Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 80
LJÓSADAGAR
AF ÖLLUM LJÓSUM,
PERUM OG KERTUM
30-50%
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Sibyl Urbancic
segir með mynd-
um og tón-
dæmum frá sjö
áhrifavöldum á
lífsferli sínum í
Hannesarholti í
kvöld kl. 20. Auk
Sibylar koma
fram Kristín E.
Mäntylä söngkona, Hólmfríður Sig-
urðardóttir píanóleikari og Auður
Hildur Hákonardóttir, myndlistar-
maður og höfundur. Sibyl fæddist í
Graz í Austurríki en ólst upp í
Reykjavík. Hún lagði stund á kirkju-
tónlist og orgel sem einleiks-
hljóðfæri við Tónlistarháskóla Vín-
arborgar sem hún varð síðar
kennari við. Hún hefur reglulega
haldið tónleika hérlendis og kennt.
Kvöldstund með Sibyl
Urbancic í kvöld kl. 20
FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 263. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr.
Morgunblaðið birtir í vetur úrvalslið
sitt eftir hverja umferð í Olísdeild
kvenna í handknattleik og í blaðinu
í dag má sjá fyrsta liðið sem valið
er að lokinni fyrstu umferðinni en
hún hófst á laugardaginn og lauk í
fyrrakvöld. Þá fjallar Ívar Bene-
diktsson um fyrstu umferðina og
það sem upp úr stendur eftir hana
frá leikjunum fjórum. »4
Lið umferðarinnar
í handbolta kvenna
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
„Aumingja Al Franken“: Hugleið-
ingar um bakslagsviðbrögð við
#MeToo nefnist fyrirlesturinn sem
dr. Eyja Margrét Brynjarsdóttir flyt-
ur í dag kl. 12 í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafns Íslands. Þar greinir hún
bakslagsviðbrögð við #MeToo með
aðferðum femínískrar heimspeki
með áherslu á valdatengsl og hags-
muni þeirra hópa sem eiga í hlut.
Athyglinni verður
beint að því hvernig
það þjónar
ákveðnum hags-
munum að þagga
niður þá umræðu
sem fór af stað með
#MeToo, svo ekki
sé minnst á
kröfurnar um
aðgerðir.
Greinir bakslagsvið-
brögð við #MeToo
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eusébio da Silva Ferreira var út-
nefndur knattspyrnumaður ársins í
Evrópu 1965, var markakóngur á
heimsmeistaramótinu í fótbolta 1966
og fékk gullskóinn 1968 fyrir að vera
markakóngur Evrópu. Hann náði
samt ekki, frekar en samherjar hans
í portúgalska liðinu Benfica, að
skora á móti Val í Evrópukeppni
meistaraliða að viðstöddum 18.243
skráðum áhorfendum á Laugardals-
velli fyrir um 50 árum, nánar tiltekið
18. september 1968.
Sigurður Dagsson í marki Vals
var ein helsta hindrunin sem Portú-
galarnir réðu ekki við. „Þetta var
sannarlega erfiður leikur,“ sagði
hann við Morgunblaðið eftir leik.
„Annars átti ég von á því að þeir
hittu betur, en skotin voru föst og
snögg. Ég reiknaði með að þurfa að
sækja boltann oft í netið í þessum
leik, jafnvel 5-8 sinnum.“
Hálfri öld síðar eru leikirnir við
Benfica enn ofarlega í minni. Fyrri
leiknum lauk með markalausu jafn-
tefli en Benfica vann síðan 8:1 í
Lissabon. „Þetta var ótrúlega gam-
an,“ segir Sigurður. „Við stóðum
okkur skrambi vel hérna heima og
ótrúlega vel úti líka, þó að mörkin
hafi verið mörg.“
Mikil spenna
Sigurður segir að mikil tilhlökkun
hafi ríkt vegna fyrri leiksins. Mönn-
um hafi vissulega brugðið þegar
Eusébio, einn frægasti leikmaður
heims á þessum tíma, hafi ekki verið
í leikmannahópnum, en síðar hafi
komið í ljós að hann hafi þurft að
taka á móti gullskónum og því komið
síðar. „Leikirnir eru ógleymanlegir
og segja má að fyrri leikurinn standi
upp úr á ferlinum,“ segir hann.
Óli B. Jónsson var þjálfari Vals á
þessum tíma. Hann lagði upp með
leikaðferðina 5-2-3 og lét Pál Ragn-
arsson elta Eusébio um allan völl.
Eftir leikinn sagði hann að leik-
skipulagið hefði gengið upp. Sig-
urður tekur í sama streng. „Palli af-
greiddi Eusébio og við sáum um
rest.“ Hann gerir lítið úr markvörsl-
unni en hrósar samherjunum. „Við
vorum hræddir við þá en skipulagið
gekk upp og strákarnir héldu bar-
áttuandanum á lofti.“
Eftir leik var móttaka á Loftleiða-
hótelinu. Sigurður segir að þess
vegna hafi menn flýtt sér í búnings-
klefanum og ekki gefið sér tíma til
að hugsa um árangurinn. „Við vild-
um mæta tímanlega í veisluna til
þess að fá sem mest út úr partíinu.“
Sigurður segir að jafnteflinu hafi
strax verið vel tekið utan vallar.
Hann rifjar upp að þegar hann hafi
ætlað að borga fyrir leigubílinn út á
Loftleiðahótelið hafi bílstjórinn sagt:
„Heyrðu Sigurður. Ég tek ekki fyrir
þetta.“ „Úrslitin þóttu það merki-
leg.“
Morgunblaðið/Hari
Hetjur Feðgarnir Sigurður Dagsson knattspyrnukappi og Dagur Sigurðsson handboltakappi hafa margs að minnast.
Leigubílstjórinn vildi ekki
greiðslu frá hetju Vals
Sigurður Dagsson hélt hreinu á móti Eusébio og Benfica
MFylltu dekkin …30