Morgunblaðið - 24.01.2019, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2019
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þau farþegaskip sem koma oftast í ís-
lenskar hafnir á ári hverju eru svoköll-
uð leiðangursskip (e. expedition
cruises). Þetta eru skip sem sigla
hringinn í kringum landið allt sumarið,
með fjölda viðkomustaða.
Flest taka skipin 200-250 farþega.
Þeir koma yfirleitt fyrr til landsins
með flugi og gista á hótelum, áður en
siglingin hefst. Leiðangursskipunum
hefur fjölgað á undanförnu árum en
farþegar þeirra eru sérstaklega
áhugasamir um að kynna sér náttúru
Íslands og íslenska menningu. Far-
þegar með leiðangursskipum voru um
níu þúsund sumarið 2017 en tölur fyrir
árið 2018 liggja ekki fyrir. Þessi teg-
und ferðamennsku hefur verið lyfti-
stöng fyrir landsbyggðina.
Viðkoma í mörgum höfnum
Ocean Diamond er dæmigert leið-
angursskip og verður nú í siglingum
hér fimmta sumarið. Skipið er 8.282
brúttótonn að stærð og getur tekið 210
farþega og á annað hundruð manns
eru í áhöfn. Það kemur við í nokkrum
höfnum á landsbyggðinni. Meðal ann-
ars er höfð viðdvöl í Stykkishólmi, á
Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Djúpa-
vogi og í Vestmannaeyjum. Íslenskir
leiðsögumenn eru um borð og fræða
farþegana um land og þjóð. Mikil
áhersla er lögð á að gefa farþegunum
kost á að kynnast landinu, náttúrunni
og íslenskri menningu. Flutt er íslensk
tónlist og íslenskur matur er á borðum
Þann 29. október 2018 varð Ísland
hluti af starfsvæði AECO. Association
of Arctic Expedition Cruise Operators
(AECO) eru alþjóðleg samtök
rekstraraðila leiðangursfarþegaskipa
og samstarfsaðila þeirra á norður-
slóðum, sem helga sig umhverfis-
vænum, öruggum og tillitssömum
rekstri skemmtiskipa.
Á heimasíðu Faxaflóhafna kemur
fram að AECO hefur um 70 alþjóðlega
meðlimi - þar á meðal eru 40 skiprek-
endur, eigendur og stjórnendur, og 50
leiðangursfarþegaskip - og er því í
forsvari fyrir meirihluta þeirra sem
stunda slíkan rekstur á norð-
urslóðum. Meðlimir AECO sigldu
með alls 26.000 farþega til Svalbarða,
Grænlands, Íslands, Kanada og
Frans Jósefslands árið 2018.
Cruise Iceland, samtök fyrirtækja í
skipaferðaþjónustu, og North Atl-
antic Agency á Íslandi eru meðlimir í
AECO. Starfssvæði samtakanna nær
yfir Svalbarða, Jan Mayen, Græn-
land, norðurhluta Kanada og norð-
urskautsþjóðgarðinn í Rússlandi,
sem og Ísland frá árinu 2019. Sam-
tökin hafa sett saman fjölda reglna
sem meðlimum þeirra er skylt að
fylgja. Þar á meðal eru reglur er
varða starfsemi, dýralíf, gesti,
ákveðna staði og annað. Í sumar mun
að öllum líkindum líta dagsins ljós
fyrstu leiðbeiningarnar frá AECO
fyrir Seyðisfjörð, að því er fram kem-
ur í frétt á heimasíðu Faxflóahafna.
Þær leiðbeiningar hafa verið unnar í
samvinnu við hagsmunaaðila á svæð-
inu.
Umhverfisstofnun er þar að auki
búin að gefa út leiðbeiningar fyrir
Friðlandið á Hornströndum. Eins og
mörgum er í fersku minni komst
franska skemmtiferðaskipið Le
Boreal í fréttirnar sumarið 2017 þeg-
ar það kom að Hornströndum og
hleypti um 200 farþegum í land án
tollafgreiðslu. Umhverfisstofnun fer
með umsjón friðlandsins á Horn-
ströndum og hefur eftirlit með um-
ferð, metur ástand og stuðlar að
verndun menningarminja.
