Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.11.2018, Blaðsíða 27
hægt eða fá alvöru útrás á fleygi-
ferð. Ef einhverjir vilja frekar fara
til Vínar á aðventunni og skauta
inn jólin má benda á nokkur flott
svell svo sem The Wiener Eis-
laufverein sem en á því svelli hefur
verið skautað í meira en 150 ár í
borginni.
● Skautasvellið í aðalalmenn-
ingsgarði Búdapest er að margra
mati eitt það fallegasta í Evrópu,
en Lonely Planet hefur meðal ann-
ars valið það sem eitt besta skauta-
svell vetrartímans. Svellið, í Var-
osligeti-garðinum, opnar í byrjun
desember á hverju ári og er raunar
stöðuvatn á sumrin sem er breytt í
skautasvell í jólamánuðunum og
eitthvað frameftir nýju ári. Um-
hverfið er vissulega fallegt en það
sem gerir það alveg einstakt er ná-
lægð gamals kastala, Vajdahunyad,
sem gerir stemninguna enn ævin-
týralegri.
● Borgarbúar Amsterdam vita
fátt betra en skella sér á skauta og
óska þess margir að veturinn verði
kaldur svo síkin frjósi og hægt
verða að skauta þvers og kruss. En
þar sem það gerist ekki alltaf eru
til nóg af tilbúnum svellum í borg-
inni til að bregða sér á. Þannig er
skautasvellið á Museumplein mjög
skemmtilegt en þar gefst skauta-
fólki kostur á að skauta undir eftir-
mynd af hinni frægu Magere-brú.
Svellið er ekki stórt en mjög barn-
vænt og er á miðjum jólamarkaði
þar sem hægt er að sötra heitan
drykk á hliðarlínunni milli þess
sem maður skautar. Svellið opnaði í
vikunni og er opið alveg fram í
byrjun febrúar. Þá má líka benda á
notalegt skautasvell á Rem-
brandtplein. En frjósi síkin, þá
fyrst sjá ferðalangar borgarbúa í
esssinu sínu og um að gera að vera
með!
Skautasvellið við Rockefeller Center í New York er afar líflegt og mikið um að vera í nágrenninu.
Skautað á miðjum jólamarkaðnum á Alexanderplazt í Berlín.
Skautasvellið við National Gallery of Art í Washiungton nýtur mikilla vinsælda.
Vínarborg breytist í paradís skautafólks þegar Ráðhústorgið er lagt undir stærðarinnar skautasvell.
Það er ævintýri þegar síkin frjósa í Amsterdam og hægt er að fara ferða sinna á
skautum. Svo er líka hægt að fara á sérstaklega útbúin skautasvell.
25.11. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Landslag kr. 5.400
Snúrusnilld kr. 2.000 Hreðkuskálar kr. 2.900-13.500
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Hafið
samband
fako@fako.is
Starfsmannag jafir
fyrir fyrirtæki
í miklu úrvali
Fótadekur
fyrir þreytta fætur
TILBOÐ
fyrir 20
starfsmenn
eða fleiri