Morgunblaðið - 24.01.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Flottar yfirhafnir, fyrir flottar konur
Str.
38-58
595 1000 . heimsferdir.is
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
a
m
pr
en
illu
r.
He
i
sf
rð
i
á
il
r
é
il
i
í
.
t
s
f
i
PÁSKAFERÐ 18. APRÍL Í 4 NÆTUR
Frá kr.
89.995
Búdapest
Reykjavíkurborg er með um 90% af óhagnaðardrifinni
húsnæðisuppbyggingu með stofnframlögum í landinu og
dregur þannig vagninn í uppbyggingu almennra íbúða.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem borgin sendi frá sér
í gær og vitnar þar til nýrrar skýrslu Íbúðalánasjóðs.
Skýrslan var meðal gagna sem lögð voru fram ásamt
skýrslu Átakshóps ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum.
Í skýrslunni kemur fram að um 6.600 íbúðir eru í
byggingu á svæðum sem skilgreind eru sem kjarna- og
vaxtarsvæði en þar af eru um 5.300 á höfuðborgarsvæð-
inu, þar af eru 3.325 í Reykjavík. Áætlað er að framkvæmdum ljúki við yfir
6.000 íbúðir á næstu tveimur árum en þar af eru 4.900 á höfuðborgarsvæð-
inu. „Með hliðsjón af fjölda íbúða í byggingu á úthlutunarhæfum bygg-
ingarsvæðum og á svæðum þar sem deiliskipulag hefur verið samþykkt
má ætla að byggðar verði 3.100 íbúðir á vegum óhagnaðardrifinna hús-
næðisfélaga á höfuðborgarsvæðinu til ársins 2022, þar af 90% í Reykja-
vík,“ segir í skýrslu Íbúðalánasjóðs.
Reykjavíkurborg segist draga vagninn
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Aðalmeðferð í máli þriggja manna
sem ákærðir eru fyrir innherjasvik
og hlutdeild í innherjaviðskiptum
sem varða viðskipti með hlutabréf
Icelandair Group hófst í gær í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Einn
hinna ákærðu, Kjartan Jónsson, var
áður forstöðumaður leiðakerfis-
stjórnunar Icelandair.
Er Kjartan sagður hafa veitt
æskuvini sínum úr Ölduselsskóla,
Kristjáni Georg Jósteinssyni, sem
ásamt Kjartani er ákærður fyrir inn-
herjasvik, upplýsingar um fjárhags-
stöðu Icelandair. Kristján hagnýtti
sér svo upplýsingarnar í viðskiptum
sem hann átti fyrir hönd félags í hans
eigu. Félagarnir eru sagðir hafa
hagnast sameiginlega á viðskiptun-
um, í ákæru málsins.
Þriðji sakborningurinn í þessu
máli, Kjartan Bergur Jónsson, er
ákærður fyrir hlutdeild í innherja-
svikum fyrir að hafa hagnýtt sér upp-
lýsingar um Icelandair sem Kristján
Georg deildi áfram.
Ýmsar innherjaupplýsingar
Kjartan neitaði sakargiftum fyrir
dómi og sagðist ekki hafa veitt Krist-
jáni Georg innherjaupplýsingar, eins
og hann er sakaður um í þremur lið-
um, þ.e. flutningatölur, bókunarflæði
og upplýsingar um við hverju mætti
búast í næstu uppgjörum félagsins.
Þá er hann einnig sakaður um að
hafa veitt Kristjáni Georg upplýsing-
ar tengdar afkomuviðvörun Icelanda-
ir 1. febrúar 2017, áður en markaður-
inn vissi af þeim. Þessar upplýsingar
nýtti Kristján sér til að stunda af-
leiðuviðskipti, þar sem hann „veðj-
aði“ annaðhvort á að hlutabréf í Ice-
landair Group myndu hækka eða
lækka.
Sem fruminnherji hjá Icelandair
hafði Kjartan aðgang að ýmsum upp-
lýsingum, sem m.a. vörðuðu bókunar-
flæði félagsins. Það var m.a. í hans
verkahring að taka saman og senda
út vikulega tölvupósta á lykilstarfs-
menn og stjórnendur flugfélagsins
um þá stöðu. Þetta gerði hann hvern
einasta sunnudag og lýsti hann þessu
sem einfaldri „copy/paste“ vinnu, þar
sem hann tók upplýsingar úr kerfum
flugfélagsins og sendi stjórnendum í
tölvupósti. Þessum tekjuupplýsing-
um er hann m.a. sakaður um að hafa
deilt með Kristjáni Georg, en sá sagð-
ist fyrir dómi ekki hafa fengið neinar
upplýsingar um stöðu mála hjá
Icelandair. Þá sagist Kjartan Berg
eiga afar takmarkaða aðkomu að
málinu og skildi ekki þann lið ákkær-
unnar sem beindist að honum. „Mér
finnst eins og sé ekki ákærður fyrir
viðskipti mín heldur fyrir viðskiptin
hans Kristjáns,“ sagði hann í héraði.
Innherji Icelandair
Group neitaði sök
Aðalmeðferð í innherjasvikamáli hófst í héraðsdómi í gær
Morgunblaðið/Eggert
Héraðsdómur Lögmenn og sakborningar í málflutningi í gær.