónskáld.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa í um hálfa klukku-
stund. Miðar eru seldir við innganginn.
Flytja ljóðaflokk eftir Beethoven
Ágúst Ólafsson
Aðal bókaforlagsins Dimmu er inn-
lendar og erlendar fagurbók-
menntir.
Tregahandbókin eftir Magnús
Sigurðsson kom út snemmsumars
og er samsteypa af frumsömdum
ljóðum, prósum og lánstextum úr
ýmsum áttum. Magnús valdi einnig
og þýddi ljóð eftir nítján bandarísk
skáld sem birtast í bókinni Að lesa
ský. Skáldin í safninu eru mis-
þekkt, það elsta fætt árið 1903 en
hið yngsta 1984.
Sorgarmarsinn eftir Gyrði Elías-
son, sjöunda skáldsaga hans, rekur
endahnútinn á sagnaþríleik hans
sem hófst með Sandárbókinni og
var síðan fram haldið í Suður-
glugganum. Allar bækurnar fjalla
um líf og störf listamanna, sú
fyrsta um málara, önnur um rithöf-
und, en sú þriðja um tónsmið.
Eftirbátur Rúnars Helga Vign-
issonar segir frá Ægi sem leitar að
sjómanninum föður sínum eftir að
bátur hans finnst mannlaus út af
Vestfjörðum. Í leit sinni fer hann
vítt og breitt um stórbrotna nátt-
úru og sögu Vestfjarða þar sem
rætur hans sjálfs liggja. Á sama
tíma eru teikn á lofti í fjölskyldulíf-
inu og brestir komnir í hina hefð-
bundnu karlmennskuímynd.
Tvær bækur með ljóðaþýðingum
eru nýkomnar út. Dansað í Ódessa
eftir rússnesk-bandaríska skáldið
Ilya Kaminsky var síðasta verkið
sem Sigurður Pálsson vann að, en
auðnaðist ekki að ljúka sökum
veikinda sinna. Þegar ljóst varð að
lítið vantaði upp á til að klára bók-
ina til útgáfu, kom Sölvi Björn Sig-
urðsson að verkinu, þýddi það sem
út af stóð og ritaði formála.
Dimma gefur einnig út út þrjú
þýdd skáldverk á árinu, Hawkline-
skrímslið – gotneskan vestra eftir
Richard Brautigan í þýðingu Þórð-
ar Sævars Jónssonar, Þetta er Alla
eftir norska rithöfundinn Jon
Fosse í þýðingu Hjalta Rögnvalds-
sonar og Þar sem áin streymir eftir
Norman Maclean í þýðingu Skúla
Björns Gunnarsonar.
Hjá Dimmu koma einnig út tvær
barnabækur: Meira af Rummungi
ræningja eftir Otfried Preussler er
önnur bókin í þríleik um Rumm-
ung, og Dvergasteinn eftir Að-
alstein Ásberg Sigurðsson kemur
út í nýrri útgáfu enda hefur hann
verið ófáanlegur um árabil.
arnim@mbl.is
Innlendar og
erlendar fagur-
bókmenntir
Dimma gefur út
frumsamin skáld-
verk og innlend og
erlend ljóð
Gyrðir
Elíasson
Magnús
Sigurðsson
Rúnar Helgi
Vignisson
Sigurður
Pálsson
Sölvi Björn
Sigurðsson
Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson
Þýska leiklistarsambandið upplýsti
í gær að Þorleifur Örn Arnarsson
væri tilnefndur sem leikstjóri árs-
ins fyrir uppsetningu sína á verkinu
Die Edda eftir Þorleif og Mikael
Torfason. Faust-verðlaunin, sem
nefnd eru eftir titilpersónu í verki
eftir Goethe, verða veitt við hátíð-
lega athöfn í Regensburg 3. nóv-
ember.
„Það er mikill heiður að vera til-
nefndur til þessara verðlauna sem
eiga sér bæði langa og merkilega
sögu, og vera þar í flokki með
mörgum af merkustu listamönnum
20. aldarinnar. Það er líka sérlega
ánægjulegt að tilnefnt hafi verið
verk sem tengist Íslandi svona
órjúfanlegum böndum. Mikael
skrifaði fyrir verkið magnaða texta
um tilurð okkar sem menning-
arheims en ekki síður um þann
heim sem við búum í núna.
