Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 19
unum. Brestir komu snemma fram í flokksstarfinu. Þegar frumvörp um Icesave og ESB-umsóknina komu inn í þingið samtímis vildu þrír þing- manna flokksins skilja að málin tvö. Þau væru enda tengd. Þrýstingur væri á að ljúka Icesave-málinu svo umsóknarferlið gæti hafist hjá ESB. Ágreiningur upp á yfirborðið Þráinn Bertelsson gekk úr Borg- arahreyfingunni sumarið 2009 og varð óháður þingmaður. Um haustið stofnuðu hinir þrír þingmenn flokks- ins Hreyfinguna. Ágreiningur milli þeirra tveggja hópa sem stóðu að Borgarahreyfingunni í upphafi hafði brotist upp á yfirborðið. Nýr flokkur, Besti flokkurinn, leit dagsins ljós í sveitarstjórnarkosning- unum 2010. Flokkurinn fékk mest fylgi allra flokka í Reykjavík, mynd- aði meirihluta með Samfylkingu og varð oddviti flokksins, Jón Gnarr, borgarstjóri. Skuldavandi Orkuveitu Reykjavíkur, sem tengdur var við hrunið, var meðal helstu málefna kosningabaráttunnar. Raunar glímdu sveitarstjórnir um allt land við erfiða skuldastöðu. Systurflokkur Besta flokksins, Næstbesti flokkurinn, varð þriðji stærsti flokkurinn í Kópavogi. Nýtt stjórnmálaafl, Hægri grænir, var stofnað sumarið 2010. Formaður flokksins, Guðmundur Franklín Jónsson, hafði verið áberandi í um- ræðu um Icesave-deiluna. Skuldavandinn í algleymingi Um haustið 2010 var efnt til fjölda- mótmæla á Austurvelli á ný. Skulda- vandi heimilanna var í algleymingi og þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave reyndist ríkisstjórninni erfið. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafði virkjað málskotsréttinn í annað sinn á lýðveldistímanum. Verulega hafði dregið úr stuðningi við ríkis- stjórnina og ræddu trúnaðarmenn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð- herra við hana um að stíga til hliðar. Hún sat hins vegar út kjörtímabilið. Lyktir stjórnarskrármálsins urðu henni þungbærar, líkt og fjallað er um í heimildamyndinni Jóhanna – síðasta orrustan. VG fékk liðsstyrk í september 2010 er Þráinn Bertelsson gekk í flokkinn. Vorið 2011 gengu þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ás- mundur Einar Daðason úr þingflokki VG. Með því var formlegur þing- styrkur ríkisstjórnarinnar farinn úr 35 í 32 sæti, sem er minnsti mögulegi meirihluti á Alþingi. Stjórnlagaráð skilaði tillögu að stjórnarskrá sumarið 2011. Meðferð þingsins á tillögunum átti síðar þátt í stofnun nýrra framboða. Gjáin í VG breikkaði 30. desember sama ár þeg- ar Jón Bjarnason hætti sem sjávar- útvegsráðherra. Við það tilefni sagði Jón fulltrúa ESB í Brussel fagna brotthvarfi sínu. Árni Páll Árnason hvarf líka úr ríkisstjórn. Ólga í Samfylkingunni kom upp á yfirborðið á hitafundi 30. desember. Deilurnar birtust síðar í atlögu gegn Árna sem formanni. Reiddu sig á Hreyfinguna Með þessum atburðum þurfti vinstristjórnin í vaxandi mæli að reiða sig á stuðning annarra þing- flokka. Þá fyrst og fremst Hreyfing- arinnar. Össur Skarphéðinsson, þá- verandi utanríkisráðherra, fjallaði um þau hrossakaup í bók sinni Ár drekans, sem lýsir árinu 2012 í ís- lenskum stjórnmálum. Meðal annars gerði Hreyfingin kröfur í stjórnar- skrármálinu gegn því að styðja ríkis- stjórnina í tilteknum málum. Deilurnar innan ríkisstjórnar- flokkanna, og fylgishrun