Morgunblaðið - 06.10.2018, Page 19
unum. Brestir komu snemma fram í
flokksstarfinu. Þegar frumvörp um
Icesave og ESB-umsóknina komu
inn í þingið samtímis vildu þrír þing-
manna flokksins skilja að málin tvö.
Þau væru enda tengd. Þrýstingur
væri á að ljúka Icesave-málinu svo
umsóknarferlið gæti hafist hjá ESB.
Ágreiningur upp á yfirborðið
Þráinn Bertelsson gekk úr Borg-
arahreyfingunni sumarið 2009 og
varð óháður þingmaður. Um haustið
stofnuðu hinir þrír þingmenn flokks-
ins Hreyfinguna. Ágreiningur milli
þeirra tveggja hópa sem stóðu að
Borgarahreyfingunni í upphafi hafði
brotist upp á yfirborðið.
Nýr flokkur, Besti flokkurinn, leit
dagsins ljós í sveitarstjórnarkosning-
unum 2010. Flokkurinn fékk mest
fylgi allra flokka í Reykjavík, mynd-
aði meirihluta með Samfylkingu og
varð oddviti flokksins, Jón Gnarr,
borgarstjóri. Skuldavandi Orkuveitu
Reykjavíkur, sem tengdur var við
hrunið, var meðal helstu málefna
kosningabaráttunnar. Raunar
glímdu sveitarstjórnir um allt land
við erfiða skuldastöðu.
Systurflokkur Besta flokksins,
Næstbesti flokkurinn, varð þriðji
stærsti flokkurinn í Kópavogi.
Nýtt stjórnmálaafl, Hægri grænir,
var stofnað sumarið 2010. Formaður
flokksins, Guðmundur Franklín
Jónsson, hafði verið áberandi í um-
ræðu um Icesave-deiluna.
Skuldavandinn í algleymingi
Um haustið 2010 var efnt til fjölda-
mótmæla á Austurvelli á ný. Skulda-
vandi heimilanna var í algleymingi og
þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave
reyndist ríkisstjórninni erfið. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
hafði virkjað málskotsréttinn í annað
sinn á lýðveldistímanum. Verulega
hafði dregið úr stuðningi við ríkis-
stjórnina og ræddu trúnaðarmenn
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra við hana um að stíga til hliðar.
Hún sat hins vegar út kjörtímabilið.
Lyktir stjórnarskrármálsins urðu
henni þungbærar, líkt og fjallað er
um í heimildamyndinni Jóhanna –
síðasta orrustan.
VG fékk liðsstyrk í september
2010 er Þráinn Bertelsson gekk í
flokkinn. Vorið 2011 gengu þau Lilja
Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ás-
mundur Einar Daðason úr þingflokki
VG. Með því var formlegur þing-
styrkur ríkisstjórnarinnar farinn úr
35 í 32 sæti, sem er minnsti mögulegi
meirihluti á Alþingi.
Stjórnlagaráð skilaði tillögu að
stjórnarskrá sumarið 2011. Meðferð
þingsins á tillögunum átti síðar þátt í
stofnun nýrra framboða. Gjáin í VG
breikkaði 30. desember sama ár þeg-
ar Jón Bjarnason hætti sem sjávar-
útvegsráðherra. Við það tilefni sagði
Jón fulltrúa ESB í Brussel fagna
brotthvarfi sínu.
Árni Páll Árnason hvarf líka úr
ríkisstjórn. Ólga í Samfylkingunni
kom upp á yfirborðið á hitafundi 30.
desember. Deilurnar birtust síðar í
atlögu gegn Árna sem formanni.
Reiddu sig á Hreyfinguna
Með þessum atburðum þurfti
vinstristjórnin í vaxandi mæli að
reiða sig á stuðning annarra þing-
flokka. Þá fyrst og fremst Hreyfing-
arinnar. Össur Skarphéðinsson, þá-
verandi utanríkisráðherra, fjallaði
um þau hrossakaup í bók sinni Ár
drekans, sem lýsir árinu 2012 í ís-
lenskum stjórnmálum. Meðal annars
gerði Hreyfingin kröfur í stjórnar-
skrármálinu gegn því að styðja ríkis-
stjórnina í tilteknum málum.
Deilurnar innan ríkisstjórnar-
flokkanna, og fylgishrun þeirra,
sköpuðu tækifæri fyrir aðra flokka.
