Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 06.10.2018, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018 ✝ Kristín Aðal-heiður Þórðar- dóttir fæddist 6. desember 1930 í Skálabrekku á Húsavík. Hún lést á Skógarbrekku, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 21. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Dalrós Hulda Jónasdóttir, fædd 28. september1910 í Mó- bergi á Húsavík, og Þórður Frið- bjarnarson, fæddur 7. nóvember 1898 að Rauðuskriðu í Skriðu- hverfi í Aðaldal. Kristín Aðal- heiður var elst tíu systkina. Hin eru: Kristján Sigurður f. 1932, d. 1997. Njáll Trausti, f. 1934, Rósa, f. 1937, Jónas Þór, f. 1940, Jónasína Kristjana, f. 1942, Frið- björn, f. 1943, Vigdís Guðrún, f. 1946, Skarphéðinn, f. 1947, d. 1974, og Sólveig f. 1950. Árið 1949 giftist Kristín lífsförunaut sínum, Kjartani Jó- hannessyni frá Hallbjarnarstöð- um á Tjörnesi. Kjartan er fædd- ur 13. október 1925. Kristín og Kjartan bjuggu lengst af á Þórðarstöðum á Húsavík. Þau 1957, d. 19. júlí sama ár. 6) Árni Óskar, f.1958, börn hans eru Árni Már, Hulda Berglind og barnabörnin eru þrjú. 7) Aðal- heiður, f. 1961 gift Jóni Inga- syni, þau eiga dóttur sem heitir Guðný. Aðalheiður á fjögur börn úr öðrum samböndum þau eru Elí, Kristján, Álfheiður, Sóley Hulda og eitt barnabarn. 8) Rósa Guðbjörg, f. 1963, gift Jónasi Jónassyni, börn þeirra eru Bjarni, Hafþór, Heiða og barna- börnin eru sjö. 9) Berta Jóhanna, f. 1964, gift Jóhanni Garðari Ólafssyni, börn þeirra eru María Jóhanna, Björn Rúnar og eitt barnabarn. 10) Aðalsteinn, f. 1965, kvæntur Stellu Árnadótt- ur, börn þeirra eru Eva Rakel, Anna Marý og Elmar Leó. Kristín ólst upp að Jódísar- stöðum í Skriðuhverfi og á Húsavík. Skólagangan var ekki löng, farskóli í sveitinni og svo tveir heilir vetur í Barnaskóla Húsavíkur. Kristín vann í fjölda- mörg ár sem saumakona með öðrum verkum, s.s. í eldhúsinu á Hótel Húsavík, Sjúkrahúsinu og leikskólanum í bænum. Kristín var fyrst og fremst húsfreyja og verkakona. Hún var á árum áður félagi í Kvenfélagi Húsavíkur, Slysavarnadeild kvenna og styrktaraðili í Sjálfsbjörg. Útför Kristínar Aðalheiðar verður gerð frá Húsavíkur- kirkju í dag, 6. október 2018, klukkan 14. eignuðust tíu börn. Þau eru: 1) Dalrós Hulda, f. 1950, gift Ólafi Jóni Héðins- syni, börn þeirra eru Kristín Svan- hildur, Héðinn, Ey- dís og barnabörnin eru tvö. 2) Þórður, f. 1952, kvæntur Steinunni Hrund Jóhannsdóttur og eiga þau tvo syni, þeir eru Skarphéðinn og Haf- steinn. Þórður á tvo syni og eina uppeldisdóttir af fyrra hjóna- bandi, þau eru Júlíana Sigríður, Kjartan Arnþór, Páll Bergþór og barnabörnin eru þrjú. 3) Vil- helmína Ásdís, f. 1953, gift Vig- fúsi Sigurðssyni, börn Ásdísar eru Skarphéðinn, Steinþór, Kristbjörg Lilja og barnabörnin eru níu. 4) Sigrún, f. 1955, eig- inmaður hennar var Haukur Tryggvason, f. 1949, d. 2011, börn þeirra eru Sólrún, Árný Ósk, Kjartan Jóhannes, barna- börnin eru átta og langömmu- börnin tvö. Sambýlismaður Sig- rúnar er Sigurður Gíslason, hann á dóttur sem heitir Eygló Arna. 5) Árný Ósk, f. 10. júní Elsku mamma, nú ertu komin í sumarlandið sem þú varst farin að þrá. Eftir stendur tómarúm og minningar frá æskuárum rifjast upp. Það var gott að alast upp í stórum systkinahóp. Aldrei heyrðum við þig kvarta um að mikið væri að gera hjá þér. Þú stóðst við eldavélina að elda, baka eða frammi í þvottahúsi við að þvo. Ekki var um neina sjálfvirka þvottavél að ræða heldur þurftir þú að sjóða í þvottapotti og skola á eftir í bala. Góð minning er um páska, þá klæddir þú okkur öll í betri fötin og við fórum í páska- dagsmessu klukkan átta um morguninn. Oft á veturna fór raf- magnið og ekkert hægt að elda, þá tók pabbi fram prímusinn til að elda á og þá tókum við krakkarnir fram spilin og spiluðum við kerta- ljós, þetta voru góðir tímar. Fermingarsumar Villu systur (ég var 12 ára) fórst þú að vinna í frystihúsinu allan daginn, þá kom það hlut okkur Villu að passa systkini okkar sem voru þá tveggja, þriggja, fjögurra, sex og níu ára gömul, þú treystir okkur fullkomlega og aldrei man ég eftir að neitt kæmi uppá þennan tíma (í dag færi barnavernd í málið). Þetta þroskaði okkur til frambúð- ar. Góð minning er þegar þú sagð- ir okkur sögur fyrir svefninn, ým- ist búnar til á staðnum eða upp úr Grimms ævintýrum og svo faðir- vorið á eftir. Alltaf stóð heimilið opið fyrir okkur börnin þó fullorð- in yrðum. Elsku mamma, þá er komið að leiðarlokum. Hafðu þökk fyrir allt. Þín dóttir, Sigrún. Ég ætla ekki að skrifa lofræðu um móður mína, hún vildi það ekki. Þegar ég hugsa aftur í tím- ann, um æskuna, finn ég hvað ég er heppin með foreldra, ættingja og samfélagið í Brekkunni. Lífið var frelsi og leikur. Ég er alin upp í stórum systkinahópi. Hún mamma mín sem nú hefur fengið hvíldina sína og ferð í sumarland- ið, vann mikið. Ég hugsaði ekki um það þá, en geri það núna, hvað hún lagði að baki margar vinnu- stundir til að sinna þessu stóra heimili. Í barnæsku er það eitthvað svo sjálfsagt að mamma væri alltaf til staðar og nánast alltaf í eldhúsinu. Heimilið var alltaf hreint, alltaf heimabakað brauð, alltaf heitur matur tvisvar á dag og auðvitað grautur eða annað í eftirmat, flest föt heimasaumuð eða prjónuð, svo maður tali nú ekki um allan þvott- inn sem þurfti að þvo. Ég man eft- ir kleinusteikingu þar sem klein- urnar sem komu uppúr pottinum, runnu jafnóðum ljúflega niður í krakkaormana sem voru á hlaup- um fram og til baka og kræktu sér í lungamjúkar og heitar kleinur. Ég man eftir gestakomum, heilu fjölskyldurnar komu og fengu gistingu, jafnvel dögum saman. Þá var eldaður matur, vaskað upp í höndunum, kaffi drukkið, spjallað, við systkinin og frændsystkini í leikjum, skellt í flatsæng, húsin yfirfullt af fólki. Það gafst ekki mikill tími til gæðastunda fyrir hvert og eitt okkar, en ég minnist þó stunda eftir langan útileikja- dag, að við fengum að fara í fóta- bað í eldhúsvaskinum, það var eitthvað svo gott við það þegar mamma þerraði fæturna. Ég minnist notalegra kvöldstunda, við börnin fjögur eða fimm þau yngstu háttuð og komin í bólið uppi á lofti, þá settist mamma með sögubók á loftskörina og las fyrir okkur, pabba fannst þetta líka góðar stundir því hann hallaði sér niðri og hlustaði líka. Mamma var Saumakona með stóru essi. Í dag héti það fatahönn- uður. Það var nóg að segja henni hvernig flíkin átti að vera, krota eitthvað á blað, þá gat hún sniðið og saumað. Oft fékk hún of lítið efni til að sauma það sem óskað var eftir, en þá þurfti bara að raða sniðunum aftur og aftur á efnið, snúa og hafa sumt á ská, þar til ætlunarverkinu var náð. Henni leið vel við „blessaða“ saumavél- ina. Einhverju sinni stuttu fyrir páska hafði hún bakað alla dunka fulla af smákökum og settist þá niður við saumavélina og gleymdi sér alveg. Við yngri krakkarnir vorum úti að leika, kíktum innum eldhúsdyrnar og spurðum hvort við mættum fá köku og gefa hin- um krökkunum í Brekkunni með okkur, hún sagði auðvitað já, og svo var spurt aftur og aftur og allt- af fór öll krakkastrollan inn í búr að fá sér gómsætar smákökur. Á páskadagsmorgun þegar átti að gera vel við heimilisfólk með heitu kakói og smákökum voru bauk- arnir tómir. Mamma var hagmælt, hafði yndi af bóklestri, var næm og naut þess að ferðast þegar tækifæri gafst. Þegar ég heyri þrastasöng að vori finnst mér að ég sé komin heim og lýk þessum skrifum með ljóði eftir mömmu sem hún söng oft fyrir okkur. Hér úti fyrir glugganum situr fugl á grein og syngur fyrir börnin sem hlusta hljóð og hrein. Hann syngur þeim um sumarið, blómailm og yl og þakkar fyrir brauðið sem þau gáfu í vetrar byl. Hjartans þakkir fær núverandi og fyrrverandi starfsfólk á Skógarbrekku, fyrir milda og ljúfa umönnun. Aðalheiður Kjartansdóttir. Elsku mamma mín, nú ertu komin í Sumarlandið eins og þú sagðir stundum. Laus við allar þrautir. Þú varst sátt við að kveðja þennan heim, búin að skila þínu og rúmlega það. Fæddir af þér tíu börn, en misstir litlu systur mína þá aðeins sex vikna gamla, er hún dó úr heilahimnubólgu. Þá sátuð þið amma Dalla við rúmið hennar þar til yfir lauk. Þetta var árið 1957 og þá bjuggu við á Bessa- stöðum hér á Húsavík. Þú varst aðeins 27 ára gömul og þá búin að eignast okkur fjögur elstu. Þá var engin áfallahjálp. Þú sagðir ein- hvern tíma þegar við ræddum þennan atburð, að þér fannst eins og verið væri að slíta úr þér hjart- að þegar hún dó. Maður getur ekki sett sig í þessi spor, þetta var mikil lífsreynsla fyrir unga móður. Elsku mamma, þú varst stoð okkar og stytta alla tíð. Allur þinn tími fór í okkur börnin þín. Ef þú varst ekki að baka brauð í eldhús- inu þá varstu örugglega að þvo þvott í þvottahúsinu. Þú saumaðir föt á okkur börnin þín og líka á konur út í bæ til að fá þér smá pen- ing, því ekki var mikið til af þeim á þessum tímum, en nóg af ást og kærleik. Elsku mamma mín, nú ertu komin til litlu systur sem tekur nú á móti þér. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Þín dóttir Vilhelmína Ásdís. Amma Stína og afi Kjartan voru fastur partur af tilveru minni þegar ég ólst upp. Þegar ég var 16 ára eyddi ég sumrinu á Húsavík. Oft átti ég ekki mikinn pening og þá var gott að koma í mat hjá afa og ömmu á Þórðarstöðum. Þetta sumar fór ég með vinkonum mín- um í Atlavík á útihátíð. Amma smurði helling af nesti og sendi með mér í Atlavík. Mér fannst hallærislegt að taka heimatilbúið nesti á útihátíð og ætlaði að lifa á mat úr sjoppunni. Þegar við vin- konurnar komum á svæðið var lít- ið úrval í sjoppunni og þar að auki á okurverði. Það endaði með því að nestið hélt lífinu í okkur öllum. Ömmu fannst vænt um að heyra þetta og hefur hún oft gert grín að þessu. Ég hef haldið þessum sið og smyr nesti fyrir mig og mína þegar við ferðumst um í Banda- ríkjunum þó svo að það sé sjoppa á hverju götuhorni. Þegar við Baldur fórum til Ari- zona til náms var amma dugleg að skrifa okkur bréf og las stundum inn á segulbandsspólur fréttir af því sem var um að vera heima. Þetta var yndislegt, því ekki var til internetið og rándýrt að hringja heim, svo þetta var ein af fáum leiðum til að fá fréttir að heiman. Þegar ég útskrifaðist með BS- gráðuna kom amma Stína með foreldrum mínum og systkinum til okkar til að vera við útskriftina. Mér þótti einstaklega vænt um að hún skyldi leggja þetta á sig og reynt var að gera sem mest úr ferðinni með því að ferðast til bæði Seattle og Kanada. Það er okkur einstaklega minnisstætt þegar við fórum yfir landamærin til Mexíkó, þar sem amma varð mjög vinsæl meðal sölumannanna sem töldu að hún ætti mikinn pening því hún var elst í hópnum og var með stórt og veglegt veski. Þeir voru farnir að kalla á eftir henni „amma sjáðu“ því þeir heyrðu okkur segja það. Amma bara hló að þessu og hafði gaman af. Það var ekki fyrr en ég eign- aðist strákana mína tvo að ég gerði mér grein fyrir því hvað það hlýtur að hafa verið gífurlegt álag á ömmu, að ala upp níu börn, úti- vinnandi og alltaf fullt hús af fólki. Það var alltaf til fullt af bakkelsi þegar fólk bar að garði. Einnig var ævinlega nóg pláss fyrir gesti þrátt fyrir að öll herbergi væru yfirfull. Það var bara hægt að koma fyrir dýnu annars staðar ef þörf var á. Amma var mikill listamaður því hún saumaði, bjó til handverks- muni og var einstaklega hagmælt á bæði ljóð og vísur. Þegar ég var beðin að vera með ummæli í stúd- entaafmæli mínu hringdi ég í ömmu, sem henti saman vísum um tilefnið, sem að sjálfsögðu slógu í gegn. Þegar ég varð fertug bað amma hana mömmu að taka gjöf til mín, því foreldar mínir voru á leið í heimsókn. Mamma hafði ekki mikið pláss, en amma dó ekki ráðalaus og samdi ljóð til mín. Þetta ljóð er innrammað heima hjá okkur, og það og aðrir munir sem amma gerði og prýða heimili okkar munu minna mig á ömmu um ókomna tíð. Við fjölskyldan sáum ömmu ekki nógu oft þar sem við búum svo langt í burtu en við áttum ómetanlegar stundir með henni og afa í sumar og fyrir það munum við vera að eilífu þakklát. Hvíl í friði, elsku amma. Kristín og fjölskylda. Í dag fylgjum við Stínu frænku okkar síðasta spölinn. Við minn- umst Stínu föðursystur okkar með þakklæti og minningar flæða um hugann. Yndislegar minningar þegar við vorum börn og við kom- um til Húsavíkur með foreldrum okkar. Alltaf var tekið á móti okk- ur opnum örmum á Þórðarstöðum og húsið ilmaði af nýbökuðum eða nýsteiktum kleinum og brauði. Við minnumst allra skemmtilegu stundanna þegar við krakkarnir lékum okkur í brekkunni fyrir of- an Þórðarstaði og fengum svo ný- bakað brauð og ískalda mjólk þeg- ar við komum inn. Ef við vildum gista þá var alltaf nóg pláss hjá Stínu, þó svo að börnin á heimilinu væru mörg og húsið ekki stórt. Þar sem er hjartahlýja er nóg pláss en þessi orð áttu vel við á Þórðarstöðum og einkenndu Stínu. Hún var einstaklega hjartahlý kona sem stráði kær- leiksmolum til okkar allra sem vorum svo heppin að fá að vera henni samferða í lífanda lífi. Af- komendum vottum við innilega samúð og minning um yndislega frænku lifir. Kærar þakkir fyrir allt. Ástfríður, Árný Dalrós, Þórdís, Jóhanna og Kolfinna Njálsdóttir. Kristín Aðalheiður Þórðardóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur, ÁSTHILDAR SALBERGSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknardeildar og Heimahlynningar LSH fyrir góða umönnun, vinsemd og hlýlegt viðmót. Friðrik F. Söebech Berglind Söebech Þórarinn Söebech Stefanía Unnarsdóttir Birta Kristín, Ásta Fanney og Friðrik Fannar Vilhelmína Þórdís Salbergsdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu okkar, GUÐLAUGAR SVEINSDÓTTUR frá Ólafsvík, Lækjabrún 17, Hveragerði. Egill Guðmundsson Elísabet Eygló Egilsdóttir Sveinn Egilsson Margrét Bjartmarsdóttir Elín Þuríður Egilsdóttir Guðjón Kristinn Kristgeirsson Guðmundur Gísli Egilsson Guðlaug Jóhanna Steinsdóttir Sigurður Egilsson Herdís Þórðardóttir Guðbjörg Egilsdóttir Guðbrandur Björgvinsson Gústaf Geir Egilsson Vaida Visockaite Hólmar Egilsson Halldóra Einarsdóttir Sigurlaug Egilsdóttir Ingólfur Gauti Ingvarsson Agla Egilsdóttir Arnljótur Arnarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, SKARPHÉÐINN EINARSSON, Kjalarsíðu 1 b, Akureyri, lést af slysförum 21. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Okkar innilegustu þakkir til starfsmanna við Sambýli/þjónustuíbúðir fatlaðra Akureyri sem leiðbeindu honum og aðstoðuðu á lífsgöngunni. Guðbjörg P. Einarsdóttir Sigríður Einarsdóttir Gunnar B. Gunnarsson Kristófer Einarsson Guðrún B. Ketilsdóttir og systkinabörn Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, UNNSTEINS ÞORSTEINSSONAR vélstjóra, Miðleiti 3, Reykjavík. Okkur langar sérstaklega að þakka starfsfólki 4B á Landspítalanum í Fossvogi fyrir sérlega góða umönnun, fallega framkomu og hversu þétt þið stóðuð við bak okkar aðstandenda. Þið eigið heiður skilinn fyrir ykkar mikilvæga og óeigingjarna starf. Rut Árnadóttir Þorsteinn Unnsteinsson Árni S. Unnsteinsson Anna Guðmundsdóttir Sigurlaug K. Unnsteinsdóttir Þorsteinn J.J. Brynjólfsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.