þeirra, sköpuðu tækifæri fyrir aðra flokka. Björt framtíð var stofnuð í febrúar 2012 og lagði áherslu á samræðu og bætta stjórnmálamenningu. Um líkt leyti mældist Samstaða, flokkur Lilju Mósesdóttur, með rúm- lega 20% fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Það fjaraði hins vegar hratt undan flokknum sem leið undir lok. Píratahreyfingin stofnuð Vorið 2012 var haldinn stofn- fundur Dögunar. Tveir þingmenn Hreyfingarinnar, Margrét Tryggva- dóttir og Þór Saari, voru meðal stofn- enda. Þar voru líka innanborðs stjórnlagaráðsmenn með Þorvald Gylfason í broddi fylkingar. Sá armur stofnaði síðan Lýðræðisvaktina. Haustið 2012 var stofnfundur Pírata sem boðuðu breytta stjórnmálamenn- ingu. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar og svo Hreyfingarinnar, stóð þar í stafni. Hreyfingin starfaði fram til þing- kosninga 2013 en var lögð niður þá um haustið. Horfðu fulltrúar nýju flokk- anna meðal annars til góðs árangurs Besta flokksins í sveitarstjórnar- kosningunum 2010. Tveir dómar höfðu senn pólitísk áhrif og mörkuðu þáttaskil. Geir H. Haarde var sýknaður af þremur ákæruliðum af fjórum fyrir landsdómi í apríl 2012 en ekki gerð refsing fyrir þann fjórða. Höfðu mála- ferlin aukið sundrungu á þingi. Með dómi EFTA-dómstólsins í Ice- save-deilunni í janúar 2013 lauk einni erfiðustu milliríkjadeilu Íslandssög- unnar með sigri Íslands. Skammt var til kosninga og styrkti dómurinn stöðu Framsóknarflokksins og formannsins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem boðaði að eftir Icesave væri komið að heimilunum. Kosningaloforð hans um leiðréttingu á verðtryggðum skuldum heimila fékk hljómgrunn. Sigmundur Davíð varð forsætisráðherra í ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Sjö nýir flokkar Sjö nýir flokkar voru stofnaðir í að- draganda þingkosninganna 2013, að Pírötum og Dögun meðtöldum. Að auki komu fram smærri framboð, líkt og í öðrum kosningum eftir hrunið. Eitt einkenni eftirhrunsáranna er ein- mitt fjöldi framboða og frambjóðenda. Til dæmis voru níu frambjóðendur á kjörseðlinum í forsetakosningunum 2016 og annar eins fjöldi hætti við framboðið. Jón Bjarnason sat á þingi fyrir VG til þingloka en stofnaði svo ásamt öðr- um flokkinn Regnbogann, sem barðist gegn ESB-aðild. Þá var Þorvaldur Þorvaldsson, fyrrverandi félagi í VG, meðal stofnenda Alþýðufylkingar- innar. Deilur innan VG birtust jafn- framt í því að Steingrímur J. Sigfús- son lét af formennsku í flokknum. Við tók Katrín Jakobsdóttir, núver- andi forsætisráðherra. Að auki buðu þrjú framboð, Landsbyggðarflokkurinn, K-listi Sturlu Jónssonar og Húmanista- flokkurinn fram en náðu ekki á þing. Landsbyggðarflokkurinn var nýr flokkur en fulltrúar hinna tveggja flokkanna höfðu boðið fram áður. Fimm fulltrúar stjórnlagaráðs komu að stofnun nýs flokks, Lýð- ræðisvaktarinnar, fyrir þingkosn- ingarnar 2013. Formaður var Þor- valdur Gylfason. Ágreiningur reis upp innan flokksins sem lauk með því að Pétur Gunnlaugsson útvarps- maður stofnaði Flokk heimilanna ásamt öðrum. Áður höfðu fulltrúar Lýðræðisvaktarinnar sagt skilið við Dögun. Ágreiningur um verðtrygg- ingu átti þátt í þeim klofningi. Dögun, Regnboginn, Alþýðufylk- ingin, Lýðræðisvaktin og Flokkur heimilanna komu ekki mönnum á