Björt framtíð var stofnuð í febrúar
2012 og lagði áherslu á samræðu og
bætta stjórnmálamenningu.
Um líkt leyti mældist Samstaða,
flokkur Lilju Mósesdóttur, með rúm-
lega 20% fylgi í skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Það
fjaraði hins vegar hratt undan
flokknum sem leið undir lok.
Píratahreyfingin stofnuð
Vorið 2012 var haldinn stofn-
fundur Dögunar. Tveir þingmenn
Hreyfingarinnar, Margrét Tryggva-
dóttir og Þór Saari, voru meðal stofn-
enda. Þar voru líka innanborðs
stjórnlagaráðsmenn með Þorvald
Gylfason í broddi fylkingar. Sá armur
stofnaði síðan Lýðræðisvaktina.
Haustið 2012 var stofnfundur Pírata
sem boðuðu breytta stjórnmálamenn-
ingu. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Borgarahreyfingarinnar og svo
Hreyfingarinnar, stóð þar í stafni.
Hreyfingin starfaði fram til þing-
kosninga 2013 en var lögð niður þá um
haustið. Horfðu fulltrúar nýju flokk-
anna meðal annars til góðs árangurs
Besta flokksins í sveitarstjórnar-
kosningunum 2010.
Tveir dómar höfðu senn pólitísk
áhrif og mörkuðu þáttaskil.
Geir H. Haarde var sýknaður af
þremur ákæruliðum af fjórum fyrir
landsdómi í apríl 2012 en ekki gerð
refsing fyrir þann fjórða. Höfðu mála-
ferlin aukið sundrungu á þingi.
Með dómi EFTA-dómstólsins í Ice-
save-deilunni í janúar 2013 lauk einni
erfiðustu milliríkjadeilu Íslandssög-
unnar með sigri Íslands.
Skammt var til kosninga og styrkti
dómurinn stöðu Framsóknarflokksins
og formannsins, Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, sem boðaði að eftir
Icesave væri komið að heimilunum.
Kosningaloforð hans um leiðréttingu
á verðtryggðum skuldum heimila fékk
hljómgrunn. Sigmundur Davíð varð
forsætisráðherra í ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks.
Sjö nýir flokkar
Sjö nýir flokkar voru stofnaðir í að-
draganda þingkosninganna 2013, að
Pírötum og Dögun meðtöldum. Að
auki komu fram smærri framboð, líkt
og í öðrum kosningum eftir hrunið.
Eitt einkenni eftirhrunsáranna er ein-
mitt fjöldi framboða og frambjóðenda.
Til dæmis voru níu frambjóðendur á
kjörseðlinum í forsetakosningunum
2016 og annar eins fjöldi hætti við
framboðið.
Jón Bjarnason sat á þingi fyrir VG
til þingloka en stofnaði svo ásamt öðr-
um flokkinn Regnbogann, sem barðist
gegn ESB-aðild. Þá var Þorvaldur
Þorvaldsson, fyrrverandi félagi í VG,
meðal stofnenda Alþýðufylkingar-
innar. Deilur innan VG birtust jafn-
framt í því að Steingrímur J. Sigfús-
son lét af formennsku í flokknum.
Við tók Katrín Jakobsdóttir, núver-
andi forsætisráðherra.
Að auki buðu þrjú framboð,
Landsbyggðarflokkurinn, K-listi
Sturlu Jónssonar og Húmanista-
flokkurinn fram en náðu ekki á þing.
Landsbyggðarflokkurinn var nýr
flokkur en fulltrúar hinna tveggja
flokkanna höfðu boðið fram áður.
Fimm fulltrúar stjórnlagaráðs
komu að stofnun nýs flokks, Lýð-
ræðisvaktarinnar, fyrir þingkosn-
ingarnar 2013. Formaður var Þor-
valdur Gylfason. Ágreiningur reis
upp innan flokksins sem lauk með
því að Pétur Gunnlaugsson útvarps-
maður stofnaði Flokk heimilanna
ásamt öðrum. Áður höfðu fulltrúar
Lýðræðisvaktarinnar sagt skilið við
Dögun. Ágreiningur um verðtrygg-
ingu átti þátt í þeim klofningi.
Dögun, Regnboginn, Alþýðufylk-
ingin, Lýðræðisvaktin og Flokkur
heimilanna komu ekki mönnum á
þing. Sama gilti um Hægri græna.