Aðgæsla á Hornströndum
„Mikil aukning er í skipulagðar
skoðunarferðir gagngert til þess að
upplifa nánd við tófuna innan frið-
landsins á Hornströndum. Ábúðar-
þéttleiki tófunnar á austanverðu frið-
landi Hornstranda og við Hornbjarg
er með því mesta sem þekkist og því
rík aðgæsluskylda sem hvílir á þeim
sem fara um svæðið. Tófan er friðuð
innan friðlands Hornstranda og er
allur óþarfa umgangur óheimill við
greni,“ segir í leiðbeiningum Um-
hverfisstofnunar.
Umhverfisstofnun beinir þeim til-
mælum til ferðaþjónustuaðila að tak-
marka fjölda þeirra sem fara hvert
sinn í hópferðir um svæðið, sérstak-
lega þegar gróður, lífríki og göngu-
slóðar eru viðkvæmir.
Kynnast náttúru og menningu
Svonefndum leiðangursskipum hefur fjölgað á undanförnum árum Sigla hringinn í kringum
landið í skipulögðum ferðum Ísland varð nýlega aðili að alþjóðlegum samtökum á þessu sviði
Ljósmynd/Emil Þór Sigurðsson
Hringferð Ocean Diamond siglir út Skjálfanda eftir viðkomu á Húsavík. Stórbrotin náttúra Þingeyjarsýslu heillaði.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hlaðborð Lögð er áhersla á að bjóða farþegunum upp á íslenskan mat.
Skipakomur
» Eftirfarandi farþegaskip
koma oftar en einu sinni til
Faxaflóahafna í sumar:
» Ocean Diamond – 16 komur,
Star Breeze – 9 komur, Spits-
bergen – 6 komur, N.G. Explo-
rer – 5 komur og Astoria – 5
komur.
» Farþegaskipið Astoria er
væntanlegt til Reykjavíkur 15.
mars og verður fyrsta
skemmtiferðaskip ársins.
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Það er ekki á hverjum degi sem
stofnuð eru ný fyrirtæki í litlum
bæ eins og Skagaströnd. Það vek-
ur því ávallt gleði og eftirvæntingu
hjá íbúunum þegar það gerist. Eitt
slíkt var opnað með pomp og pragt
10. janúar með fjölmennri gesta-
móttöku og kynningu þó það hafi
reyndar hafið störf viku fyrr.
Um er að ræða bókhalds- og
ráðgjafarfyrirtækið Lausnamið
sem byrjar með tvo starfsmenn.
Fyrirtækið er í eigu Erlu Jóns-
dóttur sem hefur mikla reynslu á
því sviði sem fyrirtækið ætlar að
starfa á. Þar verður boðið upp á al-
menna bókhaldsþjónustu í víðtæk-
asta skilningi og rekstrarráðgjöf
auk þess að bjóða ráðgjöf og jafn-
vel umsjón á sviði gæðamála fyrir-
tækja.
Alhliða rekstrarþjónusta
Erla, sem er menntaður
rekstrarfræðingur úr Háskólanum
á Akureyri, kom til starfa hjá
Skagstrendingi hf. sem yfirbókari
fyrir allmörgum árum en gerðist
svo fjármálastjóri þar. Þegar
Skagstrendingur sameinaðist Fisk
Seafood á Sauðárkróki fylgdi Erla
með og tók að sér fjármálastjórn
Fisk samstæðunnar, sem þá rak
nokkra togara og landvinnslur í
fiski og rækju. Nýverið lét Erla af
störfum hjá Fisk Seafood og stofn-
aði Lausnamið í framhaldi af því.
Hún hefur gert samstarfssamning
við Enor endurskoðunarfyrirtækið
á Akureyri og getur því boðið upp
á löggilta endurskoðun.
Erla nýtur greinilega trausts í
fjármálageiranum því hún er
stjórnarformaður lífeyrissjóðsins
Stapa og er einnig í stjórn Lands-
samtaka lífeyrissjóða á Íslandi.
Með Erlu hjá Lausnamiði starfar
Sigríður Gestsdóttir, sem er viður-
kenndur bókari og hefur langa
reynslu af bókhaldi.
Nýtt fyrirtæki
á Skagaströnd
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Nýtt fyrirtæki Erla Jónsdóttir og
Sigríður Gestsdóttir við opnunina.