þing. Sama gilti um Hægri græna. Alls fengu flokkarnir sex 11,5% at- kvæða í kosningunum 2013, sem var meira en VG og 1,4% minna en Sam- fylkingin. Hreyfingin var sem áður segir lögð niður um haustið. Áfangi í skuldamálum Leiðréttingin varð að veruleika í nóvember 2014. Höfðu þá þegar gengið dómar í Hæstarétti í svo- nefndum gengislánamálum. Reynd- ist þetta tvennt vera stór skref í upp- gjöri á skuldavanda heimila. Hann varð upp frá því ekki lengur meiri- háttar kosningamál. Vorið 2016 komu tveir nýir flokk- ar formlega fram á sjónarsviðið, Flokkur fólksins og Viðreisn. Fyrrverandi áhrifamenn í Sjálf- stæðisflokknum voru fremstir í flokki við stofnun Viðreisnar. Ágreiningur um ESB-umsóknina átti þátt í stofnun flokksins. Má því segja að ESB-umsóknin hafi leitt til klofn- ings innan Borgarahreyfingarinnar, VG og Sjálfstæðisflokksins á kjör- tímabilinu og þannig átt þátt í stofn- un minnst þriggja nýrra flokka. Þá átti ágreiningur um ESB-málið þátt í úrsögn Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum og þar með stofnun Bjartrar framtíðar. ESB- umsóknin og skuldavandi heimila eru þau tvö mál sem höfðu sennilega mest pólitísk áhrif eftir hrunið. Reyndist afdrifaríkt fyrir vinstri- stjórnina að efna ekki til þjóðar- atkvæðis um ESB-umsóknina og að halda stjórnarandstöðunni utan við samninga í Icesave-deilunni. Hvort tveggja gróf undan einingu í stjórn- inni fyrstu vikur sumars 2009 og færði andstæðingum hennar vopn í hendur. Flokkur fólksins var sem áður seg- ir stofnaður vorið 2016 og barðist meðal annars fyrir bættum kjörum lágtekjuhópa og öryrkja. Var vísað til skerðinga á bótum eftir hrunið. Lekamál leiða til afsagna Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sat ekki út kjör- tímabilið. Vorið 2016 birtust gögn sem lekið var frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca í Panama. Birtust þar með annars upplýsingar um fé- lagið Wintris, sem var um hríð skráð á Sigmund Davíð og eiginkonu hans. Leiddu þessar upplýsingar og við- brögðin við þeim til fjöldamótmæla á Austurvelli og í kjölfarið til afsagnar Sigmundar Davíðs. Fyrr á kjör- tímabilinu hafði Hanna Birna Krist- jánsdóttir sagt af sér sem ráðherra vegna lekamálsins svokallaða. Bæði málin eru án fordæma á Íslandi. Mótmælin vorið 2016 komu í kjöl- far fjöldamótmæla haustið 2010 og svo auðvitað svonefndrar búsáhalda- byltingar haustið 2008 og vorið 2009. Með henni varð til ný mótmælahefð. Tíminn mun þó skera úr um hvort hún mun reynast varanleg. Eftir af- sögn Sigmundar Davíðs var kosn- ingum flýtt. Við tók ein skammlífasta ríkisstjórn lýðveldistímans, sem Sjálfstæðisflokkurinn og tveir ungir flokkar, Björt framtíð og Viðreisn, mynduðu. Höfðu fulltrúar Pírata, Samfylk- ingar, VG og Bjartrar framtíðar þá brotið blað í íslenskum stjórnmálum fyrir kosningarnar með því að funda opinberlega um mögulegt samstarf í ríkisstjórn. Fylgistap Pírata og VG á síðustu metrunum veikti þær vonir. Vakti fylgisaukning Pírata í aðdrag- anda kosninganna alþjóðlega athygli og komu hingað fleiri erlendir blaða- menn en venja er fyrir kosningar. Önnur ríkisstjórn fellur Um níu mánuðum eftir að skrifað var undir stjórnarsáttmálann sleit Björt framtíð stjórnarsamstarfinu. Tilefnið var birting upplýsinga um veitingu