Alls fengu flokkarnir sex 11,5% at-
kvæða í kosningunum 2013, sem var
meira en VG og 1,4% minna en Sam-
fylkingin. Hreyfingin var sem áður
segir lögð niður um haustið.
Áfangi í skuldamálum
Leiðréttingin varð að veruleika í
nóvember 2014. Höfðu þá þegar
gengið dómar í Hæstarétti í svo-
nefndum gengislánamálum. Reynd-
ist þetta tvennt vera stór skref í upp-
gjöri á skuldavanda heimila. Hann
varð upp frá því ekki lengur meiri-
háttar kosningamál.
Vorið 2016 komu tveir nýir flokk-
ar formlega fram á sjónarsviðið,
Flokkur fólksins og Viðreisn.
Fyrrverandi áhrifamenn í Sjálf-
stæðisflokknum voru fremstir í
flokki við stofnun Viðreisnar.
Ágreiningur um ESB-umsóknina átti
þátt í stofnun flokksins. Má því segja
að ESB-umsóknin hafi leitt til klofn-
ings innan Borgarahreyfingarinnar,
VG og Sjálfstæðisflokksins á kjör-
tímabilinu og þannig átt þátt í stofn-
un minnst þriggja nýrra flokka. Þá
átti ágreiningur um ESB-málið þátt í
úrsögn Guðmundar Steingrímssonar
úr Framsóknarflokknum og þar með
stofnun Bjartrar framtíðar. ESB-
umsóknin og skuldavandi heimila eru
þau tvö mál sem höfðu sennilega
mest pólitísk áhrif eftir hrunið.
Reyndist afdrifaríkt fyrir vinstri-
stjórnina að efna ekki til þjóðar-
atkvæðis um ESB-umsóknina og að
halda stjórnarandstöðunni utan við
samninga í Icesave-deilunni. Hvort
tveggja gróf undan einingu í stjórn-
inni fyrstu vikur sumars 2009 og
færði andstæðingum hennar vopn í
hendur.
Flokkur fólksins var sem áður seg-
ir stofnaður vorið 2016 og barðist
meðal annars fyrir bættum kjörum
lágtekjuhópa og öryrkja. Var vísað til
skerðinga á bótum eftir hrunið.
Lekamál leiða til afsagna
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks sat ekki út kjör-
tímabilið. Vorið 2016 birtust gögn
sem lekið var frá lögmannsstofunni
Mossack Fonseca í Panama. Birtust
þar með annars upplýsingar um fé-
lagið Wintris, sem var um hríð skráð
á Sigmund Davíð og eiginkonu hans.
Leiddu þessar upplýsingar og við-
brögðin við þeim til fjöldamótmæla á
Austurvelli og í kjölfarið til afsagnar
Sigmundar Davíðs. Fyrr á kjör-
tímabilinu hafði Hanna Birna Krist-
jánsdóttir sagt af sér sem ráðherra
vegna lekamálsins svokallaða. Bæði
málin eru án fordæma á Íslandi.
Mótmælin vorið 2016 komu í kjöl-
far fjöldamótmæla haustið 2010 og
svo auðvitað svonefndrar búsáhalda-
byltingar haustið 2008 og vorið 2009.
Með henni varð til ný mótmælahefð.
Tíminn mun þó skera úr um hvort
hún mun reynast varanleg. Eftir af-
sögn Sigmundar Davíðs var kosn-
ingum flýtt. Við tók ein skammlífasta
ríkisstjórn lýðveldistímans, sem
Sjálfstæðisflokkurinn og tveir ungir
flokkar, Björt framtíð og Viðreisn,
mynduðu.
Höfðu fulltrúar Pírata, Samfylk-
ingar, VG og Bjartrar framtíðar þá
brotið blað í íslenskum stjórnmálum
fyrir kosningarnar með því að funda
opinberlega um mögulegt samstarf í
ríkisstjórn. Fylgistap Pírata og VG á
síðustu metrunum veikti þær vonir.
Vakti fylgisaukning Pírata í aðdrag-
anda kosninganna alþjóðlega athygli
og komu hingað fleiri erlendir blaða-
menn en venja er fyrir kosningar.
Önnur ríkisstjórn fellur
Um níu mánuðum eftir að skrifað
var undir stjórnarsáttmálann sleit
Björt framtíð stjórnarsamstarfinu.
Tilefnið var birting upplýsinga um
veitingu uppreistar æru til manna
sem höfðu brotið gegn börnum.
