Morgunblaðið - 06.10.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 06.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 5.10., kl. 18.00 Reykjavík 1 heiðskírt Akureyri 0 skýjað Nuuk 3 rigning Þórshöfn 7 rigning Ósló 11 heiðskírt Kaupmannahöfn 14 þoka Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 10 skýjað Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 21 heiðskírt Dublin 11 skýjað Glasgow 11 léttskýjað London 19 skýjað París 24 heiðskírt Amsterdam 18 heiðskírt Hamborg 19 heiðskírt Berlín 19 heiðskírt Vín 17 heiðskírt Moskva 3 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 23 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 23 skúrir Aþena 21 heiðskírt Winnipeg 2 þoka Montreal 7 léttskýjað New York 18 léttskýjað Chicago 13 súld Orlando 29 skýjað 6. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:52 18:41 ÍSAFJÖRÐUR 8:00 18:42 SIGLUFJÖRÐUR 7:43 18:25 DJÚPIVOGUR 7:22 18:09 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Vestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Votviðri á N- og A-landi, skúrir eða él. Hiti 0-5 stig. Á mánudag NA 8-13 m/s og él við N-ströndina, hægari annars staðar og vott S-lands, hiti 0-5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í hvassa suðaustanátt með slyddu eða rigningu, en hægari og þurrt á NA-landi. Hiti 2 til 7 stig síðdegis. Lægir SV-til í kvöld með skúrum. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson Andri Steinn Hilmarsson „Það verður með einhverjum ráðum að greiða úr þessu upplausnar- ástandi, bæði því sem snýr að sam- félaginu fyrir vestan og eins skiln- ingi stofnana og almennings á lögum um mat á umhverfisáhrifum,“ sagði Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsráðherra um stöðuna sem upp er komin varðandi laxeldi á Vest- fjörðum. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði í gær frá kröfu laxeldisfyrirtækjanna Fjarðalax ehf. og Arctic Sea Farm hf. um að fresta réttaráhrifum fyrri úrskurða nefnd- arinnar um að fella úr gildi starfs- leyfi og rekstrarleyfi fyrirtækjanna. Komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki heimild til að fresta réttaráhrifum eigin úr- skurða. Kristján Þór benti á að úrskurðar- nefndin hefði beint atriðum að um- hverfisráðherra og sjávarútvegsráð- herra. Það þyrfti að meta yfir helgina. Hann benti á að það væri réttur almennings að fara með ágreiningsmál fyrir dómstóla. „Ég tel að það sé nauðsynlegt í þessu máli til að skýra ákveðna þætti. Um- hverfisstofnun og Matvælastofnun gáfu út starfs- og rekstrarleyfi á grundvelli skilnings á lögum um mat á umhverfisáhrifum. Þeir sem fengu leyfin standa uppi með að þau voru felld úr gildi. Við þurfum einhvern veginn að greiða úr því. Við erum raunar þegar byrjuð að skoða þetta.“ Forsvarsmenn laxeldisfyrirtækj- anna segjast hafa á grundvelli leyfis- veitinga Matvælastofnunar og Um- hverfisstofnunar varið verulegum fjármunum í rannsóknir, öryggisráð- stafanir og aðrar fjárfestingar í rétt- mætu trausti þess að leyfin héldu gildi sínu en hjá félögunum tveimur eru samtals 150 stöðugildi. Segir þar að verði rekstur Fjarða- lax í Patreksfirði og Tálknafirði stöðvaður þurfi að ráðast í stórfelld- ar sparnaðar- og hagræðingarað- gerðir til að forða félaginu frá gjald- þroti, þ.m.t. fjöldauppsagnir. Séu miklar líkur á því að ef stöðva þurfi starfsemi á grundvelli skorts á rekstrarleyfi til lengri tíma sé gjald- þrot óhjákvæmilegt. Vestfirðingar eru reiðir Haustþing Fjórðungssambands Vestfjarða samþykkti í gær einum rómi ályktun þar sem segir að það sé „áfall fyrir Vestfirði og þjóðarbúið í heild“ að úrskurðarnefndin hafi hafnað beiðni laxeldisfyrirtækjanna og fellt úr gildi rekstrarleyfi fyrir- tækja í fullum rekstri. „Vestfirðing- ar eru reiðir og sætta sig ekki lengur við við úrræðaleysi og getuleysi kerf- isins.