Morgunblaðið - 06.10.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Björn Bjarnason fjallar umstjórnsýslu Reykjavík-
urborgar í nýju hefti Þjóðmála og
rekur þar nokkur mál frá liðnu
sumri.
Upptalningin erískyggileg
fyrir borgarbúa:
„5. júní 2018:
Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmir
Reykjavíkurborg til
að greiða starfs-
manni Ráðhúss
Reykjavíkur skaða-
bætur vegna slæmr-
ar framkomu skrif-
stofustjóra skrif-
stofu borgarstjóra
og borgarritara.
2. júlí 2018:
Kærunefnd jafn-
réttismála telur Reykjavíkurborg
hafa brotið gegn 1. mgr. 26. gr. laga
nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafn-
an rétt kvenna og karla við ráðn-
ingu borgarlögmanns á árinu 2017.
11. júlí 2018:
Umboðsmaður alþingis segir að
við úrlausn á húsnæðisvanda utan-
garðsfólks hjá Reykjavíkurborg
skorti aðstoð við lausn á bráðum
húsnæðisvanda í samræmi við
ákvæði laga nr. 40/1991, eins og
þau verði túlkuð í ljósi 1. mgr. 76.
gr. stjórnarskrárinnar og fjölþjóð-
legra mannréttindareglna.
15. júlí 2018:
Mannréttinda- og lýðræðisráð
borgarinnar samþykkir að öll sal-
erni starfsfólks í stjórnsýsluhúsum
Reykjavíkurborgar skuli gerð
ókyngreind frá og með haustinu í
andstöðu við 22. gr. reglugerðar
um húsnæði vinnustaða frá árinu
1995.
31. júlí 2018:
Umboðsmaður borgarbúa telur
að betur hafi mátt huga að undir-
búningi ákvörðunar menningar- og
ferðamálaráðs um úleigu á Iðnó.
Ákvörðun ráðsins um útleigu á Iðnó
var „ekki fyllilega í samræmi við
sjónarmið um vandaða stjórnsýslu-
hætti“ að mati umboðsmannsins.“
Björn
Bjarnason
Stjórnsýsla
Reykjavíkurborgar
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Keppendur hafa skilað samkeppnis-
tillögum um viðbyggingu við
Stjórnarráðshúsið og skipulag á
Stjórnarráðsreit, en frestur til þess
rann út fyrir skömmu.
Samkvæmt upplýsingum Guðrún-
ar Ingvarsdóttur, forstjóra Fram-
kvæmdasýslu ríkisins, bárust 30 til-
lögur í framkvæmdasamkeppni
vegna viðbyggingar við Stjórnrráðs-
húsið og átta tillögur í hugmynda-
samkeppni vegna skipulags Stjórn-
arráðsreits.
Þessi samkeppni á vegum for-
sætisráðuneytisins var auglýst í
byrjun apríl 2018. Annars vegar er
um að ræða framkvæmdasamkeppni
um 1.200 fermetra viðbyggingu við
Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg
og hins vegar hugmyndasamkeppni
um skipulag svokallaðs Stjórnar-
ráðsreits, sem markast af Ingólfs-
stræti, Skúlagötu, Klapparstíg og
Lindargötu. Viðbyggingin á að rísa
aftan við Stjórnarráðshúsið, þar sem
nú eru bílastæði ráðuneytisins.
Dómnefndir munu nú fjalla um til-
lögurnar og verða úrslit kynnt í
Safnahúsinu við Hverfisgötu mánu-
daginn 3. desember. Stefán Thors
arkitekt er formaður beggja dóm-
nefnda. Nafnleynd ríkir uns dóm-
nefnd hefur lokið störfum og undir-
ritað niðurstöður. sisi@mbl.is
Fjöldi tillagna barst í samkeppni
Þrjátíu tillögur vegna fyrirhugaðrar
viðbyggingar við Stjórnarráðshúsið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórnarráðshúsið Viðbyggingin á
að rísa á núverandi bílastæði.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
Ath
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
595 1000
Frá kr.
59.995
17 OKTÓBER Í 4 NÆTUR
u.
Ath
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
yst
án
fyr
irv
ar
a.
.
Ljubljana
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Allt um sjávarútveg