Höfðu þau mál þá lengi verið í kerf-
inu og komið til kasta margra ráð-
herra.
Boðað var til kosninga og stofnaði
Sigmundur Davíð nýjan flokk, Mið-
flokkinn, í aðdraganda þeirra.
Eftir kosningarnar tók við flókin
stjórnarmyndun. Niðurstaðan var að
mynda ríkisstjórn frá hægri til
vinstri með Sjálfstæðisflokknum,
Framsóknarflokki og VG innan-
borðs. Björt framtíð féll af þingi.
Þetta er fyrsta ríkisstjórnin frá
tímum Nýsköpunarstjórnarinnar
sem er með Sjálfstæðisflokk óskipt-
an og sósíalista innanborðs. Það var
viðleitni til brúarsmíði eftir harðvít-
ugt sundrungarskeið og margs konar
óstöðugleika eftirhrunsáranna.
Sjálfstæðisflokkur, VG, Samfylk-
ingin, Miðflokkurinn, Framsóknar-
flokkurinn, Píratar og Flokkur fólks-
ins fengu menn kjörna á þing. Það
voru fleiri flokkar en nokkru sinni frá
lýðveldisstofnun. Raunar munaði
litlu að Píratar féllu af þingi.
Fylgið er hreyfanlegra
Fylgisaukning Flokks fólksins síð-
asta sólarhringinn fyrir kjördag þótti
vitna um hreyfingu á fylgi.
Eftir sveitarstjórnarkosningarnar
í vor átti nýr flokkur, Sósíalista-
flokkur Íslands, borgarfulltrúa í
Reykjavík. Staða fólks sem fór illa út
úr húsnæðiskreppunni, og stendur
nú höllum fæti á leigumarkaði, var
flokksmönnum hugleikin. Það er
óleyst mál sem kann að finna sér
skýrari pólitískan farveg næstu ár.
Sextán framboð voru á kjörseðl-
inum í Reykjavík. Átta framboð náðu
inn manni. Þessi fjöldi endurspeglar
pólitískan óróa síðustu ára.
Eftir þingkosningarnar í fyrra-
haust ræddu fræðimenn um minnk-
andi flokkshollustu og að fylgið færð-
ist meira milli flokka en áður.
Vantraust á stjórnmálin gæti þar
haft áhrif en það jókst eftir hrunið.
Hafa verið færð rök fyrir því að nýir
fjölmiðlar hafi áhrif í þessu efni.
Mörkuðu ekki djúp spor
Kaflaskil urðu hjá Pírötum í apríl
síðastliðnum er Birgitta Jónsdóttir
yfirgaf flokkinn. Höfðu þingmenn
Pírata átt í innbyrðis deilum.
Flestir nýju flokkanna sem urðu til
eftir hrunið eru ýmist horfnir af
stjórnmálasviðinu eða settu óveru-
legt mark á stjórnmálin. Svonefndur
fjórflokkur er nú með þrjá flokka í
ríkisstjórn og sá fjórði mælist nú
annar stærsti flokkur landsins í skoð-
anakönnunum. Píratar eru eini flokk-
urinn á þingi sem telja má afkvæmi
búsáhaldabyltingarinnar. Miðflokk-
urinn og Viðreisn urðu til eftir klofn-
ing í Framsóknarflokki og Sjálf-
stæðisflokki og Flokkur fólksins
hefur notið góðs af vinsældum for-
mannsins, Ingu Sæland.
Baráttumenn gegn Icesave-
samningunum höfðu fullnaðarsigur
með dómi EFTA-dómstólsins. Þá
markaði leiðréttingin kaflaskil í um-
ræðu um skuldavanda heimilanna og
ríkisstjórn Framsónarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins aflétti fjár-
magnshöftum. Hins vegar lauk bar-
áttunni fyrir nýrri stjórnarskrá og
inngöngu í ESB með ósigri þeirra
afla. Róttækar kröfur varðandi verð-
tryggingu og fiskveiðistjórnunar-
kerfið náðu ekki fram að ganga.
Morgunblaðið/Júlíus
Vinstristjórninni mótmælt Þúsundir manna komu saman á Austurvelli haustið 2010. Skuldamálin voru erfið.
Morgunblaðið/Ómar
Búsáhaldabyltingin Eftir efnahagshrunið urðu mótmæli fjölmennari og tíðari. Sum þróuðust út í árásir á lögreglu.
19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018