“ Þá krafðist haustþingið þess að Alþingi og ríkisstjórn grípi tafar- laust inn atburðarásina.  Úrskurðarnefnd vildi ekki fresta réttaráhrifum úrskurða  Sjávarútvegsráðherra segir þegar byrjað að skoða málið Sjá fram á gjald- þrot og uppsagnir Fulltrúar nítján félaga, sem hafa veitt Starfsgreinasambandinu (SGS) samningsumboð í komandi kjaravið- ræðum, héldu vinnufund á Selfossi í gær og í fyrradag. „Þetta var mjög góður fundur. Við lögðum drög að kröfugerð. Svo fara menn með þau heim í félögin og ræða þetta í sínum ranni. Við ætlum svo að hittast aftur á miðvikudag í næstu viku í Reykjavík og reiknum með að klára meginlínurnar þá,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formað- ur SGS. Hann sagði þetta vera í fyrsta sinn sem öll aðildarfélögin veita SGS samningsumboð. Björn vildi ekki greina frá efnisatriðum kröfugerðar- innar enda sé hún ekki frágengin. Hugmyndir um víðtækara samflot í komandi kjaraviðræðum voru ekki ræddar á Selfossi. Þeirri umræðu var frestað þar til á fundinum á mið- vikudaginn kemur. Björn kvaðst vera bjartsýnn á komandi kjaraviðræður, sérstaklega eftir að samstaða náðist á milli allra aðildarfélaga SGS. gudni@mbl.is SGS mót- ar kröfu- gerð  Öll aðildarfélögin veita SGS umboð Laufskrúð trjánna hefur tekið á sig fjölbreytta liti. Trén eru farin að fella laufin og hætt er við að hvassviðrið sem spáð er muni feykja mörgu laufinu af greininni þar sem það var í sumar og nýtti þá fáu sólargeisla sem gáfust. Spáð var frosti um allt land í nótt sem leið og víða talsverðu frosti. Svo geng- ur í suðaustanhvassviðri sunnan- og vestanlands eftir hádegið með rigningu, en slyddu eða snjókomu á heiðum. Færð getur spillst um tíma. Snarpar vindhviður verða á Kjalarnesi og við Hafnarfjall í dag en svo á að lægja í kvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrautlegir haust- litir gleðja augað Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) og Rafnar ehf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf. Það snýr að hönnun og endurnýjun á björgunar- og skipaflota SL. Um er að ræða 13 nýja báta og skip. Áætlað er að verkefnið kosti um 2 milljarða. Hönnunin mun taka mið af ís- lenskum aðstæðum og þeim marg- víslegu verkefnum sem sjódeildir SL sinna, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Haft er eftir Jóni Svanberg Hjartarsyni, framkvæmdastjóra SL, að endurnýjun björgunarbáta- og skipaflotans sé bráðnauðsynlegt hagsmunamál fyrir þjóðina og mikil- vægt skref í öryggismálum. Miklar vonir eru bundnar við skrokkhönnun Rafnars. Tækniþróunarsjóður ætlar að styrkja Rafnar um 70 milljónir á næstu tveimur árum vegna þessa verkefnis. Hannaðir verða annars vegar 12-15 m langir léttbyggðir bátar og hins vegar 15 metra björg- unarskip. gudni@mbl.is Björgunar- og skipa- floti endurnýjaður Teikning/Rafnar Nökkvi 1500 Hugmynd að sérhönn- uðu leitar- og björgunarskipi.  Geir H. Haarde, sendiherra í Bandaríkjunum, mun láta af störfum í utan- ríkisþjónust- unni 1. júlí 2019 og taka sæti að- alfulltrúa í stjórn Alþjóða- bankans fyrir hönd kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Bergdís Ellertsdóttir, sem hefur verið fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ), verður sendiherra Íslands í Bandaríkjun- um. Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra hefur ákveðið flutn- inga forstöðumanna sendiskrif- stofa 2019. Breytingar verða á sjö sendi- skrifstofum og sendiherrar fluttir til. Helga Hauksdóttir verður sendiherra í Danmörku og María Erla Marelsdóttir í Þýskalandi. Jörundur Valtýsson verður fasta- fulltrúi hjá SÞ, Hermann Ingólfs- son fastafulltrúi hjá NATO og Ingibjörg Davíðsdóttir verður sendiherra í Noregi. gudni@mbl.is Geir H. Haarde Geir Haarde í stjórn Al- þjóðabankans  Breytingar 2019

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.