uppreistar æru til manna sem höfðu brotið gegn börnum. Höfðu þau mál þá lengi verið í kerf- inu og komið til kasta margra ráð- herra. Boðað var til kosninga og stofnaði Sigmundur Davíð nýjan flokk, Mið- flokkinn, í aðdraganda þeirra. Eftir kosningarnar tók við flókin stjórnarmyndun. Niðurstaðan var að mynda ríkisstjórn frá hægri til vinstri með Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokki og VG innan- borðs. Björt framtíð féll af þingi. Þetta er fyrsta ríkisstjórnin frá tímum Nýsköpunarstjórnarinnar sem er með Sjálfstæðisflokk óskipt- an og sósíalista innanborðs. Það var viðleitni til brúarsmíði eftir harðvít- ugt sundrungarskeið og margs konar óstöðugleika eftirhrunsáranna. Sjálfstæðisflokkur, VG, Samfylk- ingin, Miðflokkurinn, Framsóknar- flokkurinn, Píratar og Flokkur fólks- ins fengu menn kjörna á þing. Það voru fleiri flokkar en nokkru sinni frá lýðveldisstofnun. Raunar munaði litlu að Píratar féllu af þingi. Fylgið er hreyfanlegra Fylgisaukning Flokks fólksins síð- asta sólarhringinn fyrir kjördag þótti vitna um hreyfingu á fylgi. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor átti nýr flokkur, Sósíalista- flokkur Íslands, borgarfulltrúa í Reykjavík. Staða fólks sem fór illa út úr húsnæðiskreppunni, og stendur nú höllum fæti á leigumarkaði, var flokksmönnum hugleikin. Það er óleyst mál sem kann að finna sér skýrari pólitískan farveg næstu ár. Sextán framboð voru á kjörseðl- inum í Reykjavík. Átta framboð náðu inn manni. Þessi fjöldi endurspeglar pólitískan óróa síðustu ára. Eftir þingkosningarnar í fyrra- haust ræddu fræðimenn um minnk- andi flokkshollustu og að fylgið færð- ist meira milli flokka en áður. Vantraust á stjórnmálin gæti þar haft áhrif en það jókst eftir hrunið. Hafa verið færð rök fyrir því að nýir fjölmiðlar hafi áhrif í þessu efni. Mörkuðu ekki djúp spor Kaflaskil urðu hjá Pírötum í apríl síðastliðnum er Birgitta Jónsdóttir yfirgaf flokkinn. Höfðu þingmenn Pírata átt í innbyrðis deilum. Flestir nýju flokkanna sem urðu til eftir hrunið eru ýmist horfnir af stjórnmálasviðinu eða settu óveru- legt mark á stjórnmálin. Svonefndur fjórflokkur er nú með þrjá flokka í ríkisstjórn og sá fjórði mælist nú annar stærsti flokkur landsins í skoð- anakönnunum. Píratar eru eini flokk- urinn á þingi sem telja má afkvæmi búsáhaldabyltingarinnar. Miðflokk- urinn og Viðreisn urðu til eftir klofn- ing í Framsóknarflokki og Sjálf- stæðisflokki og Flokkur fólksins hefur notið góðs af vinsældum for- mannsins, Ingu Sæland. Baráttumenn gegn Icesave- samningunum höfðu fullnaðarsigur með dómi EFTA-dómstólsins. Þá markaði leiðréttingin kaflaskil í um- ræðu um skuldavanda heimilanna og ríkisstjórn Framsónarflokksins og Sjálfstæðisflokksins aflétti fjár- magnshöftum. Hins vegar lauk bar- áttunni fyrir nýrri stjórnarskrá og inngöngu í ESB með ósigri þeirra afla. Róttækar kröfur varðandi verð- tryggingu og fiskveiðistjórnunar- kerfið náðu ekki fram að ganga. Morgunblaðið/Júlíus Vinstristjórninni mótmælt Þúsundir manna komu saman á Austurvelli haustið 2010. Skuldamálin voru erfið. Morgunblaðið/Ómar Búsáhaldabyltingin Eftir efnahagshrunið urðu mótmæli fjölmennari og tíðari. Sum þróuðust út í árásir á lögreglu. 19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.