Umgjörðin og samhugurinn að
baki þessu risaverkefni var ein-
stakur og þó svo að tilnefningin
falli mér í skaut lít ég á það sem við-
urkenningu til allra þeirra sem að
þessu magnaða listaverki komu,“
segir Þorleifur Örn í tilkynningu
sem send var út í gær.
Tilnefndur sem leikstjóri ársins
Dúó Þorleifur Örn Arnarsson og Mikael
Torfason skrifuðu handritið að Die Edda.
Sjónarspil Úr sýningunni Die Edda.
Utøya 22. júlí
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 75/100
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 20.00, 22.10
Climax
20 nútímadansarar safnast
saman í lokapartí í yfirgefn-
um skóla. Smám saman
rennur það upp fyrir þeim að
einhver hefur sett sýru í boll-
una.
Metacritic 83/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Sorry to Bother You
Metacritic 81/100
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 20.00, 22.10
Kvíðakast
IMDb 6,1/10
Bíó Paradís 18.00
Söngur Kanemu
Bíó Paradís 18.00
Whitney
Metacritic 75/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 17.45, 22.00
Little Italy 12
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 19.40,
21.50
Sambíóin Akureyri 20.00
Sambíóin Keflavík 19.40
The Nun 16
Metacritic 46/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.10,
17.40, 19.30, 20.00, 21.50,
22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
19.40, 21.50
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 19.40,
22.00
The Meg 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 46/100
IMDb 6,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
22.30
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.00
Mission: Impossible
- Fallout 16
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 86/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.30
Sambíóin Egilshöll 21.00
Slender Man 16
Metacritic 30/100
IMDb 3,0/10
Smárabíó 22.30
Crazy Rich Asians
Metacritic 74/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 18.00,
20.00
Sambíóin Kringlunni 17.00,
19.30, 22.00
KIN 12
Metacritic 35/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 22.30
Alpha 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 63/100
IMDb 7,0/10
Smárabíó 22.20
Háskólabíó 20.40
The Spy Who
Dumped Me 16
Metacritic 52/100
IMDb 6,4/10
Laugarásbíó 22.15
Kona fer í stríð
Metacritic 81/100
IMDb 7,7/10
Morgunblaðið bbbbb
Háskólabíó 18.10
Book Club Metacritic 53/100
IMDb 6,1/10
Háskólabíó 18.30
Össi Össi er mjög heppinn hund-
ur. Hann býr hjá góðri fjöl-
skyldu sem elskar hann af-
skaplega mikið og lifið er
gott. En einn góðan veð-
urdag fer fjölskyldan í ferða-
lag og skilur Össa eftir í
pössun.
Laugarásbíó 17.30
Christopher Robin Christopher Robin hittir
skyndilega gamlan vin sinn
Bangsimon, og snýr með
honum aftur í ævintýraheim
bernskunnar.
Metacritic 59/100
IMDb 8,0/10
Sambíóin Kringlunni 17.20
Sambíóin Akureyri 17.40
Hin Ótrúlegu 2 Helen Teygjustelpu er boðið
nýtt starf sem hún getur
ekki hafnað. Bob Parr, Hr.
Ótrúlegur, þarf að þá annast
Jack-Jack, Dash og Violet á
meðan Teygjustelpa , fer og
bjargar heiminum.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.30
Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára
breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim
fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir
þær báðar.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,7/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.15
Smárabíó 15.50, 19.00, 19.30, 22.30
Háskólabíó 18.00, 21.00, 21.20
Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.40
Lof mér að falla 14
Mamma Mia! Here We Go Again Nú hefur Sophie tekið við rekstri gistiheimilisins og lærir
um fortíð móður sinnar á
sama tíma og hún er
ófrísk sjálf.
Morgunblaðið
bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 17.30, 19.50
Háskólabíó 18.20, 20.50
Borgarbíó Akureyri
17.00
The Predator 16
Rory opnar fyrir slysni leið
fyrir „Rándýrin“, grimmar
og blóðþyrstar geimverur
til að snúa aftur til jarðar.
Metacritic 49/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20
Smárabíó 19.50, 22.00, 22.30
Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.15
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio