Morgunblaðið - 06.10.2018, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal
Sunnudagur 7.10. Barnaleiðsögn kl. 14
Þriðjudagur 9.10. Hádegisfyrirlestur kl. 12:
Hví voru íslenskar fornsögur ekki skrifaðar á latínu?– Árni Björnsson
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð
Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal
Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Leitin að klaustrunum í Horni
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17
Sýningaropnun í Listasafni Íslands, laugardaginn 6. október kl. 15
á verkum Karls Einarssonar Dunganons.
Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra um sýninguna Véfréttir
– Karl Einarsson Dunganon, 7. október kl. 14.
VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON
LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign
BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR
KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17.
Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er fimmta ævintýrið um
Maxa,“ segir Hallfríður Ólafsdóttir
flautuleikari um nýjasta tónlistar-
ævintýri sitt um músina ástsælu,
Maxímús Músíkús, sem flutt verður
á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands (SÍ) í tónleikaröðinni
Litli tónsprotinn þetta starfsárið.
Tónleikarnir verða í Eldborg Hörpu
í dag, laugardag, kl. 14, en boðið
verður upp á listasmiðju í Hörpu-
horni frá kl. 13 og aftur að tónleikum
loknum þar sem tónleikagestir á öll-
um aldri geta búið til kórónur með
Maxa og félögum.
Tónlistarævintýrið sem nefnist
Maxímús Músíkús fer á fjöll var
pantað af SÍ og Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Los Angeles sem frum-
flutti það á Reykjavíkurhátíð sinni í
Walt Disney-tónlistarhöllinni vorið
2017 undir stjórn Daníels Bjarna-
sonar sem einnig heldur um tón-
sprotann í dag. Sögumaður bæði í
Los Angeles og í dag er Unnur Egg-
ertsdóttir, sem valin var í hlutverkið
eftir opnar prufur vestanhafs.
Samhliða tónleikunum kemur tón-
listarævintýrið út á bók með teikn-
ingum eftir Þórarin Má Baldursson,
sem tónleikagestir fá að njóta á tón-
leikunum í dag á stórum skjá fyrir
aftan hljómsveitina. Sögumaður
hljóðbókarinnar er eins og áður Val-
ur Freyr Einarsson. Að þessu sinni
ferðast Maxímús upp á fjöll í fylgd
tveggja gestamúsa, Viva og Moto,
sem komu í tösku erlends hljóm-
sveitarstjóra. Í ferðalagi músanna
ber margt fyrir augu og eyru, sem
dæmi upplifa þær jarðskjálfta uppi á
jökli og verða vitni að elds-
umbrotum.
Læðir inn góðum boðskap
„Þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Fílharmóníuhljómsveitin í Los
Angeles pöntuðu verkið hjá mér í
ársbyrjun 2016 ákvað ég strax að
nota aðeins íslenska tónlist að þessu
sinni og blanda saman bæði gamalli
tónlist og splunkunýrri. Markmið
mitt var að semja ævintýri sem gæti
verið góð Íslandskynning fyrir börn
erlendis og samtímis frætt íslensk
börn.“
Spurð hvort komi fyrst þegar hún
sé að semja um Maxímús, valið á
tónlistinni eða sagan, segir Hall-
fríður það virka í báðar áttir. „Ég
vinn útfrá aðalefni hverrar bókar.
Sem dæmi var markmið fyrstu bók-
arinnar að kynna hljómsveitina og
þá lá beint við að nota Bolero til að
kynna hvert hljóðfæri og ólíkar
hljóðfærasamsetningar. Þegar við
vorum með tónlistarskólabókina
valdi ég verk sem börn gátu leikið,
en í þeirri sögu vorum við með barn-
unga einleikara,“ segir Hallfríður og
bendir á að eftir margra ára starf í
tónlistarbransanum þekki tónlist-
arfólk mikið af tónverkum og eigi
þess vegna auðveldara með að velja.
„Í ballettbókinni langaði mig til að
nota nokkur uppáhaldsverk, Eld eft-
ir Jórunni Viðar og Gæsamömmu-
svítu Ravels sem er um ævintýri sem
var auðvelt að spinna sögu um.
Stundum kallar tónlistin sem ég vel
á hliðarsögu við aðalefnið,“ segir
Hallfríður og tekur fram að sér sé
einnig mikilvægt að læða góðum
boðskap inn í bækur sínar hvort
heldur það snýr að gleði, vináttu eða
sjálfsöryggi.
Þegar kemur að Maxímús Mús-
íkús fer á fjöll kallast tónlistarvalið
sterklega á við innihald sögunnar.
Auk Lagsins hans Maxa eftir Hall-
fríði sjálfa hljóma átta önnur verk
bæði á tónleikunum í dag og í hljóð-
„Þar verða
allir glaðir“
Nýtt tónlistarævintýri um Maxímús
Músíkús flutt í Hörpu í dag kl. 14
Morgunblaðið/Eggert
Eftirvænting Maxímús Músíkus og Unnur Eggertsdóttir á æfingu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Listasafn Íslands efnir til sýningar á
úrvali verka Karls Einarssonar
Dunganons kl. 15 í dag. Yfirskrift
sýningarinnar dregur dám af mynd-
röðinni Véfréttir, sem ásamt rúm-
lega 200 myndverkum listamannsins
er í eigu safnsins. Ljóð hans, úr-
klippubækur og önnur gögn eru
geymd í Þjóðskjalasafni Íslands.
Sýningunni er ætlað að varpa ljósi
á líf og list listamannsins, sem hafði
sterkar taugar til Íslands og arf-
leiddi þjóðina að verkum sínum.
Karl Kerúlf Einarsson fæddist á Ís-
landi árið 1897 en flutti barnungur
til Færeyja og síðar til Danmerkur
þar sem hann bjó lengst af og lést
þar árið 1972. Hann tók sér ungur
nafnið Dunganon en gekk einnig
undir öðrum nöfnum og titlum, sem
hann tók sér, þekktasti er hertoginn
af St. Kildu. Þó að hann kæmi aldrei
til þessa skoska eyjaklasa, sló hann
eign sinni á hann og lýsti sig æðsta
stjórnanda, útbjó sér vegabréf,
ríkisstimpil, póststimpil og útdeildi
riddaraskjölum. Dunganon var lífs-
kúnstner og ljóðskáld sem ferðaðist
víða og bjó í helstu borgum Evrópu.
Hann gaf út sína fyrstu ljóðabók árið
1931 en upp úr 1946 hóf hann að
teikna og mála og myndskreytti
hann mörg ljóða sinna. Dunganon
taldi sig sjá inn í huldari heima og
tjáir oft í myndum sínum sýnir eða
drauma, þó að einnig séu hvers-
dagsleg störf og athafnir viðfangs-
efni hans. Dunganon gerði myndröð-
ina Véfréttir, við ljóðabálk sinn
Oracles of St. Kilda, samtals 250
verk. Myndefnið er m.a. ýmiss konar
dýr og furðuverur, spúandi eldfjöll,
fagrar konur og fengsælir veiði-
menn. Verkin eru unnin á árunum
1946-1960, öll svipuð að stærð, unnin
á pappír með fjölbreyttri gerð lita og
lökkuð.
Samhliða sýningunni er gefin út
bók um ljóðskáldið og myndlist-
armanninn Dunganon, ævintýralegt
lífshlaup hans og höfundarverk.
Bókinni er ritstýrt af Helgu Hjörvar
og Hörpu Björnsdóttur, sem jafn-
framt er sýningarstjóri.
Véfréttir og úrvalsverk Dung-
anons, hertogans af St. Kilda
Ævintýri Myndir Dunganons eru
ávallt litríkar og ævintýralegar.
Fjöldi tónlistarmanna heldur á næstunni tónleika og óp-
erusýningar til heiðurs Jóni Ásgeirssyni tónskáldi sem
fagnar 90 ára afmæli sínu 11. október. Fyrstu tónleik-
arnir eru kl. 20 á morgun, sunnudag, í Salnum. Valdís
Gregory sópran, Agnes Tanja Þorsteinsdóttir messó-
sópran, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór og Ágúst
Ólafsson barítón ásamt Guðríði St. Sigurðardóttur
píanóleikara flytja sönglög, aríur og dúetta úr óperum
Jóns.
Söngskólinn í Reykjavík verður með masterklassa kl.
14 hinn 9. október þar sem Jón leiðbeinir söngnem-
endum. Hinn 10. október verða svo tónleikar með söng-
verkum eftir hann. Á afmælisdaginn verður opið hús frá
kl. 17.15 í Von, sal SÁÁ við Efstaleiti 7. Hljóðfæraleik-
arar, kórar og einsöngvarar heiðra tónskáldið og ný
nótnaútgáfa Ísalaga á öllum sönglögum Jóns verður
kynnt. TIBRÁ söngtónleikar verða í Salnum kl. 20 hinn
17. október þar sem frumflutt verða m.a. 4 sönglög við
ljóð Þorsteins frá Hamri.
Hildigunnur Einarsdóttir messósópran og Guðrún
Dalía Salómonsdóttir píanóleikari flytja lagaflokkinn
Svartálfadans kl. 16 í Hannesarholti 20. október.
Afmælisveislunni lýkur 26. og 27. október í Norður-
ljósum í Hörpu, þar sem kl. 20 bæði kvöldin verður flutt
endurgerð Jóns á aríu úr Þrymskviðu. Stjórnandi er
Gunnsteinn Ólafsson, leikstjóri Bjarni Thor Kristinsson.
Tónlistarveisla til heiðurs Jóni
Morgunblaðið/Kristinn
Tónskáld Jón Ásgeirsson tónskáld hefur hlotið ýmis
verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín og störf.